Bæjarstjórn
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Ársreikningur Ísafjarðarbæjar 2024 - 2025020192
Bæjarstjóri leggur fram til fyrri umræðu ársreikning Ísafjarðarbæjar, stofnana hans og fyrirtækja fyrir starfsárið 2024.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, forseti, Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri, Gylfi Ólafsson, Jóhann Birkir Helgason, Kristján Þór Kristjánsson og Gylfi Ólafsson.
Gylfi Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun f.h. Í-lista:
"Ársreikningur Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2024 er lagður hér fram til fyrri umræðu. Rekstur Ísafjarðarbæjar gekk einstaklega vel árið 2024 og heldur því áfram að styrkjast. Reksturinn skilaði afgangi sem nemur 1.167 milljónum króna. Tekjur voru hærri og gjöld lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Allar kennitölur vísa í sömu átt. Skuldahlutfall lækkar; árið 2023 var það 134% en var 116% árið 2024, þegar áætlun gerði ráð fyrir að það færi í 125%. Skuldahlutfallið hjá A hluta er 114% en var 122% árið 2023. Skuldaviðmið A og B hluta er 95% og 72% fyrir A hluta. Veltufé frá rekstri var tæp 15% og handbært fé jókst mikið.
Á síðasta ári var framkvæmt og fjárfest fyrir tæpan milljarð. Umfangsmestu fjárfestingarnar voru gatnagerð, hafnarframkvæmdir, umbætur í fráveitu og vatnsveitu og snjóflóðavörnum á Flateyri.
Áfram er auðvitað nauðsyn að sýna aðgæslu í rekstrinum. Það er krefjandi að reka sveitarfélag og má lítið útaf bera. Ársreikningur ársins 2024 er þó til marks um að vel hafi tekist og með ráðdeild og skynsemi horfum við bjartsýn fram á veginn.
Í upphafi kjörtímabilsins ákvað Í-listinn að setja sér metnaðarfull fjárhagsleg markmið. Skemmst er frá því að segja að þau hafa nær öll náðst. Það er auðvitað ekki einungis góðum rekstri sveitarfélagsins að þakka heldur umsvifum í fjölbreyttu atvinnulífi og góðum tekjum hafnarinnar og að því þarf að hlúa."
Forseti bar upp til atkvæða tillögu um að vísa ársreikningi Ísafjarðarbæjar, stofnana hans og fyrirtækja fyrir starfsárið 2024, til síðari umræðu og samþykktar.
Tillagan samþykkt 9-0.

2.Aðkoma Ísafjarðarbæjar að íþróttasviði MÍ - 2025030190
Tillaga frá 1323. fundi bæjarráðs, sem haldinn var þann 28. apríl 2024, um að bæjarstjórn samþykki samning sveitarfélagsins við Menntaskólann á Ísafirði, um stuðning við íþróttasvið MÍ, en samningurinn gildir 2025-2029.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
3.Nefnd um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði - 2025040163
Tillaga frá 1323. fundi bæjarráðs, sem haldinn var þann 28. apríl 2024, um að bæjarstjórn samþykki að stofna nefnd um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði, og að framlagt erindisbréfs verði samþykkt.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti, og Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
Bæjarstjóri ber upp viðaukatillögu um kosningu nefndarfulltrúa í nefnd um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði.
Lagt er til að Sigurður Arnar Jónsson, Sveinn H. Þorbjörnsson og Sveinn Ingi Guðbjörnsson verði aðalfulltrúar, og að Hermann Grétar Hermannsson, Þorkell Lárus Þorkelsson og Steinunn Guðný Einarsdóttir verði varafulltrúar í nefndinni, auk bæjarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs sem aðalfulltrúar, og sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs og skipulagsfulltrúi sem varafulltrúar þeirra.
Forseti bar viðaukatillöguna upp til atkvæða.
Viðaukatillagan samþykkt 9-0.

4.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 10 - nefnd um byggingu slökkvistöðvar - 2025020006
Mál tekið inn með afbrigðum.
Tillaga frá 1324. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 5. maí 2025, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 10 við fjárhagsáætlun 2025, vegna breytinga á launaáætlun, vegna deildar skipulagsfulltrúa og nefndar um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði.
Nefnd um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði. Gert er ráð fyrir vikulegum fundum í maí og júní, og mánaðarlegum fundum eftir það á árinu 2025. Alls 15 fundir. Þrír nefndarmenn sem fá greitt fyrir nefndarsetu. Kostnaður alls kr. 1.914.700. Tekjur vegna þessara launagjalda koma til við endurgerð launaáætlunar skipulagsfulltrúa en ekki var ráðið í stöðuna í upphafi árs, eins og launaáætlun gerði ráð fyrir. Alls kr. 5.536.108. Mismunur á deildunum fer inn á óvenjulega liði (veikinda- og launapott), kr. 3.621.408.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er aukinn kostnaður um kr. 0,-
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0,- eða óbreytt afkoma kr. 223.000.000.
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0,- eða óbreytt afkoma kr. 995.000.000.

5.Frístundasvæði F21 í Dagverðardal, breyting á deiliskipulagi - 2025040135
Tillaga frá 651. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 29. apríl 2025, um að bæjarstjórn samþykki breytingu á uppdrætti í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
6.Bæjarráð - 1323 - 2504019F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1323. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 28. apríl 2025.
Fundargerðin er í 18 liðum.
Fundargerðin er í 18 liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti, Gylfi Ólafsson og Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
7.Bæjarráð - 1324 - 2505002F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1324. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 5. maí 2025.
Fundargerðin er í 14 liðum.
Fundargerðin er í 14 liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti, og Gylfi Ólafsson.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
8.Fjallskilanefnd - 18 - 2504016F
Lögð fram til kynningar fundargerð 18. fundar fjallskilanefndar, en fundur var haldinn 22. apríl 2025.
Fundargerðin er í 2 liðum.
Fundargerðin er í 2 liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
9.Framkvæmdaráð Velferðarþjónustu Vestfjarða - 6 - 2504007F
Lögð fram til kynningar fundargerð 6. fundar framkvæmdaráðs Velferðarþjónustu Vestfjarða, en fundur var haldinn 11. apríl 2025.
Fundargerðin er í 2 liðum.
Fundargerðin er í 2 liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
10.Hafnarstjórn - 261 - 2504003F
Lögð fram til kynningar fundargerð 261. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 16. apríl 2025.
Fundargerðin er í 4 liðum.
Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti, og Jóhann Birkir Helgason.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
11.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 651 - 2504012F
Lögð fram til kynningar fundargerð 651. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 29. apríl 2025.
Fundargerðin er í 14 liðum.
Fundargerðin er í 14 liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 17:44.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt 9-0.