Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
559. fundur 16. október 2025 kl. 17:00 - 17:42 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson aðalmaður
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
  • Kristján Þór Kristjánsson annar varaforseti
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Einar Magnússon varaforseti
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir forseti
  • Sædís Ólöf Þórsdóttir varamaður
    Aðalmaður: Elísabet Samúelsdóttir
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri
  • Þorbjörn Halldór Jóhannesson aðalmaður
Starfsmenn
  • Arndís Dögg Jónsdóttir skjalastjóri
Fundargerð ritaði: Arndís Dögg Jónsdóttir skjalastjóri
Dagskrá
Forseti óskar eftir að taka eitt mál inn með afbrigðum, með heimild í 16. gr. bæjarmálasamþykktar, sem yrði nr. 14 á dagskrá, Stjórn Blábanka 2025.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Samþykkt 9-0.

1.Gjaldskrár 2026 - félagslegt húsnæði - 2025050026

Tillaga frá 1343. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 13. október 2025, um að bæjarstjórn samþykki gjaldskrá um félagslegt húsnæði, svo og þær tillögur sem fram koma í minnisblaði um verklag við breytingu gjaldskrár.

Lagt er til að almenn hækkun á leiguverði félagslegar íbúða verði 20% og verð per m2 fari úr 1767 kr. í 2120 kr. per m2 miðað við vísitölu 1. október 2025 sem þá er 657,6 og taki hún svo vísitöluhækkun frá þeim tíma.
Ekki er lögð til nein breyting á leiguverði þjónustuíbúða aldraðra önnur en almenn vísitöluhækkun samkvæmt samningum.
Lagt er til að farið verði að 37. gr. húsaleigulaga nr. 36 frá 1994 þar sem segir að þegar meira en 12 mánuðir séu liðnir frá gildistöku leigusamnings getur leigusali farið fram á hækkun leigufjárhæðar.
Þessi vinna þarf að vera gerð í mikilli samvinnu velferðarsviðs og Fasteigna Ísafjarðarbæjar.
Samhliða framkvæmi velferðarsvið félagslegt mat á aðstæðum leigjenda skv. reglum Ísafjarðarbæjar um félagslegt leiguhúsnæði. Þeim yrði sagt upp sem ekki uppfylla skilyrði reglnanna.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti og Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Gjaldskrár 2026 - velferðarsvið og tekjutenging fasteignagjalda - 2025050026

Tillaga frá 493. fundi velferðarnefndar, en fundur var haldinn 2. október 2025, um að bæjarstjórn samþykki gjaldskrá velferðarsviðs 2026, og að farið verði að tillögu B um afslátt af fasteignagjöldum aldraðra og öryrkja 2026, en uppfærðar reglur verði lagðar fram til samþykktar á næsta fundi.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti og Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Endurskoðun reglna um heimaþjónustu - 2023020071

Tillaga frá 493. fundi velferðarnefndar, en fundur var haldinn 2. október 2025, um að bæjarstjórn að samþykkja breytingar á reglum um heimaþjónustu, en um er að ræða breytingar á upphæðum í reglum um stuðningsþjónustu Ísafjarðarbæjar og að þær verði eftirleiðis birtar í gjaldskrá velferðarsviðs.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti og Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 2024 - endurskoðun á tekjuviðmiðum - 2024100024

Tillaga frá 493. fundi velferðarnefndar, en fundur var haldinn 2. október 2025, um að bæjarstjórn samþykki breytingar á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning, en um er að ræða endurskoðun á tekjuviðmiðum fyrir 2026.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Skilmálar vegna úthlutunar styrkja til menningarmála - 2025100025

Tillaga frá 178. fundi menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 8. október 2025, um að bæjarstjórn samþykki breytingar á reglum Ísafjarðarbæjar um úthlutun styrkja til menningarmála og samþykkir tillögur sviðsstjóra samkvæmt minnisblaði um einföldum verklags vegna stjórnsýslu menningarstyrkja.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar - viðaukar 3-12 vegna fullnaðarsamþykkta - 2025080144

Tillaga frá 1341. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 29. september 2025, um að bæjarstjórn samþykki breytingar á samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og viðauka nr. 3-12, með þeim breytingum sem fram koma í minnisblaði sviðsstjóra, og hafa nú verið færðar inn í framlögð skjöl.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Sorphirða og -förgun - útboð 2025 - 2024100021

Tillaga frá 160. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar, sem haldinn var 18. september 2025, um að bæjarstjórn samþykki að Ísafjarðarbær fjárfesti í moltustöð og komi sér upp húsnæði og sjái sjálft um daglegan rekstur. Gera þarf ráð fyrir fjárfestingu í framkvæmdaáætlun.

Og jafnframt að bæjarstjórn veiti umhverfis- og eignasviði heimild til að auglýsa útboð á sorphirðu og förgun í Ísafjarðarbæ á grundvelli framangreindra útboðsdraga og óbreytts fyrirkomulags þjónustunnar.

Málið var jafnframt tekið fyrir á 1342. fundi bæjarráðs, þann 6. október 2025, þar sem bæjarráð tók undir tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar.

Á 558. fundi bæjarstjórnar, þann 30. september 2025, var málið tekið fyrir en afgreiðslu frestað.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, Kristján Þór Kristjánsson, Jóhann Birkir Helgason og Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Samstarfssamningur - Kómedíuleikhúsið - 2005090047

Tillaga frá 178. fundi menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 8. október 2025, um að bæjarstjórn samþykki endurnýjun samstarfssamning Ísafjarðarbæjar og Kómedíuleikhússins til næstu 3 ára, en núgildandi samningur rennur út í lok árs 2025. Þá leggur nefndin til að fjárhæð samningsins hækki úr kr. 1.750.000 í kr. 2.000.000 árlega.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Björgunarbátasjóður - endurnýjun á björgunarskipi á Ísafirði - 2025050183

Tillaga frá 264. fundi hafnarstjórnar, sem haldinn var 1. október 2025, um að bæjarstjórn samþykki samning um afnot af björgunarskipinu Gísla Jóns sem varalóðs, en samningurinn gildir til ársins 2029, og greiðsla pr. ár er kr. 5.000.000.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

10.Þjónustusamningur Björgunarsveitin Tindar - 2025090185

Tillaga frá 1342. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 6. október 2025, um að bæjarstjórn samþykki nýjan þjónustusamning við Björgunarsveitina Tinda í Hnífsdal til 5 ára.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti og Sigríður Júla Brynleifsdóttir, bæjarstjóri.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

11.Skíðheimar Seljalandsdal - fasteignagjöld 2026-2030 - 2025090062

Tillaga frá 1340. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 22. september 2025, um að bæjarstjórn samþykki endurnýjun samnings til 5 ára og að forsenda samnings sé ekki bundin við uppbyggingu sögusýningar Skíðafélags Ísfirðinga, heldur megi sjá fyrir sér notkun hússins í tengslum við íþrótta- og tómstundastarfsemi, s.s. skotíþróttir, mótorkross og fjallahjólreiðar.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

12.Starfsendurhæfing Vestfjarða 2025 - 2025080089

Tillaga frá 493. fundi velferðarnefndar, en fundur var haldinn 2. október 2025, um að bæjarstjórn samþykki samning við Starfsendurhæfingu Vestfjarða, en um er að ræða tilraunarverkefni til eins árs, í formi mánaðarlegs fjárframlags sem nýtist til virkniúrræða sem efla vinnufærni einstaklinga. Kostnaður vegna úrræðisins getur að hámarki orðið kr. 7.200.000 á samningstímanum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

13.Farsældarráð Vestfjarða - 2025090182

Tillaga frá 1343. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 13. október 2025, um að bæjarstjórn samþykki framlagðar tillögur að samningi, skipuriti og starfsreglum farsældarráðs Vestfjarða.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti og Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

14.Stjórn Blábanka 2025 - 2025100098

Mál tekið inn með afbrigðum.

Kjósa þarf nýjan aðal- og varafulltrúa í stjórn Blábanka á Þingeyri f.h. Ísafjarðarbæjar, en aðalfundur verður haldinn síðar í október. Bæjarstjóri leggur til að Svanlaug Másdóttir verði kosin aðalfulltrúi, og Tinna Ólafsdóttir varafulltrúi.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

15.Bæjarráð - 1342 - 2510002F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1342. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 6. október 2025.

Fundargerðin er í 7 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

16.Bæjarráð - 1343 - 2510010F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1343. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 13. október 2025.

Fundargerðin er í 18 liðum.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson, Jóhann Bikir Helgason, Gylfi Ólafsson og Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri.

Lagt fram til kynningar.

17.Hafnarstjórn - 264 - 2509024F

Lögð fram til kynningar fundargerð 264. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 1. október 2025.

Fundargerðin er í 7 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

18.Menningarmálanefnd - 178 - 2510005F

Lögð fram til kynningar fundargerð 178. fundar menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 8. október 2025.

Fundargerðin er í 6 liðum.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti og Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstóri.

Lagt fram til kynningar.

19.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 660 - 2510003F

Lögð fram til kynningar fundargerð 660. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 9. október 2025.

Fundargerðin er í 10 liðum.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, Nanný Arna Guðmundsdóttir og Gylfi Ólafsson.

Lagt fram til kynningar.

20.Velferðarnefnd - 493 - 2509010F

Lögð fram til kynningar fundargerð 493. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 2. október 2025.

Fundargerðin er í 8 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:42.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?