Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
400. fundur 01. júní 2017 kl. 09:00 - 10:50 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir forseti
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Arna Lára Jónsdóttir aðalmaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson aðalmaður
  • Sigurður Jón Hreinsson aðalmaður
  • Kristín Hálfdánsdóttir aðalmaður
  • Gunnhildur Björk Elíasdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri, var fjarverandi, Þórdís Sif Sigurðardóttir er staðgengill hans.

1.Bygging íþróttamannvirkja á Torfnesi - 2017030092

Tillaga frá 477. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 17. maí sl. um að væntanlegt hús á Torfnesi komi til með að rísa skv. tillögu nr. 1.
Til máls tóku: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti, Sigurður Hreinsson, Daníel Jakobsson, Marzellíus Sveinbjörnsson, Jónas Þór Birgisson, Arna Lára Jónsdóttir og Kristján Andri Guðjónsson.

Kristján Andri Guðjónsson leysir forseta af er hún tók til máls.

Sigurður Hreinsson, bæjarfulltrúi leggur fram eftirfarandi breytingartillögu:
"Bæjarstjórn felur skipulags- og mannvirkjanefnd að vinna áfram deiliskipulag á Torfnesi með þeim hætti, að haldið verði opnum möguleikum á staðsetningu 3150m2 byggingar, bæði samkvæmt tillögu 1 og tillögu 2."

Forseti ber breytingartillöguna upp til atkvæða.

Breytingartillagan felld 1-4. Nanný Arna Guðmundsdóttir, Arna Lára Jónsdóttir, Gunnhildur Elíasdóttir og Kristján Andri Guðjónsson sitja hjá. Kristján Andri gerir grein fyrir atkvæði sínu.

Forseti ber tillögu skipulag- og mannvirkjanefndar upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 8-0. Nanný Arna Guðmundsdóttir situr hjá.

2.Þjónustuhús við tjaldsvæðið á Þingeyri - 2017010003

Tillaga frá 477. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 17. maí sl. um að heimila að lóð undir þjónustuhús við tjaldsvæðið á Þingeyri verði stofnuð.
Til máls tóku: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti, Sigurður Hreinsson, Gunnhildur Elíasdóttir, Marzellíus Sveinbjörnsson, Arna Lára Jónsdóttir og Jónas Þór Birgisson.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Umsókn um lóð - Rómarstígur 2 - 2017050044

Tillaga frá 477. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 17. maí sl. um að Elías Guðmundsson fái lóð við Rómarstíg nr. 2 Suðureyri, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Til máls tóku: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti og Sigurður Hreinsson.

Forseti ber upp við fundinn að ræða fundarlið 3.-7. í einni umræðu en að taka hverja tillögu fyrir sig til atkvæða. Fundurinn gerði ekki athugasemd við það verklag.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Umsókn um lóð - Rómarstígur 3 - 2017050045

Tillaga frá 477. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 17. maí sl. um að Elías Guðmundsson fái lóð við Rómarstíg nr. 3 Suðureyri, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Umsókn um lóð - Rómarstígur 4 - 2017050046

Tillaga frá 477. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 17. maí sl. um að Elías Guðmundsson fái lóð við Rómarstíg nr. 4 Suðureyri, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Umsókn um lóð - Rómarstígur 5 - 2017050047

Tillaga frá 477. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 17. maí sl. um að Elías Guðmundsson fái lóð við Rómarstíg nr. 5 Suðureyri, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Umsókn um lóð - Rómarstígur 6 - 2017050048

Tillaga frá 477. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 17. maí sl. um að Elías Guðmundsson fái lóð við Rómarstíg nr. 6 Suðureyri, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Sandasker, Dýrafirði, - Frístundabyggð - 2016100042

Tillaga 975. fundar bæjarráðs, sem haldinn var 22. maí sl., um að samþykkja samkomulag um afnot af landi við Sandasker, Dýrafirði.
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Viðauki 5 við fjárhagsáætlun 2017 - 2017010064

Kynntur viðauki 5 við fjárhagsáætlun 2017. Viðaukinn varðar breytingar á launaáætlun á 15 deildir vegna kjarasamningsbreytinga, langtímaveikinda og stöðugildi á Sólborg, samtals aukning launakostnaðar kr. 63.753.786,-. Áætlaður pottur launa og ófyrirséður kostnaður lækkar samanlagt sem þessu nemur. Nettó áhrif viðaukans á rekstur samstæðu Ísafjarðarbæjar eru kr. 0.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 5.
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

10.Viðauki 6 við fjárhagsáætlun 2017 - 2017010064

Kynntur viðauki 6 við fjárhagsáætlun 2017. Viðaukinn varðar stöðugildi á Eyrarskjóli kr. 1.600.000, frístundarútu til Bolungarvíkur kr. 600.000 og endurbætur á Grænagarði kr. 11.700.000. Áætlaður snjómokstur lækkar samanlagt sem þessu nemur þar sem hann hefur reynst minni en áætlað var fyrir. Nettó áhrif viðaukans á rekstur samstæðu Ísafjarðarbæjar eru kr. 0.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 6.
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

11.Viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2017 - 2017010064

Lagður er fram viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2017. Viðaukinn varðar mál 2016050078, samkomulag við Hestamannafélagið Hendingu um hlutafé upp á 15 milljónir króna, bætur upp á 20 milljónir króna og afhendingu jarðefnis fyrir 8,1 milljón króna. Bætur frá Vegagerðinni nema 20 milljónum króna og kostnaður vegna afsala og landmerkinga í tengslum við það eru áætlaðar 2 milljónir króna. Viðaukinn varðar einnig mál 2017010005, Urðavegsbrekku og bæjarbrekku, en endurnýjun götu og hellulögn er 2,1 milljón króna meiri en áætlað var. Þessum viðaukum er mætt með lækkun á óráðstöfuðum kostnaði og óráðstöfuðum framkvæmdum. Nettó áhrif viðaukans á rekstur samstæðu Ísafjarðarbæjar eru kr. 0.
Til máls tóku: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti, Daníel Jakobsson, Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri og Kristján Andri Guðjónsson.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 6-0. Daníel Jakobsson, Kristín Hálfdánsdóttir og Jónas Þór Birgisson sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.

12.Viðauki 8 við fjárhagsáætlun 2017 - 2017010064

Lagður er fram viðauki 8 við fjárhagsáætlun 2017. Viðaukinn varðar mál 2016-10-0023, eða byggingu á fjölbýlishúsi með alls 13 íbúðum við Sindragötu 4a ísafirði. Sótt var um stofnframlag til byggingarinnar vegna 11 íbúða og verður 50% greitt út 2017 eða kr. 28.419.081. Áætlað er að 1/4 framkvæmdanna klárist 2017 eða um 55 milljónir króna og verður það fjármagnað af handbæru fé. Nettó áhrif viðaukans á rekstur samstæðu Ísafjarðarbæjar eru kr. 0.
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

13.Hestamannafélagið Hending - kröfugerð vegna reiðvallar - 2016050078

Forseti leggur til að bæjarstjórn tilnefni stjórnarmann í óstofnað einkahlutafélag um byggingu reiðskemmu.
Til máls tóku: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti,

Forseti leggur til að Sigurður Jón Hreinsson verði tilnefndur stjórnarmaður í óstofnuðu einkahlutafélagi um byggingu reiðskemmu.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 5-0. Daníel Jakobsson, Kristín Hálfdánsdóttir, Jónas Þór Birgisson og Marzellíus Sveinbjörnsson sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.

14.Endurskoðun samþykktar ungmennaráðs - 2012110034

Tillaga frá 177. fundi íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var 17. maí sl., um að samþykkja tillögur að breytingum á samþykkt um ungmennaráð.
Til máls tóku: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti, Kristján Andri Guðjónsson og Jónas Þór Birgisson.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

15.Endurskoðun erindisbréfs bæjarráðs Ísafjarðarbæjar - 2012110034

Tillaga frá 976. fundi bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, sem haldinn var 29. maí sl., um að samþykkja erindisbréf bæjarráðs Ísfjarðarbæjar.
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

16.Earth Check vottun - 2014120064

Tillaga frá 976. fundi bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, sem haldinn var 29. maí sl., um að staðfesta sameiginlega stefnu sveitarfélaga á Vestfjörðum um sjálfbæra þróun í umhverfislegu og félagslegu tillti.
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

17.Mótmæli gegn frumvarpi til laga um skipulag haf- og strandsvæða, 408. mál - 2017040044

Á 976. fundi bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, sem haldinn var 29. maí sl., var lagður fram tölvupóstur Sigrúnar Helgu Sigurjónsdóttur, f.h. nefndasviðs Alþingis, dagsettur 16. maí sl., þar sem Ísafjarðarbæ er sent til umsagnar frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða, 408. mál. Umsagnarfrestur er til 2. júní nk. Jafnframt var lagður fram tölvupóstur Aðalsteins Óskarssonar, f.h. Fjórðungssamband Vestfirðinga, dagsettur 26. maí sl., ásamt umsögnum um frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða, 408. mál. Bæjarráð fól bæjarstjóra að undirbúa umsögn Ísafjarðarbæjar um frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða og leggja fyrir bæjarstjórn.
Tillaga bæjarstjóra að umsögn Ísafjarðarbæjar liggja nú fyrir.
"Ísafjarðarbær telur að skipulagsvald yfir strandsvæðum ætti að fela sveitarfélögum og skilja það þannig frá skipulagsvaldi yfir hafsvæðum sem ætti að vera á hendi ríkisvaldsins. Slíkt fyrirkomulag er í eðlilegu og nauðsynlegu samhengi við skipulagsvald sveitarfélaga og styrkir um leið staðbundna sjálfbæra samfélagsþróun, náttúruvernd, atvinnulíf, og atvinnuþróun.
Verði frumvarpið óbreytt að lögum fer forgörðum kjörið tækifæri til valdeflingar sveitafélaga og eflingu þátttökulýðræðis. Það gæti orðið mikill drifkraftur í því verkefni að móta stefnu um skipulag strandsvæða ef frumkvæði heimamanna væri virkjað með því að færa þeim verkefnið. Búast má við að lærdómsferli íslensks samfélags yrði hraðara þegar fjölmörg sveitarfélög nálgast verkefnið á mismunandi forsendum en þó á sama grunni og unnið er að skipulagi í dag.
Í samfélaginu er mikil umræða um aukið íbúalýðræði. Nærtæk leið til að auka íbúalýðræði er að beina því m.a. í gegnum þann farveg sem nefndir sveitarfélaga og skipulagslög hafa þegar búið til. Metnaðarfull sveitarfélög hafa, undir eftirliti Skipulagsstofnunar, gert vandaðar skipulagsáætlanir á borð við aðalskipulag sveitarfélaga. Slík vinna er bæði samfélagslega eflandi og lýðræðisleg.
Víða um heim eru strandsvæðin innan einnar sjómílu utan við grunnlínu á skipulagsvaldi sveitarfélaga - þannig er það í Noregi. Í Svíþjóð og Finnlandi eru skipulagsmörk sveitarfélaga 12 sjómílur utan grunnlínu. Að auki miðast Vatnatilskipun Evrópusambandsins við eina sjómílu utan við grunnlínu. Það er tæpast nokkur ástæða til þess fyrir Íslendinga að halda í flókna og svifaseina miðstýringu að svo miklu leyti sem hægt er að greiða úr málum með skipulagsvaldi sveitarfélaga og því íbúalýðræði sem því fylgir. Gera má ráð fyrir að skipulagsmál yrðu skilvirkari, heildstæðari og einfaldari ef skipulagsvald á strandssvæðum yrði fært til sveitarfélaga.

Lágmarksbreytingar til þess að frumvarpið geti orðið að lögum í sátt telur Ísafjarðarbær að séu eftirfarandi:
a)
Að kveðið yrði á um að stefnt skuli að tilraunum með að færa vald yfir strandsvæðaskipulagi til sveitarfélaga, jafnvel þó að á öðrum stöðum verði svæðisráð rekin samhliða. Sveitarfélög á Austfjörðum og Vestfjörðum liggja sennilega best við þessari tilraun þar sem mikil umræða hefur farið fram á þeim svæðum um þessi mál og góð reynsla komin á skipulagsferli og áætlanir.
b)
Að í svæðisráði sem kveðið er á um í frumvarpinu hafi aðliggjandi sveitarfélög aukið vægi í svæðisráðinu auk þess sem sveitarfélögin hafi neitunarvald líkt og fulltrúar þeirra fimm ráðuneyta sem koma að svæðisráðinu.
c)
Í fumvarpinu kemur fram „ Við vinnslu frumvarpsins kom skýrt fram að brýnt væri að vinna sem fyrst strandsvæðisskipulag fyrir Vestfirði sökum mikillar eftirspurnar þar“ Mikil eftirspurn og áform eru um laxeldi á Austfjörðum og því mikilvægt að farið verið strax í samskonar vinnu á Austfjörðum og kveðið er á um í frumvarpinu að verði á Vestfjörðum."

Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

18.Kosning bæjarráðs, forseta bæjarstjórnar og 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar - 2014020030

Tillaga forseta um að Nanný Arna Guðmundsdóttir verði kosin forseti bæjarstjórnar, Kristján Andri Guðjónsson verði kjörinn 1. varaforseti bæjarstjórnar og Jónas Þór Birgisson verði kosinn 2. varaforseti bæjarstjórnar. Forseti leggur jafnframt til að Arna Lára Jónsdóttir verði kosin formaður bæjarráðs, Kristján Andri Guðjónsson og Daníel Jakobsson verði kosnir bæjarfulltrúar í bæjarráði og Marzellíus Sveinbjörnsson verði áheyrnarfulltrúi í bæjarráði.
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

19.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2017 - 2017020032

Lögð fram frumvörp og tillögur til þingsályktunar, sem nefndasvið Alþingis hefur sent Ísafjarðarbæ til umsagnar það sem af er ári 2017.
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti.

Frumvörpin lögð fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

20.Bæjarráð - 975 - 1705016F

Fundargerð 975. fundar bæjarráðs, sem haldinn var 22. maí sl. Fundargerðin er í 16 liðum.
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

21.Bæjarráð - 976 - 1705022F

Fundargerð 976. fundar bæjarráðs, sem haldinn var 29. maí sl. Fundargerðin er í 21 lið.
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

22.Fræðslunefnd - 379 - 1705012F

Fundargerð 379. fundar fræðslunefndar, sem haldinn var 18. maí sl. Fundargerðin er í 5 liðum.
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

23.Hafnarstjórn - 191 - 1705023F

Fundargerð 191. fundar hafnarstjórnar, sem haldinn var 30. maí sl. Fundargerðin er í 9 liðum.
Til máls tóku: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti, Kristján Andri Guðjónsson,

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

24.Íþrótta- og tómstundanefnd - 177 - 1705011F

Fundargerð 177. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, sem haldinn var 17. maí sl. Fundargerðin er í 9 liðum.
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

25.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 477 - 1705001F

Fundargerð 477. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 17. maí sl. Fundargerðin er í 14 liðum.
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

26.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 48 - 1705007F

Fundargerð 48. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, sem haldinn var 23. maí sl. Fundargerðin er í 1 lið.
Til máls tóku: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti, Daníel Jakobsson, Kristín Hálfdánsdóttir, Marzellíus Sveinbjörnsson, Sigurður Hreinsson og Gunnhildur Elíasdóttir.

Kristján Andri Guðjónsson leysti forseta af er hún tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:50.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?