Bæjarstjórn
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Ferðakostnaðar íþróttafélaga á landsbyggðunum - 2026040104
Mál tekið inn með afbrigðum að beiðni forseta bæjarstjórnar.
Til umfjöllunar í fjölmiðlum hefur verið málefni um háan ferðakostnað íþróttafélaga af landsbyggðinni sem mikið þurfa að sækja keppnir og mót til höfuðborgarsvæðisins.
KSÍ hefur skorað á yfirvöld íþróttamála, sveitarfélaga, ÍSÍ og UMFÍ, sem samþykkt var á ársþingi KSÍ sem fram fór á Egilsstöðum þann 28. febrúar 2026. Í henni var lýst verulegum áhyggjum af þeirri staðreynd að börn á landsbyggðinni búi við skert jafnrétti til íþróttaiðkunar vegna ferðakostnaðar, vinnutaps foreldra og fjarveru barna frá námi.
Leggur forseti til að taka undir bókun Múlaþings í málinu og samþykkja eftirfarandi bókun.
"Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar tekur undir áskorun Knattspyrnusamband Íslands um að grípa þurfi til aðgerða til að jafna aðstöðumun barna og ungmenna til íþróttaiðkunar óháð búsetu.
Bæjarstjórn telur ljóst að hér sé um kerfislægt misrétti að ræða sem er óásættanlegt. Íþróttaiðkun barna er ekki munaður heldur grundvallarþáttur í lýðheilsu, félagslegri þátttöku og uppbyggingu samfélaga. Þegar fjölskyldur standa frammi fyrir milljónakostnaði vegna þátttöku barna sinna er ljóst að jafnræði er ekki til staðar.
Bæjarstjórn skorar því á stjórnvöld að taka höndum saman með íþróttahreyfingunni og sveitarfélögum um að tryggja raunhæfan og markvissan stuðning við ferðakostnað barna og ungmenna. Það er ekki ásættanlegt að búseta barna á Íslandi ráði því hvort þau geti tekið þátt í íþróttum. Ef ekkert er að gert mun þessi þróun grafa undan bæði jafnrétti og uppbyggingu íþróttastarfs á landsbyggðinni.
Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að koma bókun þessari á framfæri við viðeigandi ráðherra."

Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
2.Slit Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks - 2026040011
Tillaga frá 1366. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 9. apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki tillögu stjórnar Byggðasamlags Vestfjarða um að starfsemi verði hætt og félaginu slitið.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
3.Pollgata - Göngustígur, lagnir og færsla sjóvarna - 2026030069
Tillaga frá 269. fundi hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 9. apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki að gerð verði frumkostnaðaráætlun við Edinborgar- og Bæjarbryggju. Einnig er lagt til við bæjarstjórn að gert verði ráð fyrir framkvæmdum í 5 ára fjárfestingaráætlun.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
4.Skipulag á hafnarsvæðum vegna móttöku skemmtiferðaskipa - Sundabakki - 2024100012
Tillaga frá 269. fundi hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 9. apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila breytingu deiliskipulags við harðviðarbryggju, þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustuaðila m.t.t. húsnæði og aðstöðu.
Hafnarstjóra er falið að boða til fundar með hagsmunaaðilum.
Hafnarstjóra er falið að boða til fundar með hagsmunaaðilum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
5.Gjaldskrár skólaárið 2026-2027 - 2026030290
Tillaga frá 40. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 1. apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki að eftirfarandi gjaldskrár haldist óbreyttar milli ára sem framlag Ísafjarðarbæjar til að mæta áhrifum verðbólgu á fjölskyldur:
-Leikskólar og dagforeldrar
-Skíðasvæði og leiga á skíðabúnaði
-Sundlaugar, líkamsrækt og íþróttahús
-Grunnskólar, leigu- og þjónustugjöld
-Dægradvöl
-Íþróttaskóli
Nefndin leggur jafnframt til að gjaldskrá skólaskrifstofu hækki um 4%.

Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
6.Breyting á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020. Hvítisandur, Önundarfirði. - 2026030225
Tillaga frá 669. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 31. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila kynningu á vinnslutillögu breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 á Hvítasandi, Önundarfirði í landi Þórustaða undir nýtt verslunar- og þjónustusvæði fyrir sjóböð, sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Aðalskipulagsbreytingin er unnin skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fellur einnig undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Áður en tillaga að breytingum á aðalskipulagi er tekin formlega til afgreiðslu í bæjarstjórn, skal tillagan, forsendur hennar og umhverfismat, þegar við á, kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.
Áður en tillaga að breytingum á aðalskipulagi er tekin formlega til afgreiðslu í bæjarstjórn, skal tillagan, forsendur hennar og umhverfismat, þegar við á, kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
7.Hvítisandur, Önundarfirði. Nýtt deiliskipulag í landi Þórustaða - 2026030226
Tillaga frá 669. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 31. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila kynningu vinnslutillögu á nýju deiliskipulagi sjóbaða við Hvítasand, í landi Þórustaða í Önundarfirði, sbr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010. Deiliskipulagið fellur einnig undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Við kynningu á vinnslutillögu á nýju deiliskipulagi Hvítasands í landi Þórustaða gerðu nefndarmenn athugasemd við niðurstöðu áhrifa framkvæmdanna á samfélag. Skipulagsráðgjafi Eflu uppfærir greinargerð deiliskipulags.
Áður en tillaga að deiliskipulagi er tekin formlega til afgreiðslu í bæjarstjórn, skal tillagan, forsendur hennar og umhverfismat, þegar við á, kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.
Við kynningu á vinnslutillögu á nýju deiliskipulagi Hvítasands í landi Þórustaða gerðu nefndarmenn athugasemd við niðurstöðu áhrifa framkvæmdanna á samfélag. Skipulagsráðgjafi Eflu uppfærir greinargerð deiliskipulags.
Áður en tillaga að deiliskipulagi er tekin formlega til afgreiðslu í bæjarstjórn, skal tillagan, forsendur hennar og umhverfismat, þegar við á, kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
8.Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði - 2025120103
Tillaga frá 5. fundi nefndar um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði, en fundur var haldinn 8. apríl 2026, um að bæjarstjórn samþykki að hefja viðræður við Oddfellow um kaup á húsnæði þeirra við Aðalstræti á Ísafirði og hafin verði undirbúningur á kaupum og endurbótum húsnæðisins sem gert verði ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2027.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.
Nanný Arna Guðmundsdóttir lagði fram eftirfarandi breytingatillögu sem gengur skemur en tillaga nefndarinnar:
"Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkir tillögu nefndar um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla Ísafjarðarbæjar um að hefja viðræður við Oddfellow um möguleg kaup á húsnæði þeirra við Aðalstræti á Ísafirði."
Forseti bar breytingatillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
Telst upphafleg tillaga nefndarinnar þar með felld.

9.Bæjarráð - 1366 - 2604002F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1366. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 9. apríl 2026.
Fundargerðin er í 7 liðum.
Fundargerðin er í 7 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
10.Hafnarstjórn - 269 - 2603019F
Lögð fram til kynningar fundargerð 269. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 9. apríl 2026.
Fundargerðin er í 8 liðum.
Fundargerðin er í 8 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
11.Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði - 5 - 2603015F
Lögð fram til kynningar fundargerð nefndar um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði, en fundur var haldinn 8. apríl 2026.
Fundargerðin er í 1 lið.
Fundargerðin er í 1 lið.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
12.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 40 - 2603025F
Lögð fram til kynningar fundargerð 40. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 1. apríl 2026.
Fundargerðin er í 4 liðum.
Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
13.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 41 - 2604005F
Lögð fram til kynningar fundargerð 41. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 8. apríl 2026.
Fundargerðin er í 1 lið.
Fundargerðin er í 1 lið.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
14.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 669 - 2603020F
Lögð fram til kynningar fundargerð 669. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 31. mars 2026.
Fundargerðin er í 20 liðum.
Fundargerðin er í 20 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
15.Velferðarnefnd - 501 - 2604001F
Lögð fram til kynningar fundargerð 501. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 8. apríl 2026.
Fundargerðin er í 2 liðum.
Fundargerðin er í 2 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 17:22.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt 9-0.