Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
554. fundur 05. júní 2025 kl. 17:00 - 17:51 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson aðalmaður
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
  • Kristján Þór Kristjánsson aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir varaformaður
  • Magnús Einar Magnússon forseti
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri
  • Þorbjörn Halldór Jóhannesson aðalmaður
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Forseti ber upp minningarorð um Kristínu Björk Jóhannsdóttur, varabæjarfulltrúa Í-lista, sem lést þann 26. maí 2025, og verður borin til grafar fimmtudaginn 12. júní 2025.



„Kristín Björk Jóhannsdóttir varabæjarfulltrúi lést á gjörgæsludeild Landspítalans 26. maí sl. eftir erfiða baráttu við sjaldgæfan sjúkdóm.



Kristín var á framboðslista Í-listans fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar og tók sæti í velferðarnefnd. Hún var kennari að mennt, fædd í Súgandafirði og búsett á Þingeyri. Kristín var okkur stoð og stytta, kom með góðar ábendingar, var virk í málefnastarfi í aðdraganda kosninga sem og í almennu baklandsstarfi þar til seint á síðasta ári þegar veikindi fóru að þjaka hana. Kristín sat einn bæjarstjórnarfund sem varafulltrúi.



Útför Kristínar fer fram frá Laugarneskirkju í Reykjavík 12. júní nk.



Mig langar að biðja bæjarfulltrúa að rísa úr sætum og minnast Kristínar með þögn og sendum jafnframt fjölskyldu hennar samúðarkveðjur.“

1.Nefndarmenn 2022-2026 - forseti bæjarstjórnar - 2022050135

Tillaga forseta um kosningu forseta og varaforseta bæjarstjórnar samkvæmt 7. gr. samþykkta um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköpum bæjarstjórnar.



Tillagan er sú að Steinunn G. Einarsdóttir verði kjörin forseti, Magnús Einar Magnússon fyrsti varaforseti og Kristján Þór Kristjánsson annar varaforseti bæjarstjórnar.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.
Steinunn G. Einarsdóttir tók við stjórn fundarins kl. 17:03.

2.Nefndarmenn 2022-2026 - bæjarráð - 2022050135

Tillaga forseta um kosningu þriggja aðalfulltrúa og þriggja varafulltrúa í bæjarráð til eins árs, sbr. 27. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar. Jafnframt tillaga forseta um kosningu formanns og varaformanns bæjarráðs.



Tillaga forseta er að Gylfi Ólafsson, Kristján Þór Kristjánsson og Jóhann Birkir Helgason verði kosnir aðalfulltrúar, og Nanný Arna Guðmundsdóttir, Elísabet Samúelsdóttir og Steinunn Guðný Einarsdóttir verði kosnar varafulltrúar. Formaður verður Gylfi Ólafsson og varaformaður Kristján Þór Kristjánsson.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 8-0.
Þorbjörn H. Jóhannesson sat hjá við atkvæðagreiðslu.

3.Nefndarmenn 2022-2026 - skipulags- og mannvirkjanefnd - 2022050135

Tillaga forseta um að Jóhann Bæring Gunnarsson verði aðalfulltrúi B-lista Framsóknarflokks í skipulags- og mannvirkjanefnd, í stað Jónu Símoníu Bjarnadóttur fulltrúa Í-lista. Þá verði Gauti Geirsson varamaður B-lista í nefndinni stað Vals Richters fulltrúa Í-lista.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Nefndarmenn 2022-2026 - umhverfis- og framkvæmdanefnd - 2022050135

Tillaga forseta um að Þorvaldur Óli Ragnarsson verði aðalfulltrúi D-lista Sjálfstæðisflokks í umhverfis- og framkvæmdanefnd, í stað Þorbjörns Jóhannessonar fulltrúa Í-lista. Þá verði Dagný Finnbjörnsdóttir varamaður D-lista í nefndinni stað Chaterine Chambers fulltrúa Í-lista. Nýr varaformaður verði Valur Richter í stað Þorbjörns Jóhannessonar.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 8-0.
Þorbjörn H. Jóhannesson sat hjá við atkvæðagreiðslu.

5.Fundir bæjarstjórnar 2022-2026 - sumarfrí 2025 - 2022050136

Tillaga forseta um að sumarleyfi bæjarstjórnar verði tveir mánuðir, júlí og ágúst 2025, og að bæjarstjórn komi saman til fyrsta fundar að loknu sumarleyfi þann 4. september 2025.



Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála samkvæmt 8. gr. samþykkta um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Fundir bæjarstjórnar 2022-2026 - fundadagskrá veturinn 2025-2026 - 2022050136

Tillaga forseta að dagsetningum bæjarstjórnarfunda september 2025 til og með júní 2026, samkvæmt minnisblaði Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 13. maí 2025.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Beiðni um gjaldfrjálsa tíma í íþróttamiðstöð Flateyri - 2025030091

Tillaga frá 23. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, sem haldinn var 21. maí 2025, um að bæjarstjórn samþykki samning Ísafjarðarbæjar við Lýðskólann á Flateyri um að skólinn verði styrktur um afnot af íþróttahúsinu á Flateyri sem nemur tveimur tímum á viku þá mánuði sem skólinn er starfræktur.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Reglur Ísafjarðarbæjar um tekjutengingu afsláttar af leikskólagjöldum - 2025050124

Tillaga frá 23. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, sem haldinn var 21. maí 2025, um að bæjarstjórn samþykki breytingar á 2. gr. reglna Ísafjarðarbæjar um tekjutengingu afsláttar af leikskólagjöldum þannig að hún hljóði svo:



"Foreldrar/forráðamenn með mánaðartekjur allt að 795.000 kr. eða árslaun 0-9.540.000 kr."
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum 2025 - úthlutunarreglur um styrkveitingu og úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum og íþróttasvæðum Ísafjarðarbæjar til íþróttafélaga og almennings - 2025040047

Tillaga frá 1328. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 2. júní 2025, í kjölfar samþykktar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar á 23. fundi sínum þann 21. maí 2025, um að bæjarstjórn samþykki nýjar úthlutunarreglur um styrkveitingu og úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum og íþróttasvæðum Ísafjarðarbæjar til íþróttafélaga og almennings.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, Nanný Arna Guðmundsdóttir og Kristján Þór Kristjánsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

10.Stekkjarlæksbakkar, nýtt deiliskipulag (Hóll í Firði) - 2024070057

Tillaga frá 652. fundi skipulags- og mannvirkjanefnda, sem haldinn var 22. maí 2025, um að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag Stekkjarlæksbakka, dags. 27. apríl 2025 í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

11.Lóðir í Dagverðardal, Ísafirði. Frístundahúsalóðir og spennistöð - 2025030028

Tillaga frá 652. fundi skipulags- og mannvirkjanefnda, sem haldinn var 22. maí 2025, um að bæjarstjórn samþykki að heimila stofnun lóða skv. nýju deiliskipulagi í Dagverðardal undir frístundahús.



Nefndin óskar eftir tillögum almennings að nýjum götuheitum í frístundabyggð F21.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

12.Bæjarráð - 1326 - 2505015F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1326. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 19. maí 2025.



Fundargerðin er í 13 liðum.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, og Jóhann Birkir Helgason.

Lagt fram til kynningar.

13.Bæjarráð - 1327 - 2505024F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1327. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 26. maí 2025.



Fundargerðin er í 10 liðum.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Lagt fram til kynningar.

14.Bæjarráð - 1328 - 2505028F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1386. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 2. júní 2025.



Fundargerðin er í 8 liðum.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, Nanný Arna Guðmundsdóttir, Kristján Þór Kristjánsson, Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, Gylfi Ólafsson og Kristján Þór Kristjánsson.

Lagt fram til kynningar.

15.Framkvæmdaráð Velferðarþjónustu Vestfjarða - 7 - 2505021F

Lögð fram fundargerð 7. fundar framkvæmdaráðs Velferðarþjónustu Vestfjarða, sem haldinn var 27. maí 2025.



Fundargerðin er í 3 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

16.Hafnarstjórn - 262 - 2505025F

Lögð fram fundargerð 262. fundar hafnarstjórnar sem haldinn var 28. maí 2025.



Fundargerðin er í 5 liðum.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, Jóhann Birkir Helgason, Gylfi Ólafsson og Jóhann Birkir Helgason.

Lagt fram til kynningar.

17.Nefnd um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði - 1 - 2505010F

Lögð fram fundargerð 1. fundar nefndar um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði sem haldin var 16. maí 2025.



Fundargerðin er í 2 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

18.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 652 - 2505004F

Lögð fram til kynningar fundargerð 652. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar en fundur var haldin 22. maí 2025.



Fundargerðin er í 14 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

19.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 23 - 2505016F

Lögð fram fundargerð 23. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar frá 21. maí 2025.



Fundargerðin er í 9 liðum.
Til máls tóku: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Lagt fram til kynningar.

20.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 157 - 2505011F

Lögð fram til kynningar fundargerð 157. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 15. maí 2025.



Fundargerðin er í 7 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

21.Velferðarnefnd - 489 - 2505007F

Lögð fram fundargerð 489. fundar velferðarnefndar sem haldin var 20. maí 2025.



Fundargerðin er í 8 liðum.
Til máls tók: Steinunn G. Einarsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:51.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?