Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
486. fundur 16. desember 2021 kl. 17:00 - 17:40 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Arna Lára Jónsdóttir aðalmaður
  • Aðalsteinn Egill Traustason varamaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson aðalmaður
  • Sigurður Jón Hreinsson aðalmaður
  • Kristján Þór Kristjánsson forseti
  • Þórir Guðmundsson aðalmaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Birgir Gunnarsson bæjarstjóri
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Uppbyggingaráætlun 2022 - 2021080069

Tillaga frá 228. fundi íþrótta- og tómstundanefndar, sem fram fór þann 1. desember 2021, um að bæjarstjórn samþykki uppbyggingaráætlun íþróttamannvirkja Ísafjarðarbæjar 2022-2027.
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, Sigurður Jón Hreinsson, Nanný Arna Guðmundsdóttir, og Þórir Guðmundsson.

Jónas Þór Birgisson tók við stjórn fundarins kl. 17:09, meðan Kristján Þór Kristjánsson tók til máls. Kristján Þór Kristjánsson tók aftur við stjórn fundarins kl. 17:12.

Forseti bar upp breytingatillögu um að uppbyggingaáætluninni verði vísað aftur til íþrótta- og tómstundanefndar.

Forseti bar breytingatillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Engjavegur 9, 400. Umsókn um lóðarleigusamning - 2021080058

Tillaga frá 571. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór þann 24. nóvember 2021, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Engjaveg 9 á Ísafirði, skv. mæliblaði dags. 13. október 2021.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Boð um kaup Suðurtangi 2 Ísafjörður - 2019050091

Tillaga frá 1176. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 15. nóvember 2021, um að bæjarstjórn samþykki kaupsamning um fasteign Sjósportmiðstöðvar Íslands að Suðurtanga 2 á Ísafirði, fnr. 222-9261 og 225-2110, að fjárhæð kr. 28.000.000
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Nanný Arna Guðmundsdóttir, Jónas Þór Birgisson, Birgir Gunnarsson, og Arna Lára Jónsdóttir.

Jónas Þór Birgisson tók við stjórn fundarins kl. 17:19, meðan Kristján Þór Kristjánsson tók til máls. Kristján Þór Kristjánsson tók aftur við stjórn fundarins kl. 17:20.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Vestfjarðastofa - skipan varamanns í stjórn - 2021120022

Tillaga frá 1179. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 6. desember 2021, um að bæjarstjórn kjósi Daníel Jakobsson sem varamann í stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Skeið ehf. - Umsókn um stofnframlag - 2021120018

Uppfærð tillaga frá 1180. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 13. desember 2021, um að bæjarstjórn samþykki að veita stofnframlag til Skeiðs ehf., þar sem áætluð gjöld sem sveitafélagið myndi gefa eftir eru gatnagerðar- og byggingarleyfisgjöld, þ.e. kr. 13.800.000, og áætlað greitt stofnframlag á árinu 2022 er kr. 9.238.805 og við verklok árið 2023 kr. 23.038.805, auk þess sem lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka 1 við fjárhagsáætlun ársins 2022.
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, Marzellíus Sveinbjörnsson, og Sigurður Jón Hreinsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Hlíf 1 - Umsókn um breytingu á innra fyrirkomulagi - 2021100094

Tillaga frá 1180. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 13. desember 2021, um að bæjarstjórn samþykki að selja byggingarétt rýmis á 4. hæð Hlífar 1 á Ísafirði, með samþykki um byggingaráform, m.v. núverandi ástand þ.e. fokheldisstig, með þeim kvöðum sem eru á húsinu.
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, Sigurður Jón Hreinsson.

Arna Lára Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Í-lista, lagði fram eftirfarandi bókun:
"Ég fagna því að byggja eigi íbúðir á 4.hæðinni á Hlíf. Varðandi sölu á byggingarrétt á íbúðunum þá tel ég betur fari á því að Ísafjarðarbær eigi þessar íbúðir og leigi þær út. Þess vegna mun ég sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu".

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 6-0. Arna Lára Jónsdóttir, Sigurður Jón Hreinsson og Þórir Guðmundsson sátu hjá við atkvæðagreiðslu.

7.Tankurinn - Útilistaverk á Þingeyri - 2019040026

Tillaga frá 1180. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 13. desember 2021, um að bæjarstjórn samþykki að veita styrk til Tanks menningarfélags vegna gatnagerðargjalda og byggingarleyfisgjalda að fjárhæð kr. 2.636.786, og samþykki viðauka 17 við fjárhagsáætlun 2021 vegna málsins, en viðaukinn hefur ekki áhrif á lokaniðurstöðu framkvæmda- eða fjárhagsáætlunar ársins 2021.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Vátryggingaútboð 2021 - 2021100091

Tillaga frá 1180. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 13. desember 2021, um að bæjarstjórn samþykki að fara að tillögu Ríkiskaupa í útboði nr. 21567 og mun tilkynning um val tilboðs verða send bjóðendum í útboðskerfinu. Tilkynnt verður um töku tilboðs þegar biðtíma er lokið, ef engin kæra berst til kærunefndar útboðsmála. Við töku tilboðs er komið á samningssamband milli kaupanda og seljanda.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.
Steinunn Guðný Einarsdóttir vék af fundi kl. 17.33 undir þessum lið fundarins.

9.Hafnarbakki 5, umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2020100029

Tillaga frá 1180. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 13. desember 2021, um að bæjarstjórn samþykki að afturkalla þá ákvörðun sína að heimila útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Hafnarbakka 5, Flateyri, landnúmer 141100, er tekin var á 464. fundi bæjarstjórnar þann 5. nóvember 2020, á grundvelli umsóknar um endurnýjun á lóðarleigusamningi vegna fasteignarinnar með fasteignanúmerið 2126407. Þar með eru afturkölluð þau lóðarréttindi/leiguréttindi sem lóðarleigusamningur (grunnleigusamningur), dags. 24. nóvember 2020, ber með sér. Um heimild til afturköllunar vísast til 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Ástæða afturköllunar er sú að orðalag lóðarleigusamningsins er ekki nægilega skýrt um þau lóðarréttindi sem til stóð að úthluta, þar sem samningurinn ber með sér að leigutaka sé leigð öll lóðin að Hafnarbakka 5 og þar með undan fasteignum á lóðinni í eigu annars aðila. Lóðarleigusamningurinn hafi því orðið annars efnis en til stóð. Er bæjarstjóra falið að hlutast til um að gripið verði til annarra viðeigandi ráðstafana til að leiðrétta þá röngu réttarstöðu sem lóðarleigusamningurinn kann að teljast bera með sér.
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Steinunn Guðný Einarsdóttir, Birgir Gunnarsson, Arna Lára Jónsdóttir, og Jónas Þór Birgisson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 8-0.
Steinunn Guðný kom aftur inn á fundinn kl. 17.37.

10.Viðhald Grunnskólans á Suðureyri vegna Myglu - 2021090083

Tillaga frá bæjarstjóra um að bæjarstjórn samþykki viðauka 18 við fjárhagsáætlun ársins 2021 vegna viðhaldsframkvæmda í Grunnskólanum á Suðureyri, að fjárhæð kr. 13.500.000. Lagt er til frestun á öðrum verkefnum Eignasjóðs, en áhrif viðaukans á lokaniðurstöðu fjárhagsáætlunar eru engin, en minnisblað vegna málsins var lagt fram til kynningar á 1175. fundi bæjarráðs, þann 8. nóvember 2021.
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, og Birgir Gunnarsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

11.Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 189 - 2112004F

Lögð fram til kynningar fundargerð 189. fundar barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum, en fundur var haldinn 7. desember 2021.

Fundargerðin er í einum lið.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Lagt fram til kynningar.

12.Bæjarráð - 1179 - 2112005F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1179. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 6. desember 2021.

Fundargerðin er í 13 liðum.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Lagt fram til kynningar.

13.Íþrótta- og tómstundanefnd - 228 - 2111023F

Lögð fram til kynningar fundargerð 228. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 1. desember 2021.

Fundargerðin er í tveimur liðum.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Lagt fram til kynningar.

14.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 113 - 2111010F

Lögð fram til kynningar fundargerð 113. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 30. nóvember 2021.

Fundargerðin er í einum lið.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:40.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?