Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
496. fundur 16. júní 2022 kl. 17:00 - 17:24 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson aðalmaður
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
  • Sædís Ólöf Þórsdóttir varamaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Einar Magnússon aðalmaður
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Þorbjörn Halldór Jóhannesson varamaður
  • Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Nefndarmenn 2022-2026 - 2022050135

Forseti leggur til að Arna Lára Jónsdóttir verði kosin fulltrúi í stjórn Byggðasafns Vestfjarða, og að Gylfi Ólafsson verði kosinn varamaður, í samræmi við samþykktir Byggðsafnsins.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Fulltrúaráð Vestfjarðastofu - - 2022060027

Tillaga frá 1199. fundi bæjarráðs, sem fram fór 9. júní 2022, um að bæjarstjórn skipi nýjan fulltrúa til setu í fulltrúaráði fyrir hönd Ísafjarðarbæjar.
Forseti leggur til að Gylfi Ólafsson verði kosinn í fulltrúaráð Vestfjarðastofu.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2022 - 2022020099

Tillaga frá 1199. fundi bæjarráðs, sem fram fór 9. júní 2022, um að bæjarstjórn tilnefni landsþingfulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Forseti leggur til að Gylfi Ólafsson, Nanný Arna Guðmundsdóttir og Steinunn Guðný Einarsdóttir verði kosin aðalfulltrúar á landsþing, og að Magnús Einar Magnússon, Sigríður Júlía Brynleifsdóttir og Aðalsteinn Egill Traustason verði kosin varafulltrúar á landsþing Sambands Íslenskra sveitarfélaga.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Stjórn Nave 2022-2026 - 2022060066

Tillaga frá 1200. fundi bæjarráðs, sem fram fór 13. júní 2022, um að bæjarstjórn tilnefni fulltrúa á samráðsfund Náttúrustofu Vestfjarða og fulltrúa í stjórn stofunnar, og felur bæjarstjóra að mæta sem fulltrúa Ísafjarðarbæjar á samráðsfund Nave.

Forseti leggur til að Catherine Chambers verði kosinn fulltrúi Ísafjarðarbæjar í stjórn Náttúrustofu Vestfjarða.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Samþykkt um öldungaráð - 2022030030

Tillaga frá bæjarstjóra um að bæjarstjórn taki til síðari umræðu og samþykki þannig breytingar á samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, nánar tiltekið breytingar á 7. tl. B liðar 48. gr., í samræmi við minnisblað sviðsstjóra dags. 14. janúar 2022, og breytingar á samþykkt um öldungaráð, sem samþykktar voru á 488. fundi bæjarstjórnar þann 20. janúar 2022.

Breytingar á 7. tl. B liðar 48. gr. samþykkta um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar fela í sér að samkvæmt samþykkt um öldungaráð Ísafjarðarbæjar kýs bæjarstjórn þrjá fulltrúa og þrjá til vara, félög eldri borgara í Ísafjarðarbæ tilnefna þrjá fulltrúa og þrjá til vara, auk þess sem heilsugæslan kýs einn fulltrúa og einn til vara. Bæjarstjórn velur öldungaráðinu formann úr hópi öldungaráðsmanna. Kjörtímabil ráðsins er hið sama og bæjarstjórnar.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Heildræn árangursstjórnun í fjármálum - 2022060019

Tillaga frá 1200. fundi bæjarráðs, sem fram fór 13. júní 2022, um að bæjarstjórn samþykki að ganga til samninga við KPMG um árangursstjórnun í fjármálum Ísafjarðarbæjar, í samræmi við verkefnatillögu KPMG, og á grundvelli framlagðs samnings.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti, Arna Lára Jónsdóttir, og Jóhann Birkir Helgason.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2022 - viðauki 7 - 2022040056

Tillaga frá 1200. fundi bæjarráðs, sem fram fór 13. júní 2022, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 7 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2022, vegna breytinga á áætlun Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, samstarfsverkefnis við KPMG um heildræna árangursstjórnun í fjármálum og biðlauna fyrrverandi bæjarstjóra.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2022 - viðauki 8 - 2022040056

Tillaga frá 1200. fundi bæjarráðs, sem fram fór 13. júní 2022, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 8 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2022, vegna snjómoksturs ársins 2022.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Brimbrjótur, Suðureyri - umsókn um lóð fyrir atvinnuhúsnæði - 2019120040

Tillaga frá 1200. fundi bæjarráðs, sem fram fór 13. júní 2022, um að bæjarstjórn samþykki viðauka við afnotasamning Ísafjarðarbæjar og Fisherman ehf. um afnot af landi til uppbyggingar við Brjótinn á Suðureyri.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

10.Ártunga 3 - umsókn um lóð - 2022050117

Tillaga frá 585. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 9. júní 2022, um að bæjarstjórn samþykki að Teitur Magnússon fái lóðina við Ártungu 3, Ísafirði, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

11.Daltunga 4 - umsókn um lóð - 2022050131

Tillaga frá 585. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 9. júní 2022, um að bæjarstjórn samþykki að Ívar Valsson, f.h. Tanga ehf, fái lóðina við Daltungu 4, Ísafirði, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

12.Aðalstræti 8, 400. Umsókn um viðbótarlóð - 2019080022

Tillaga frá 585. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 9. júní 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings vegna viðbótarlóðar við Aðalstræti 8, Ísafirði, í samræmi við deiliskipulag Eyrarinnar.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

13.Öldugata 5 á Flateyri. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2022050067

Tillaga frá 585. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 9. júní 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings undir Öldugötu 5, í samræmi við deiliskipulag Flateyrar.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

14.Grjótvörn og uppfylling til norðurs frá Norðurtanga í Skutulsfirði - Aðalskipulagsbreyting - 2020110080

Tillaga frá 585. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 9. júní 2022, um að bæjarstjórn heimili auglýsingu á vinnslutillögu grjótvarnar og landfyllingar norðan Skutulsfjarðareyrar, vegna breytingar á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, skv. II. mgr. 30. gr. skipulagslaga 123/2010. Nefndin leggur áherslu á að málið verði vel kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á auglýsingatímanum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti, Arna Lára Jónsdóttir, og Jóhann Birkir Helgason.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

15.Efstaból - stækkun lóðar - 2022060020

Tillaga frá 585. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 9. júní 2022, um að bæjarstjórn heimili uppskipti lands úr landi Neðri-Engidals L138018 og í framhaldinu stækka lóð Efstabóls L2304448, í Engidal.

Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

16.Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 191 - 2205005F

Lögð fram til kynningar fundargerð 191. fundar barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum, en fundur var haldinn 12. maí 2022.

Fundargerðin er í einum lið.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Lagt fram til kynningar.

17.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 585 - 2205012F

Lögð fram til kynningar fundargerð 585. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 9. júní 2022.

Fundargerðin er í 14 liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, varaforseti.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:24.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?