Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
568. fundur 19. mars 2026 kl. 17:00 - 17:46 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson aðalmaður
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
  • Kristján Þór Kristjánsson annar varaforseti
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Einar Magnússon varaforseti
  • Dagný Finnbjörnsdóttir varamaður
    Aðalmaður: Steinunn Guðný Einarsdóttir
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri
  • Þorbjörn Halldór Jóhannesson aðalmaður
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 4 - ólympíufarar - 2025120020

Tillaga frá 1362. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 5. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 4 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026 vegna styrkveitinga til tveggja Ólympíuleikafara.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000,
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, varaforseti, og Gylfi Ólafsson.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Farsældarráð Vestfjarða - 2025090182

Tillaga frá 1362. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 5. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki að Fjölnir Ásbjörnsson verði tilnefndur fulltrúi foreldra í farsældarráði og að Sigríður Júlía Brynleifsdóttir verði varafulltrúi í stjórn farsældarráðs.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Þjónustusamningur Björgunarsveitin Björg - 2025110114

Tillaga frá 1363. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. mars 2026, um að um bæjarstjórn samþykki þjónustusamning við Björgunarsveitina Björgu á Suðureyri fyrir árin 2026-2030.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Bæjarráð - 1362 - 2603004F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1362. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 5. mars 2026.

Fundargerðin er í 9 liðum.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, varaforseti, og Gylfi Ólafssson.

Lagt fram til kynningar.

5.Bæjarráð - 1363 - 2603007F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1363. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. mars 2026.

Fundargerðin er í 14 liðum.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, varaforseti, Gylfi Ólafssson, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Lagt fram til kynningar.

6.Hafnarstjórn - 268 - 2603001F

Lögð fram til kynningar fundargerð 268. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 6. mars 2026.

Fundargerðin er í 10 liðum.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, varaforseti, Jóhann Birkir Helgason, Gylfi Ólafsson, Nanný Arna Guðmundsdóttir, og Jóhann Birkir Helgason.

Lagt fram til kynningar.

7.Menningarmálanefnd - 179 - 2602024F

Lögð fram til kynningar fundargerð 179. fundar menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 5. mars 2026.

Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, varaforseti, og Elísabet Samúelsdóttir.

Lagt fram til kynningar.

8.Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði - 4 - 2603006F

Lögð fram til kynningar fundargerð 4. fundar nefndar um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði, en fundur var haldinn 11. mars 2026.

Fundargerðin er í 1 lið.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Lagt fram til kynningar.

9.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 668 - 2602017F

Lögð fram til kynningar fundargerð 668. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 5. mars 2026.

Fundargerðin er í 18 liðum.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, varaforseti, Nanný Arna Guðmundsdóttir og Gylfi Ólafsson.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:46.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?