Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
122. fundur 19. september 2012 kl. 10:00 - 12:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Fundargerð ritaði: Sædís María Jónatansdóttir
Dagskrá
Barði Ingibjartsson boðaði forföll og einnig varamaður hans.

1.Trúnaðarmál - 2012010059

Engin trúnaðarmál lögð fram á fundinum.

2.Sískráning 2012 - 2012090057

Lagt fram yfirlit yfir sískráningu barnaverndartilkynninga í maí, júní, júlí og ágúst 2012. Í maí bárust barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum 13 tilkynningar, 8 í júní, 15 í júlí og 7 í ágúst.

Lagt fram til kynningar.

3.Ársskýrslur Barnaverndarnstofu - 2003050057

Lagðar fram til kynningar Samtölur 2011 sem eru eins konar ársskýrsla sem skilað er frá barnaverndarnefndum til Barnaverndarstofu. Á árinu 2011 komu 147 tilkynningar til barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum.

Lagt fram til kynningar.

4.Ársskýrslur Barnaverndarnstofu - 2003050057

Lögð fram til kynningar ársskýrsla Barnaverndarstofu fyrir árin 2008-2011.

Lagt fram til kynningar.

5.Barnaverndarmál 2012 - 2012090064

Lagt fram til kynningar vegna vinnslu barnaverndarmála frá janúar til ágúst 2012. Fyrstu átta mánuði ársins komu 108 tilkynningar til barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum.

Lagt fram til kynningar. 

6.Fjárhagsáætlun - 2012090065

Umræður um fjárhagsáætlun barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum fyrir árið 2013.

Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, Bolungarvíkurkaupstaðar og hreppsnefnd Súðavíkurhrepps að á árinu 2013 verði kostnaðarhlutdeild í barnavernd skipt þannig að mannfjöldatölur í desember 2012, ásamt fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar fyrir málaflokkinn á árinu 2013, verði grundvöllur hlutfallslegrar ábyrgðar og skiptingar kostnaðar í barnavernd.  Sami háttur verði hafður á til framtíðar með breytilegum tölum eftir mannfjölda og fjárhagsáætlunum í málaflokknum.  Í lok hvers árs verði fjárhagsstaða í málaflokknum endurskoðuð með tilliti til hvort áætlunin hafi staðist, hvort hækkun sé eða lækkun á kostnaði og þá ábyrgð dreift í réttum hlutföllum við útkomu.  Nefndin telur eðlilegt að Ísafjarðarbær, Bolungarvíkurkaupstaður og Súðavíkurhreppur taki sameiginlega ábyrgð á málaflokknum, enda séu fulltrúar frá öllum sveitarfélögunum í nefndinni,  fulltrúar sem taka ákvarðanir og ábyrgð, án tillits til búsetu fólks á svæðinu.

Fundi slitið - kl. 12:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?