Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
509. fundur 23. febrúar 2023 kl. 17:00 - 17:24 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson aðalmaður
  • Dagný Finnbjörnsdóttir varamaður
  • Kristján Þór Kristjánsson aðalmaður
  • Finney Rakel Árnadóttir varamaður
  • Magnús Einar Magnússon aðalmaður
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Þorbjörn Halldór Jóhannesson varamaður
  • Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Magnús Einar Magnússon varaforseti stýrði fundi í forföllum forseta.

1.Velferðarþjónusta Vestfjarða - 2022100128

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu starfshóps um Velferðarþjónustu Vestfirðinga, dags. 9. febrúar 2023, en niðurstaða hópsins er að sveitarfélög á Vestfjörðum vinni sameiginlega að barnaverndarþjónustu og þjónustu við fólk með fötlun, og að gerður verði samningur við Ísafjarðarbæ um að vera leiðandi sveitarfélag skv. 96. gr. sveitarstjórnarlaga.

Þá leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja drög að samningi um sérhæfða velferðarþjónustu á Vestfjörðum, með þeim fyrirvara að samningurinn taki breytingum vegna framkominna athugasemda sveitarfélaganna á Vestfjörðum.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, varaforseti, Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri, Kristján Þór Kristjánsson og Gylfi Ólafsson.

Bæjarstjóri leggur fram eftirfarandi viðbótartillögu:

„Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að útfæra nánar fyrirliggjandi drög að samningi um samstarf sveitarfélaganna í samráði við sveitarstjóra annarra sveitarfélaga sem einnig hafa samþykkt umrætt samstarf. Bæjarstjóra er einnig falið að undirrita samninginn að lokinni þeirri vinnu og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.“

Varaforseti ber tillögu bæjarráðs upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

Varaforseti ber viðbótartillögu bæjarstjóra upp til atkvæða.

Viðbótartillagan samþykkt 9-0.

2.Dýpkun Sundahafnar og uppdæling efnis. - 2019060026

Tillaga bæjarráðs frá 1230. fundi sem fram fór þann 13. febrúar 2023, um að bæjarstjórn samþykki varp umframefnis, vegna dýpkunar Sundahafnar og uppdælingu efnis, í haf við innanverða Pollgötu.

Bæjarráð tók jákvætt í tillögur um losun umframefnis innan við Pollgötu, skv. minnisblaði Vegagerðarinnar, en um er að ræða 200.000 m3 frá uppdælingu við Sundabakka, með þeim rökum að ávinningurinn af losuninni væri tvíþættur. Annars vegar væri ódýrara að losa efni þarna heldur en í Óshlíðinni og hins vegar myndu framtíðarlandfyllingar við Pollgötu verða mun ódýrari þar sem botninn væri búinn að taka sig og ekki þyrfti að byggja garða á jafn miklu dýpi.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti ber upp tillögu um frestun máls, meðan aflað er frekari upplýsinga um málið.

Frestunartillagan samþykkt 9-0.

3.Minjasjóður Önundarfjarðar - stjórn - 2022030087

Í samræmi við 5. tl. C liðar 48. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og skipulagsskrá Minjasjóðs Önundarfjarðar skal ný bæjarstjórn skipa fulltrúa í stjórn Minjasjóðsins. Bernharður Guðmundsson var skipaður af bæjarstjórn þann 17. nóvember 2022, og hefur Jóna Símonía Bjarnardóttir nú óskað eftir nýjum fulltrúa í sinn stað.

Á 1230. fundi bæjarráðs, þann 13. febrúar 2023, var bæjarstjóra falið að leggja fyrir bæjarstjórn tillögu að nýjum fulltrúa Ísafjarðarbæjar í stjórn Minjasjóðs Önundarfjarðar.

Bæjarstjóri leggur nú til við bæjarstjórn að Sigríður Júlía Brynleifsdóttir verði skipuð fulltrúi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar í stjórn Minjasjóðs Önundarfjarðar.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.
Arna Lára Jónsdóttir vék af fundi kl. 17.15, vegna vanhæfis.

4.Samningur um árlegan styrk til Edinborgarhúss - 2023020069

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samning Ísafjarðarbæjar og Edinborgarhússins ehf. um árlegan styrk sem nemur fjárhæð fasteignagjalda ár hvert, gegn reksturs menningarhúss í Ísafjarðarbæ, frá 1. janúar 2023 til tíu ára.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, varaforseti, og Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri.

Varaforseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 8-0.
Arna Lára kom aftur til fundar kl. 17.16.

5.Hjúkrunarheimilið Eyri - viðbygging - 2020 - 2020040005

Tillaga bæjarráðs frá 1229. fundi sem fram fór þann 6. febrúar 2023, um að bæjarstjórn samþykki verkkaupasamning um hjúkrunarheimili á Ísafirði, Eyri, VK-23009, dags. í janúar 2023, milli Ísafjarðarbæjar, heilbrigðisráðuneytisins og Framkvæmdasýslu ríkisins - Ríkiseigna.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Uppbyggingasamningar 2023 - 2023010108

Tillaga frá 239. fundi íþrótta- og tómstundarnefndar sem haldinn var 1. febrúar 2023, um að bæjarstjórn samþykki að gerðir verði samningar við eftirfarandi félög sem sóttu um uppbyggingarsamning, í samræmi við neðangreinda tillögu. Heildarupphæð úthlutunar er 12.000.000.

Skotís - Skotíþróttafélag Ísafjarðar kr. 4.000.000-
GÍ- Golfklúbbur Ísafjarðar kr. 4.000.000-
Blakdeild Vestra kr. 750.000-
Gólfklúbburinn Gláma kr. 2.500.000-
KKD Vestra kr. 750.000-
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Eyrargata 11 á Suðureyri. Umsókn um lóð undir einbýlishús - 2023010069

Tillaga frá 602. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var þann 9. febrúar 2023, um að bæjarstjórn samþykki að Nostalgía ehf. fái lóðina við Eyrargötu 11 Suðureyri, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða.
Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Bræðratunga, umsókn um raðhúsalóð - 2023010245

Tillaga frá 602. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var þann 9. febrúar 2023, um að bæjarstjórn samþykki að úthluta lóðunum við Bræðratungu 2-10 til Landsbyggðarhúsa ehf. skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Umsækjanda sé jafnframt bent á að breyta þurfi deiliskipulagi til að aðlaga hugmyndir framkvæmdaaðila að skipulagi á framkvæmdasvæði.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Djúpvegur L138924. Umsókn um stækkun lóðar vegna viðbyggingar - 2023010269

Tillaga frá 602. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var þann 9. febrúar 2023, um að bæjarstjórn heimili stækkun lóðar við Djúpveg L138924, en að lögð verði áhersla á að aðgengi að öðrum húsum á svæðinu verði ekki skert.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

10.Hafnarstjórn - 238 - 2301022F

Lögð fram til kynningar fundargerð 238. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 3. febrúar 2023.

Fundargerðin er í fimm liðum.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, varaforseti, Steinunn Guðný Einarsdóttir, og Arna Lára Jónsdóttir.

Lagt fram til kynningar.

11.Bæjarráð - 1229 - 2302003F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1229. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 6. febrúar 2023.

Fundargerðin er í tólf liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Lagt fram til kynningar.

12.Bæjarráð - 1230 - 2302007F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1230. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 13. febrúar 2023.

Fundargerðin er í tólf liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Lagt fram til kynningar.

13.Bæjarráð - 1231 - 2302010F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1231. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 20. febrúar 2023.

Fundargerðin er í sex liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Lagt fram til kynningar.

14.Íþrótta- og tómstundanefnd - 239 - 2301015F

Lögð fram til kynningar fundargerð 239. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 1. febrúar 2023.

Fundargerðin er í einum lið.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Lagt fram til kynningar.

15.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 602 - 2301020F

Lögð fram til kynningar fundargerð 602. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 9. febrúar 2023.

Fundargerðin er í tíu liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Lagt fram til kynningar.

16.Öldungaráð - 13 - 2302006F

Lögð fram til kynningar fundargerð 13. fundar öldungaráðs, en fundur var haldinn 16. febrúar 2023.

Fundargerðin er í fimm liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:24.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?