Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
569. fundur 01. apríl 2026 kl. 15:00 - 15:52 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson aðalmaður
  • Dagný Finnbjörnsdóttir varamaður
    Aðalmaður: Jóhann Birkir Helgason
  • Kristján Þór Kristjánsson annar varaforseti
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Einar Magnússon varaforseti
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir forseti
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri
  • Þorbjörn Halldór Jóhannesson aðalmaður
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Ársreikningur Ísafjarðarbæjar 2025 - 2025120097

Bæjarstjóri leggur fram til fyrri umræðu ársreikning Ísafjarðarbæjar, stofnana hans og fyrirtækja fyrir starfsárið 2025.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri, og Gylfi Ólafsson.

Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri, leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd Í-listans:

"Ársreikningur Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2025 er lagður hér fram til fyrri umræðu. Rekstur Ísafjarðarbæjar heldur áfram að styrkjast en það gekk vel árið 2025. Reksturinn skilaði afgangi sem nemur 671 milljónum króna og skuldir lækkuðu um 2 milljarða. Því er óhætt að segja að árið 2025 hafi verið ár skuldalækkunar.

Góð tök hafa náðst á grunnrekstri sveitarfélagsins en tvö atriði skýra stærstan hluta fráviks milli fjárhagsáætlunar og ársreiknings. Hækkun lífeyrisskuldbindingar varð 208 m.kr. meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Með sölunni á hjúkrunarheimilinu Eyri voru uppsafnað tap, fyrirsjáanlegur hallarekstur og viðhaldsþörf bókfærð og afgreidd í einu lagi með 625 m.kr. framlagi.

Skuldahlutfall A og B hluta er 88,4 % í lok árs 2025 en var árið áður 111,7%. Skuldahlutfallið hjá A hluta hækkaði lítillega á milli ára og er 111,8% árið 2025 en var 108,3% árið 2024. Ástæða þessa eru fyrrgreind áhrif af sölunni á Eyri. Skuldaviðmið A og B hluta er 57,7% og 74,4% fyrir A hluta.

Veltufé frá rekstri í hlutfalli við rekstrartekjur var 14,5% en var 19,5% á árinu 2024. Handbært fé hækkaði lítillega frá fyrra ári og var handbært fé í árslok 2025 kr. 683 m.kr.
Á síðasta ári var framkvæmt og fjárfest fyrir ríflega 900 milljónir króna. Umfangsmestu fjárfestingarnar voru á höfninni og fráveituframkvæmdir og gatnagerð. Þá hófust framkvæmdir við byggingu nýrrar slökkvistöðvar en fyrsta skóflustungan var tekin 5. september.

Það er alltaf nauðsynlegt að sýna ráðdeild og aðgæslu í rekstri. Það er krefjandi að reka sveitarfélag og má lítið útaf bera. Ársreikningur ársins 2025 er þó til marks um það og horfum við bjartsýn fram á veginn.

Í upphafi kjörtímabilsins ákvað Í-listinn að setja sér metnaðarfull fjárhagsleg markmið. Skemmst er frá því að segja að þau hafa nær öll náðst. Það er auðvitað ekki einungis góðum rekstri sveitarfélagsins að þakka heldur umsvifum í fjölbreyttu atvinnulífi og góðum tekjum hafnarinnar og að því þarf að hlúa.

Þá má ekki skauta fram hjá þeirri staðreynd að samstarf og samtakamáttur í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur verið með eindæmum gott á yfirstandandi kjörtímabili. Öll höfum við haft að leiðarljósi að vinna að framgangi samfélagsins til góðs með ábyrgð að leiðarljósi."

Forseti bar upp til atkvæða tillögu um að vísa ársreikningi Ísafjarðarbæjar, stofnana hans og fyrirtækja fyrir starfsárið 2025, til síðari umræðu og samþykktar.

2.Beiðni um fjölgun stöðugilda á skrifstofu velferðarsviðs - 2026030185

Tillaga frá 500. fundi velferðarnefndar, en fundur var haldinn 19. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki að fjölga stöðugildum um tvö á skrifstofu velferðarsviðs, þ.e. 100% staða verkefnastjóra og 100% staða ráðgjafa.

Bókun velferðarnefndar var eftirfarandi:
Velferðarnefnd tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í greinargerð um aukið álag og breyttar forsendur í velferðarþjónustu sveitarfélagsins.
Ljóst er að umfang mála og flækjustig hefur aukist verulega á undanförnum misserum, bæði innan barnaverndar og félagsþjónustu, sem og vegna aukinna verkefna tengdum málefnum fatlaðra og móttöku flóttamanna. Fyrir liggur að fjöldi mála hefur farið fram úr fyrri áætlunum og að álag á starfsfólk er orðið verulegt.
Nefndin leggur áherslu á að þjónusta við börn og fjölskyldur, sem og aðra viðkvæma hópa, sé ávallt í samræmi við lögbundnar skyldur og fagleg viðmið. Tryggja þarf að starfsfólk hafi raunhæfan málafjölda og svigrúm til að sinna verkefnum sínum með þeim gæðum sem krafist er.
Með hliðsjón af framangreindu telur velferðarnefnd nauðsynlegt að bregðast við með því að efla mannafla á velferðarsviði og styður því ráðningu bæði verkefnastjóra í félagsþjónustu og ráðgjafa í barnavernd í 100% stöðugildi hvort.
Nefndin áréttar að í vaxandi samfélagi er mikilvægt að uppbygging þjónustu haldist í hendur við fjölgun íbúa og auknar kröfur til opinberrar þjónustu. Velferð, öryggi og hagsmunir íbúa skulu ávallt vera í forgrunni við ákvarðanatöku.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - launaáætlun velferðarsviðs - 2025120020

Tillaga frá 1365. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 26. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 5 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026, vegna breytinga á launaáætlun velferðarsviðs Ísafjarðarbæjar.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000,
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Skipulag leikskóla á Ísafirði - 2026030273

Tillaga frá 1363. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki sviðsmynd 4 samkvæmt minnisblaði sviðsstjóra, dags. 12. febrúar 2026, þ.e. að leggja niður leikskólann Tanga sem sjálfstæða leikskólaeiningu og færa starfsemina undir leikskólann Sólborg, sem deild fyrir elstu börnin.
Samhliða er lagt til við bæjarstjórn að samþykkja að færanlegar einingar verði keyptar og staðsettar við Sólborg og Eyrarskjól, til að rúma fjölgun á leikskólabörnum þar frá hausti 2026, og þar til varanleg lausn fæst í húsnæðismálum leikskóla.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, Nanný Arna Guðmundsdóttir, Elísabet Samúelsdóttir, Gylfi Ólafsson, og Sigríður Júlía Brynleifsdóttir.

Elísabet Samúelsdóttir, leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd B-lista Framsóknarflokks:
"Tangi hefur verið starfræktur sem sjálfstæður leikskóli fyrir 5 ára börn á Ísafirði frá árinu 2023, en áður var hann deild innan leikskólans Sólborgar frá árinu 2019. Tangi var stofnaður til að mæta aukinni þörf fyrir leikskólapláss í sveitarfélaginu, auk þess sem markmiðið var að efla tengingu milli leikskóla og grunnskóla fyrir elstu börnin.

Framan af þessu skólaári hefur verið veruleg mönnunarvandi við skólann, sem hefur haft í för með sér rask á starfi og óvissu fyrir bæði börn og foreldra. Gripið hefur verið til fáliðunaráætlana og grunnþættir í stjórnsýslu eins og gerð skólanámskrá hafa setið á hakanum. Í nóvember voru því 10 börn flutt yfir á Eyrarskjól til að bregðast við stöðunni.

Fagleg sjónarmið styðja að börn ljúki leikskólagöngu sinni á sama stað. Fyrir sum börn getur reynst krefjandi að skipta um umhverfi í eitt ár og síðan aftur við upphaf grunnskóla. Fyrir önnur felur slíkt þó í sér spennandi og þroskandi breytingu. Sérstaklega getur þetta reynst erfitt fyrir foreldra barna með miklar og krefjandi stuðningsþarfir.

Aðstæður á Tanga hafa einnig kallað á endurskoðun. Húsnæðið er of lítið fyrir stærri árganga, lóð ógirt og aðgengi erfitt. Þá hefur skort aðstöðu fyrir mötuneyti og hafa börnin því borðað í Grunnskóla Ísafjarðar, sem áður var kostur vegna nálægðar og tengingar við skólastigið. Nú hefur hins vegar nemendum þar fjölgað og orðið þröngt um nemendur, þar með talið í mötuneytinu. Börn á Tanga hafa því haft takmarkaðan tíma til að neyta hádegisverðar.

Með því að sameina starfsemina við hina tvo leikskólana skapast tækifæri til að nýta betur þann mannauð sem er af skornum skammti, auka stöðugleika í starfi og efla samvinnu og miðlun þekkingar. Jafnframt má búast við lægri rekstrarkostnaði og minni rekstraráhættu.

Framsókn hefur stutt starfsemi Tanga í gegnum árin og verið ánægð með það góða starf sem þar hefur verið unnið. Hins vegar er ljóst, miðað við núverandi stöðu, mönnunarvanda, húsnæðisskort og sjónarmið um samfellu og öryggi barna að ráðast þurfi í breytingar.

Mikilvægt er að mótuð verði skýr stefna innan hinna tveggja leikskólanna um starf með 5 ára börnum og að áfram verði byggt á því góða starfi sem þróaðist á Tanga. Þar má nefna aukna áherslu á útinám, hreyfingu og verkefni á borð við gönguskíðakennslu. Einnig er mikilvægt að börn á elsta ári leikskóla fái reglulega tækifæri til að hittast og kynnast áður en þau hefja nám í grunnskóla, sem og að tenging þeirra við grunnskólann verði efld enn frekar.

Fyrir mörg börn hefur það verið spennandi að stíga nýtt skref og fara úr sínum hefðbundna leikskóla yfir á Tanga. Mikilvægt er að áfram verði boðið upp á slíkar jákvæðar áskoranir á þessu stigi. Til að byrja með verður starfsemin að öllum líkindum í sérhæfðum leikskólaeiningum, sem geta jafnframt skapað svigrúm til að þróa starfið í takt við skýra stefnu.

Á síðasta ári var talsverð umræða um starfsemi Tanga, aðbúnað og aðstæður, sem rataði meðal annars í fjölmiðla og var oft á tíðum neikvæð fyrir alla sem komu að málinu. Mikilvægt er að samskipti heimila og skóla séu ávallt uppbyggileg, með góðri upplýsingagjöf, gagnkvæmu trausti og virðingu. Slíkt stuðlar að betri starfsaðstæðum fyrir kennara og auknu öryggi foreldra gagnvart velferð barna sinna.

Ný stefna getur, ef vel tekst til, orðið liður í að leysa þann mönnunarvanda sem leikskólarnir standa frammi fyrir. Húsnæðismál eru í vinnslu og mikilvægt er að þau gangi hratt fyrir sig svo ekki komi til skerðingar á skólastarfi eða töfum á inntöku nýrra barna. Samkvæmt þeirri sviðsmynd sem skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd hefur lagt fram fyrir bæjarstjórn er gert ráð fyrir að öll börn fædd árið 2025 geti fengið leikskólapláss innan ásættanlegra tímamarka.

Framsókn leggur jafnframt áherslu á að samhliða uppbyggingu húsnæðis verði horft markvisst til vinnuaðstæðna starfsfólks og leitað leiða til að laða að og halda í menntaða leikskólakennara. Með því er hægt að styrkja starf leikskólanna til framtíðar og tryggja börnum öruggt og uppbyggilegt námsumhverfi."

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 6 - launaáætlun og færanleg kennslurými - 2025120020

Tillaga frá 1365. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 26. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 6 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026 vegna breytinga á launaáætlun og kaupa á færanlegum kennslurýmum.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000,
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, og Kristján Þór Kristjánsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Gjaldskrár 2026 - gjaldskrá um vatnsgjald, notkunargjald, mælaleigu og heimæðargjald í Ísafjarðarbæ - 2025050026

Tillaga frá 167. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 25. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki textaútgáfu af gjaldskrár Ísafjarðarbæjar fyrir vatnsgjald, notkunargjald, mælaleigu og heimæðargjald í Ísafjarðarbæ, vegna ársins 2026.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Kosningar til sveitarstjórnar 2026 - 2026030237

Tillaga forseta um að bæjarstjórn samþykki að kjörstaðir verði eftirfarandi í kosningum til sveitarstjórnar 16. maí 2026:

Í Skutulsfirði: Í Grunnskólanum á Ísafirði, þar verði þrjár kjördeildir.
Í Súgandfirði: Í Grunnskólanum á Suðureyri, þar verði ein kjördeild.
Í Önundarfirði: Í Grunnskóla Önundarfjarðar, þar verði ein kjördeild.
Í Dýrafirði: Í Grunnskólanum á Þingeyri, þar verði ein kjördeild.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Samþykkt um búfjárhald - 2025 - 2025070010

Tillaga frá 160. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 18. september 2025, og frá 1357. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 29. janúar 2026, um að bæjarstjórn samþykki nýja samþykkt um búfjárhald.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Stjórn Lýðskólans á Flateyri 2026 - 2026030177

Tillaga frá 1364. fundi bæjarráðs, um að bæjarstjórn samþykki að skipa Nanný Örnu Guðmundsdóttur í stjórn Lýðskólans á Flateyri.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

10.Bæjarráð - 1364 - 2603011F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1364. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 19. mars 2026.

Fundargerðin er í 6 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

11.Bæjarráð - 1365 - 2603018F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1365. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 23. mars 2026.

Fundargerðin er í 9 liðum.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Lagt fram til kynningar.

12.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 167 - 2603016F

Lögð fram til kynningar fundargerð 167. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 25. mars 2026.

Fundargerðin er í 5 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

13.Velferðarnefnd - 499 - 2602013F

Lögð fram til kynningar fundargerð 99. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 12. mars 2026.

Fundargerðin er í 1 lið.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

14.Velferðarnefnd - 500 - 2603012F

Lögð fram til kynningar fundargerð 500. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 19. mars 2026.

Fundargerðin er í 5 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:52.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?