Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
384. fundur 01. september 2016 kl. 12:00 - 12:58 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir forseti
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Arna Lára Jónsdóttir aðalmaður
  • Martha Kristín Pálmadóttir varamaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson aðalmaður
  • Sigurður Jón Hreinsson aðalmaður
  • Kristín Hálfdánsdóttir aðalmaður
  • Gunnhildur Björk Elíasdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Bæjarstjórnarfundir 2016 - 2016060042

Á 940. fundi bæjarráðs vísaði bæjarráð tillögum að dagsetningum bæjarstjórnarfunda til og með júní 2017, sem fram komu í minnisblaði Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 18. ágúst, til bæjarstjórnar.
Til máls tóku: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti og Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri.

Forseti leggur til að tillögum verði breytt þannig að fundur 5. janúar 2017 verði felldur niður og að fundur í júní verði haldinn 1. júní ekki 8. júní eins og fram kemur í tillögunni.

Forseti ber breytingartillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Fjórðungssamband Vestfirðinga - ýmis mál og fundargerðir 2016/2017 - 2016020005

Umræður um áherslur Ísafjarðarbæjar gagnvart Fjórðungssambandi Vestfirðinga vegna haustþings 2016.
Til máls tóku: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, Sigurður J. Hreinsson, Kristín Hálfdánsdóttir og Kristján Andri Guðjónsson.

Umræður fóru fram um málefni Fjórðungssambands Vestfirðinga.

3.Bæjarráð - 941 - 1608013F

Fundargerð 941. fundar bæjarráðs sem haldinn var 29. ágúst sl., fundargerðin er í 8 liðum.
Til máls tóku: Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri, Jónas Þór Birgisson, Marzellíus Sveinbjörnsson og Kristján Andri Guðjónsson.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:58.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?