Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
567. fundur 05. mars 2026 kl. 17:00 - 17:37 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson aðalmaður
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
  • Kristján Þór Kristjánsson annar varaforseti
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Einar Magnússon varaforseti
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir forseti
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri
  • Þorbjörn Halldór Jóhannesson aðalmaður
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Forseti óskar eftir að taka inn eitt mál með afbrigðum, með heimild í 16. gr. bæjarmálasamþykktar, sem yrði nr. 1 á dagskrá, varðandi forkaupsrétt vegna sölu skipsins Leynis Ís-16.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Samþykkt 9-0.

1.Leynir ÍS-16, skn. 2325 - forkaupsréttur - 2026030047

Tillaga frá 1362. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 5. mars 2026, um að bæjarstjórn samþykki að hafna forkaupsrétti að skipinu Leyni Ís-16, að fjárhæð kr. 55.000.000.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.
Magnús Einar Magnússon vék af fundi kl. 17.05 vegna vanhæfis.

2.Þjónustusamningur Björgunarsveitin Sæbjörg 2026 - 2026020100

Tillaga frá 1360. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 19. febrúar 2026, um að bæjarstjórn samþykki þjónustusamning við Björgunarsveitina Sæbjörgu til 5 ára.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, og Magnús Einar Magnússon.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 8-0.
Magnús koma aftur til fundar kl. 17.06.

3.Loftslagsstefna Ísafjarðarbæjar - 2025060021

Tillaga frá 166. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 25. febrúar 2026, um að bæjarstjórn samþykki Loftslagsstefnu Ísafjarðarbæjar, og felli þar með út gildi Umhverfisstefnu Ísafjarðarbæjar frá árinu 2017.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri, Gylfi Ólafsson, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Bæjarstjóri leggur fram tillögu þess efnis að fresta afgreiðslu á málinu þar til aðgerðaáætlun með Loftslagsstefnu Ísafjarðarbæjar hefur verið unnin. Með því er meiri trygging fyrir fjármögnun aðgerða og skýrara hvað sveitarfélagið ætlar að gera sem byggir á Loftslagsstefnunni.

Forseti bar frestunartillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 3 - framkvæmdaáætlun grafa - 2025120020

Tillaga frá 1361. fundi bæjarráðs, en fundur var haldin þann 26. febrúar 2026, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 3 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026 vegna breytinga á framkvæmdaáætlun 2026.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er kr. 0,
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 eða óbreytt afkoma í kr. 274.600.000.
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 eða óbreytt afkoma í kr.
581.600.000.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Reglur um innritun og dvöl barna í leikskólum Ísafjarðarbæjar. - 2026020067

Tillaga frá 39. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar sem haldin var þann 16. febrúar 2026 um að bæjarstjórn samþykki uppfærðar reglur um innritun og dvöl barna í leikskólum Ísafjarðarbæjar.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Endurskoðaðar reglur um skólahverfi, umsókn og innritun í grunnskóla Ísafjarðarbæjar - 2026010247

Tillaga frá 39. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar sem haldin var þann 16. febrúar 2026, um að bæjarstjórn samþykki uppfærðar reglur um skólahverfi, umsókn og innritun í grunnskóla Ísafjarðarbæjar.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, Nanný Arna Guðmundsdóttir, og Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Bæjarráð - 1360 - 2602018F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1360. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 19. febrúar 2026.

Fundargerðin er í 11 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

8.Bæjarráð - 1361 - 2602022F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1361. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 26. febrúar 2026.

Fundargerðin er í 5 liðum.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson og Sigríður Júlía Brynleifsdóttir.

Lagt fram til kynningar.

9.Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði - 3 - 2602015F

Lögð fram til kynningar fundargerð nefndar um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði, en fundur var haldinn 18. febrúar 2026.

Fundargerðin er í 1 lið.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, Jóhann Birkir Helgason, Gylfi Ólafsson og Kristján Þór Kristjánsson.

Lagt fram til kynningar.

10.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 39 - 2602014F

Lögð fram til kynningar fundargerð 39. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 16. febrúar 2026.

Fundargerðin er í 3 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

11.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 166 - 2602021F

Lögð fram til kynningar fundargerð 166. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 25. febrúar 2026.

Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson, Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri, og Gylfi Ólafsson.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:37.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?