Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
497. fundur 01. september 2022 kl. 17:00 - 17:45 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson aðalmaður
  • Aðalsteinn Egill Traustason varamaður
  • Kristján Þór Kristjánsson aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Einar Magnússon aðalmaður
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir aðalmaður
  • Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Forseti leggur fram tillögu þess efnis að samþykkt verði að taka eitt mál inn á dagskrá bæjarstjórnar með afbrigðum, með heimild í 16. gr. bæjarmálasamþykktar. Um er að ræða mál varðandi afnotasamning Nostalgíu ehf. á lóðum við Höfðastíg 4-9 á Suðureyri. Málið yrði nr. 7 á dagskrá.
Forseti ber tillöguna upp til atkvæða. Tillagan samþykkt 9-0.

1.Siðareglur kjörinna fulltrúa 2022 - 2022070005

Forseti bæjarstjórnar leggur fram til samþykktar uppfærðar siðareglur kjörinna fulltrúa Ísafjarðarbæjar.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Nefndarmenn 2022-2026 - öldungaráð - 2022050135

Tillaga frá 1208. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 29. ágúst 2022, um að bæjarstjórn kjósi Auði Ólafsdóttur, Hafstein Vilhjálmsson og Sigríði Magnúsdóttir sem aðalfulltrúa í öldungaráð Ísafjarðarbæjar, og Gunnlaug Einarsson, Karitas Pálsdóttur og Soffíu Ingimarsdóttur sem varafulltrúa.

Þá leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að staðfesta tilnefningar félaga eldri borgara í Ísafjarðarbæ og heilsugæslunnar.

Þá leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að Auður Ólafsdóttir verði kosin formaður öldungaráðsins úr hópi aðalafulltrúa.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Nefndarmenn 2022-2026 - hafnarstjórn - 2022050135

Tillaga bæjarfulltrúa Í-lista um að Ólafur Baldursson verði kosinn aðalfulltrúi hafnarstjórnar Í-lista, í stað Sigríðar Gísladóttur. Jafnframt að nýr varaformaður verði Catherine Chambers, í stað Sigríðar Gísladóttur.

Þá er lagt til að Anna Ragnheiður Grétarsdóttir verði kosin varafulltrúi Í-lista í hafnarstjórn, í stað Ólafs Baldurssonar.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Strandsvæðaskipulag Vestfjarða - 2018070017

Tillaga frá 1208. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 29. ágúst 2022, um að samþykkja umsögn Ísafjarðarbæjar um strandsvæðaskipulag Vestfjarða, en umsögnin er fylgiskjal með tillögu þessari, dags. 30. ágúst 2022.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson, Kristján Kristjánsson, Steinunn Guðný Einarsdóttir og Arna Lára Jónsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2020-2032 - 2020070011

Tillaga frá 591. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór þann 29. ágúst 2022, um að bæjarstjórn heimili áframhald þeirrar vinnu sem hófst á síðasta kjörtímabili um heildarendurskoðun Aðalskipulags Ísafjarðarbæjar.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Ból Ísafjarðarbæ - Umsókn um byggingarheimild vegna geymslubyggingar - 2022070036

Tillaga frá 591. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór þann 29. ágúst 2022, um að bæjarstjórn heimili málsmeðferð skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Höfðastígur 4-9. Umsókn um lóðir - 2022010149

Tillaga frá 1203. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 4. júlí 2022, um að samþykkja afnotasamning Ísafjarðarbæjar við Nostalgíu ehf. um lóðir að Höfðastíg 4-9 á Suðureyri.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Bæjarráð - 1201 - 2206013F

Lögð fram til kynningar 1201. fundargerð bæjarráðs, en fundur var haldinn 20. júní 2022.

Fundargerðin er í tíu liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

9.Bæjarráð - 1202 - 2206017F

Lögð fram til kynningar 1202. fundargerð bæjarráðs, en fundur var haldinn 27. júní 2022.

Fundargerðin er í 17 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

10.Bæjarráð - 1203 - 2206023F

Lögð fram til kynningar 1203. fundargerð bæjarráðs, en fundur var haldinn 4. júlí 2022.

Fundargerðin er í 26 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

11.Bæjarráð - 1204 - 2207003F

Lögð fram til kynningar 1204. fundargerð bæjarráðs, en fundur var haldinn 11. júlí 2022.

Fundargerðin er í tíu liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

12.Bæjarráð - 1205 - 2207006F

Lögð fram til kynningar 1205. fundargerð bæjarráðs, en fundur var haldinn 18. júlí 2022.

Fundargerðin er í 17 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

13.Bæjarráð - 1206 - 2208001F

Lögð fram til kynningar 1206. fundargerð bæjarráðs, en fundur var haldinn 15. ágúst 2022.

Fundargerðin er í 18 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

14.Bæjarráð - 1207 - 2208008F

Lögð fram til kynningar 1207. fundargerð bæjarráðs, en fundur var haldinn 22. ágúst 2022.

Fundargerðin er í sex liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

15.Bæjarráð - 1208 - 2208012F

Lögð fram til kynningar 1208. fundargerð bæjarráðs, en fundur var haldinn 29. ágúst 2022.

Fundargerðin er í fjórum liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

16.Fjallskilanefnd - 14 - 2208006F

Lögð fram til kynningar fundargerð 14. fundar fjallskilanefndar.

Fundargerðin er í tveimur liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

17.Fræðslunefnd - 441 - 2206006F

Lögð fram til kynningar 441. fundargerð fræðslunefndar, en fundur var haldinn 30. júní 2022.

Fundargerðin er í 11 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

18.Hafnarstjórn - 232 - 2206016F

Lögð fram til kynningar 232. fundargerð hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 23. júní 2022.

Fundargerðin er í sex liðum.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Kristján Kristjánsson og Arna Lára Jónsdóttir.

Lagt fram til kynningar.

19.Hafnarstjórn - 233 - 2206019F

Lögð fram til kynningar 233. fundargerð hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 30. júní 2022.

Fundargerðin er í fjórum liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

20.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 586 - 2206011F

Lögð fram til kynningar 586. fundargerð skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 27. júní 2022.

Fundargaerðin er í níu liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

21.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 587 - 2206021F

Lögð fram til kynningar 587. fundargerð skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 30. júní 2022.

Fundargaerðin er í þremur liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

22.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 588 - 2206020F

Lögð fram til kynningar 587. fundargerð skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 11. júlí 2022.

Fundargerðin er í 21 lið.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

23.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 589 - 2207008F

Lögð fram til kynningar 589. fundargerð skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 9. ágúst 2022.

Fundargerðin er í 16 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

24.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 590 - 2208004F

Lögð fram til kynningar 589. fundargerð skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 15. ágúst 2022.

Fundargerðin er í sex liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

25.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 591 - 2208010F

Lögð fram til kynningar fundargerð 591. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 29. ágúst 2022.

Fundargerðin er í fimm liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

26.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 121 - 2206014F

Lögð fram til kynningar 121. fundargerð umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 21. júní 2022.

Fundargerðin er í þremur liðum.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Nanný Arna Guðmundsdóttir, Kristján Kristjánsson og Arna Lára Jónsdóttir.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:45.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?