Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
511. fundur 16. mars 2023 kl. 17:00 - 17:46 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson aðalmaður
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
  • Kristján Þór Kristjánsson aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Einar Magnússon aðalmaður
  • Dagný Finnbjörnsdóttir varamaður
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir aðalmaður
  • Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Velferðarþjónusta Vestfjarða - 2022100128

Forseti bæjarstjórnar leggur fram til síðari umræðu lokadrög samnings um sérhæfða velferðarþjónustu á Vestfjörðum.

Forseti leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn, auk þess að gefa bæjarstjóra fullt umboð til undirritunar hans og samþykktar f.h. bæjarstjórnar, ef til kæmu minni háttar breytingar á samningnum við lokaútgáfu hans.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Móttaka flóttamanna 2023 - 2023010017

Tillaga frá 1233. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 6. mars 2023, um að bæjarstjórn samþykki að Ísafjarðarbær taki á móti allt að 40 einstaklingum í samræmdri móttöku flóttafólks á tímabilinu 1. febrúar 2023 til 31. janúar 2024.

Forseti leggur fram til samþykktar þjónustusamning við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, um samræmda móttöku flóttafólks.

Auk þessa er lagður fram til samþykktar viðauki 2 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2023, vegna málsins.
Áhrif viðaukans á A hluta er kr. 1.452.872 til hækkunar á rekstrarafgangi.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Verktakasamningur um samþætta þjónustu og kennsluráðgjöf - 2023030034

Tillaga frá 450. fundi fræðslunefndar, sem fram fór 9. mars 2023, um að bæjarstjórn samþykki samning um samþætta þjónustu og kennsluráðgjöf, við Sólveigu Norðfjörð, sem nú sinnir verkefnastjórn við innleiðingu farsældarlaganna í Ísafjarðarbæ. Ásamt verkefnastjórn mun hún jafnframt sinna kennsluráðgjöf í Ísafjarðarbæ. Samningurinn gildir frá 1. ágúst 2023 til 31. desember 2024.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Forseti lagði fram til samþykktar eftirfarandi viðaukatillögu:

„Tillaga til bæjarstjórnar um að samþykkja framlagðan viðauka 3 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2023, vegna málsins. Áhrif viðaukans á A og B hluta er kr. 0.“

Forseti bar upphaflega tillögu upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

Forseti bar viðbótartillöguna upp til atkvæða.

Tillagn samþykkt 9-0.

4.Verktakasamningur um sálfræðiþjónustu 2023-2025 - 2023030033

Tillaga frá 450. fundi fræðslunefndar, sem fram fór 9. mars 2023, um að bæjarstjórn samþykki samning um skólasálfræðiþjónustu, við starfandi skólasálfræðinga Ísafjarðarbæjar, Björgu Norðfjörð og Sólveigu Norðfjörð. Gildistími samnings er 20. ágúst 2023 til 15. júní 2025.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Ósk um breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-20, svæði Í9. Dagverðardalur, orlofshúsabyggð - 2021060044

Tillaga frá 694. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 9. mars 2023, um að bæjarstjórn samþykki að hefja málsmeðferð í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Ofanflóðavarnir við Flateyri - breytingar mannvirkja eftir snjóflóð 2020 - 2022070037

Tillaga frá 694. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 9. mars 2023, um að bæjarstjórn heimili óverulega breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna úrbóta við ofanflóðavarnir á Flateyri.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Bæjarráð - 1233 - 2303002F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1233. fundar bæjarráðs, sem haldinn var 6. mars 2023.

Fundargerðin er í ellefu liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

8.Bæjarráð - 1234 - 2303006F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1234. fundar bæjarráðs, sem haldinn var 13. mars 2023.

Fundargerðin er í 13 liðum.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Lagt fram til kynningar.

9.Fræðslunefnd - 450 - 2303003F

Lögð fram til kynningar fundargerð 450. fundar fræðslunefndar, en fundur var haldinn 9. mars 2023.

Fundargerðin er í fjórum liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

10.Hafnarstjórn - 239 - 2303005F

Lögð fram til kynningar fundargerð 239. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 10. mars 2023.

Fundargerðin er í sjö liðum.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Kristján Þór Kristjánsson, Gylfi Ólafsson, og Jóhann Birkir Helgason, Kristján Þór Kristjánsson og Gylfi Ólafsson.

Lagt fram til kynningar.

11.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 604 - 2302014F

Lögð fram til kynningar fundargerð 604. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 9. mars 2023.

Fundargerðin er í tólf liðum.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og bar fundargerðina upp til kynningar.

Magnús Einar Magnússon, varaforseti, tók við stjórn fundarins kl. 17.33, á meðan Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, tók til máls. Sigríður Júlía tók aftur við stjórn fundarins kl. 17.36.

Til máls tók: Jóhann Birkir Helgason

Magnús Einar Magnússon, varaforseti, tók við stjórn fundarins kl. 17.38, á meðan Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, tók til máls. Sigríður Júlía tók aftur við stjórn fundarins kl. 17.40.

Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson

Magnús Einar Magnússon, varaforseti, tók við stjórn fundarins kl. 17.43, á meðan Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, tók til máls. Sigríður Júlía tók aftur við stjórn fundarins kl. 17.44.

Til máls tók: Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri.

Lagt fram til kynningar.

12.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 129 - 2302017F

Lögð fram til kynningar fundargerð 129. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 1. mars 2023.

Fundargerðin er í sex liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:46.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?