Atvinnu- og menningarmálanefnd - 127. fundur - 15. október 2015

 Dagskrá:

1.  

17. júní 2016 - 2015100011

 

Umræður um skipulagningu 17. júní 2016

 

Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til við bæjarstjórn að fjármagn til hátíðarhalda vegna 17. júní verði aukið í kr. 800.000,-.

 

 

Gestir

 

Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, upplýsingafulltrúi - 16:00

 

   

Hálfdán Bjarki Hálfdánsson yfirgefur fundinn kl. 16:40

2.  

Veturnætur 2015 - 2015090014

 

Umræður um veturnætur sem haldnar verða 23.-26. október n.k.

 

Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, upplýsingafulltrúi, kynnti dagskrána fyrir nefndinni.

 

   

3.  

Tendrun jólaljósa í Ísafjarðarbæ 2015 - 2015100010

 

Lagt er fram minnisblað Hálfdáns Bjarka Hálfdánssonar, upplýsingafulltrúa, dags. 7. október sl.

 

Atvinnu- og menningarmálanefnd tekur undir tillögu upplýsingafulltrúa að jólaljós verði tendruð 28. nóvember á Þingeyri, 29. nóvember á Suðureyri, 5. desember á Ísafirði og 6. desember á Flateyri.

 

   

4.  

Listamannaþing 2015 - boð - 2015050021

 

Lagt er fram bréf Félags vestfirskra listamanna, sem barst 22. júní sl., þar sem Félag vestfirskra listamanna hvetur Ísafjarðarbæ til að halda barnamenningarhátíð á Vestfjörðum. 891. fundur bæjarráðs vísaði erindinu til atvinnu- og menningarmálanefndar að fengnum tillögum íþrótta- og tómstundafulltrúa.

 

Atvinnu- og menningarmálanefnd lýsir ánægju sinni með hugmyndina og frumkvæði Félags vestfirskra listamanna. Nefndin telur sveitarfélagið þó ekki vera réttan aðila til að skipuleggja slíka hátíð, slíkt þyrfti að koma frá þeim aðilum sem hafa brennandi áhuga á málefninu. Atvinnu- og menningarmálanefnd hvetur bæjarstjórn hins vegar til að leggja hátíðum sem þessum lið með einum eða öðrum hætti.

 

   

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:04

 

 

Inga María Guðmundsdóttir

 

Björn Davíðsson

Ingólfur Hallgrímur Þorleifsson

 

Þórdís Sif Sigurðardóttir

Er hægt að bæta efnið á síðunni?