Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
504. fundur 15. desember 2022 kl. 17:00 - 18:16 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson aðalmaður
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
  • Kristján Þór Kristjánsson aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Einar Magnússon aðalmaður
  • Dagný Finnbjörnsdóttir varamaður
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir aðalmaður
  • Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Gjaldskrár 2023 - 2022050015

Tillaga frá 1223. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 12. desember 2022, um að bæjarstjórn samþykki gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs fyrir árið 2023, og gjaldskrá um félagslegt húsnæði árið 2023.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Nanný Arna Guðmundsdóttir, Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri, Jóhann Birkir Helgason, og Kristján Þór Kristjánsson.

Forseti óskaði eftir að tillögur beggja gjaldskráa verði lagðar fram til samþykktar í einu lagi. Bæjarstjórn samþykkti þá ráðstöfun samhljóða.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Samþykkt um meðhöndlun úrgangs - 2022110123

Lögð fram til síðari umræðu samþykkt Ísafjarðarbæjar um meðhöndlun úrgangs.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Forseti bar tillögu um að samþykkja samþykkt Ísafjarðarbæjar um meðhöndlun úrgangs upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar desember 2022 - 2022110122

Lögð fram til síðari umræðu breytingar á samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillögu um að samþykkja samþykkt Ísafjarðarbæjar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Undanþágur verkfallsheimilda 2023 - 2022100094

Tillaga frá 1223. fundi bæjarráðs, sem fram fór 12. desember 2022, um að bæjarstjórn samþykki lista yfir þá starfsmenn sem ekki hafa verkfallsheimild hjá Ísafjarðarbæ, í samræmi við minnisblað mannauðsstjóra, dags. 7. desember 2022.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Vallargata 1, Þingeyri - Gramsverslun - 2021110022

Tillaga frá 1223. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 12. desember 2022, um að bæjarstjórn samþykki að gengið verði til samninga við Kjartan Ingvarsson, f.h. Fasteignafélags Þingeyrar ehf., um að yfirtaka Gramsverslun að Vallargötu 1 á Þingeyri.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri, og Jóhann Birkir Helgason.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Samstarfssamningur - Kómedíuleikhúsið - 2005090047

Tillaga frá 166. fundi menningarmálanefndar, sem haldinn var 30. nóvember 2022, þar sem lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja endurnýjun samnings við Kómedíuleikhúsið til þriggja ára. Nefndin fagnar samstarfi Ísafjarðarbæjar og Kómedíuleikhússins og telur alla aldurshópa samfélagsins njóta góðs af hinu öfluga leikhússtarfi sem Elfar Logi heldur úti.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Aðalfundur Hvetjanda hf. 2022 - 2022010061

Tillaga bæjarstjóra um að Arna Lára Jónsdóttir og Neil Shiran Þórisson verði tilnefnd til setu í stjórn Hvetjanda f.h. Ísafjarðarbæjar.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Framtíðarskipulag Torfnes - Starfshópur - 2020090001

Tillaga frá 237. fundi íþrótta- og tómstundanefndar, sem fram fór 7. desember 2022, um að bæjarstjórn skipi nýjan starfshóp um framtíðarskipulag Torfness og ljúki þeirri vinnu sem hafin er.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Kristján Þór Kristjánsson, Elísabet Samúelsdóttir, Dagný Finnbjörnsdóttir, Jóhann Birkir Helgason, og Arna Lára Jónsdóttir.

Magnús Einar Magnússon, varaforseti, tók við stjórn fundarins kl. 17:44, meðan Sigríður Júlía, forseti bæjarstjórnar, tók til máls. Sigríður Júlía tók aftur við stjórn fundarins k. 17:48.

Forseti bar upp tillögu um frestun máls, og að bæjarstjóra verði falið að útbúa nýtt erindisbréf fyrir starfshópinn og leggja fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

Fresttillagan samþykkt 9-0.

9.Tjaldsvæði í Tungudal - framlenging á samning - 2022110018

Tillaga frá 126. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar, sem fram fór þann 30. nóvember 2022, um að bæjarstjórn samþykki að samningur G.I. Halldórssonar ehf. vegna reksturs tjaldsvæðisins í Tungudal verði framlengdur til tveggja ára, í samræmi við 4. gr. samningsins.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Nanný Arna Guðmundsdóttir, og Elísabet Samúelsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.
Jóhann Birkir Helgason vék af fundi undir þessum lið, kl. 18:05, vegna vanhæfis.

10.Suðurtangi 6, Ísafirði. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2021120014

Tillaga frá 597. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 24. nóvember 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Suðurtanga 6 á Ísafirði, þó aðeins til 10 ára í ljósi óvissu með framtíð skipulagsmála á Suðurtanga, en þetta er í samræmi við gildandi deiliskipulag Suðutanga, íbúðar- og þjónustusvæði.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti lagði fram eftirfarandi breytingatillögu:

„Forseti bæjarstjórnar leggur til við bæjarstjórn að málinu verði aftur vísað til skipulags- og mannvirkjanefndar með vísan í að bæjarstjórn ákvað á 498. fundi sínum sem haldinn var 15. september 2022 að endurskoða deiliskipulag á Sundabakka. Bæjarstjórn telur rétt að endurskoða deiliskipulagið á Suðurtanga í heild í sinni áður en gerðir verði lóðaleigusamningar sem gætu haft áhrif á þróun svæðisins.

Jafnframt leggur forseti til við bæjarstjórn að hafin verði vinna við endurskoðun deiliskipulags á Suðurtanga íbúðar og þjónustusvæði sem samþykkt var 5. nóv. 2015, m.t.t. þess hvort íbúðabyggð henti á Suðurtanga samhliða þeirri starfsemi sem fyrir er og að breytingin verði unnin í tengslum við endurskoðun aðalskipulags.“

Forseti bar breytingatillöguna upp til atkvæða.

Breytingatillagan samþykkt 8-0.
Jóhann Birkir kom aftur inn á fundinn kl. 18:08.

11.Skeið 5, Ísafirði. Umsókn um lóðarleigusamning - 2022110124

Tillaga frá 598. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 8. desember 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Skeið 5 á Ísafirði í samræmi við framlagt mæliblað tæknideildar.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

12.Hlaðsnes við Súgandafjörð. Umsókn um lóðarleigusamning - 2022110125

Tillaga frá 598. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 8. desember 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Hlaðsnes 1 á Suðureyri í samræmi við framlagt mæliblað tæknideildar.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

13.Hjallavegur 3, Suðureyri. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2022110101

Tillaga frá 598. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 8. desember 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Hjallaveg 3 á Suðureyri (L141324 / F2126774) í samræmi við framlagt mæliblað tæknideildar.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

14.Dagverðardalur 11- stækkun lóðar - 2022100111

Tillaga frá 598. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 8. desember 2022, um að bæjarstjórn samþykki viðauka við lóðina Dagverðardal 11 á Ísafirði, skv. framlögðu mæliblaði tæknideildar.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

15.Bæjarráð - 1222 - 2212002F

Fundargerð 1222. fundar bæjarráðs lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 5. desember 2022.

Fundargerðin er í 14 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

16.Bæjarráð - 1223 - 2212011F

Fundargerð 1223. fundar bæjarráðs lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 12. desember 2022.

Fundargerðin er í 15 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

17.Fræðslunefnd - 447 - 2212004F

Fundargerð 447. fundar fræðslunefndar lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 8. desember 2022.

Fundargerðin er í þremur liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

18.Íþrótta- og tómstundanefnd - 237 - 2212003F

Fundargerð 237. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 7. desember 2022.

Fundargerðin er í fjórum liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

19.Menningarmálanefnd - 166 - 2211022F

Fundargerð 166. fundar menningarmálanefndar lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 30. nóvember 2022.

Fundargerðin er í sjö liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

20.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 598 - 2212006F

Fundargerð 598. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 8. desember 2022.

Fundargerðin er í 18 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

21.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 126 - 2211021F

Fundargerð 126. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 30. nóvember 2022.

Fundargerðin er í fjórum liðum.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Lagt fram til kynningar.

22.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 127 - 2212005F

Fundargerð 127. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 9. desember 2022.

Fundargerðin er í fimm liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:16.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?