Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
474. fundur 15. apríl 2021 kl. 17:00 - 17:34 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Arna Lára Jónsdóttir aðalmaður
  • Jónas Þór Birgisson varamaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson aðalmaður
  • Sigurður Jón Hreinsson aðalmaður
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir varamaður
  • Sif Huld Albertsdóttir aðalmaður
  • Kristján Þór Kristjánsson forseti
  • Þórir Guðmundsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Birgir Gunnarsson bæjarstjóri
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Forseti óskar eftir að þrjú mál verða tekin á dagskrá bæjarstjórnar með afbrigðum, mál nr. 1, þ.e. tillaga um að bæjarstjórn samþykki nýja heildarsamþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, mál nr. 4, um kosningu 1. varaforseta bæjarstjórnar, og mál nr. 5, um kosningu varamanns í bæjarráð.

Forseti leggur tillöguna fram til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

1.Samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar 2021 - 2021040030

Tillaga frá bæjarstjóra um að bæjarstjórn samþykki nýja heildarsamþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, þ.e. Samþykkt nr. 535/2014, ásamt innfelldum breytingum nr. 466/2015, nr. 784/2015, nr. 426/2016, nr. 426/2018, svo og samþykktum breytingum í bæjarstjórn þann 18. febrúar 2021 og 4. mars 2021.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Framtíð þjónustumiðstöðvar Ísafjarðarbæjar - 2021030076

Mál sett á dagskrá að beiðni bæjarfulltrúa Í-lista í samræmi við 4. tl. 1. mgr. 10. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, ásamt tillögu til bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar að bæjarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs verði falið að móta hugmyndir að framtíðarskipulagi þjónustumiðstöðvar. Markmiðið verði að tryggja góða þjónustu og getu þjónustumiðstöðvar til að sinna hinum ýmsu viðhalds- og rekstrarverkefnum til hagsbóta fyrir bæjarbúa og atvinnulíf. Kortleggja þarf hvaða verkefni eiga að vera á hendi þjónustumiðstöðvar og hvernig á að sinna þeim. Skoða mætti að sameina starfsemi þjónustumiðstöðvar við aðrar stofnanir bæjarins, eins og höfnina eða skíðasvæðið til að byggja upp sterkari einingu.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, Marzellíus Sveinbjörnsson, Jónas Þór Birgisson, og Birgir Gunnarsson.

Nanný Arna Guðmundsdóttir, varaforseti, tók við stjórn fundarins kl. 17:07, á meðan Kristján Þór tók til máls. Kristján tók aftur við stjórn fundarins kl. 17:08.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Nefndarmenn 2018-2022 - bæjarfulltrúi lausn frá störfum - 2018050091

Tillaga bæjarstjóra um að bæjarstjórn veiti Hafdísi Gunnarsdóttur lausn frá störfum sínum í bæjarstjórn og fastanefndum Ísafjarðarbæjar, að hennar eigin ósk, til loka kjörtímabils, með vísan til heimildar í 2. mgr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 38/2011.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, og Arna Lára Jónsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

Forseti lagði fram viðaukatillögu um að bæjarstjórn samþykki jafnframt að varamaður Hafdísar í bæjarstjórn, Jónas Þór Birgisson, taki sæti Hafdísar, auk þess sem lagt var til að Aðalsteinn Egill Traustason tæki sæti sem varamaður í bæjarstjórn, í stað Jónasar Þórs Birgissonar.

Forseti bar viðaukatillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Nefndarmenn 2018-2022 - kosning 1. varaforseta - 2018050091

Tillaga forseta bæjarstjórnar um að Jónas Þór Birgisson verði kjörinn 1. varaforseti bæjarstjórnar, í stað Hafdísar Gunnarsdóttur.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Nefndarmenn 2018-2022 - kosning varamanns í bæjarráð - 2018050091

Tillaga forseta bæjarstjórnar um að Sif Huld Albertsdóttir verði kjörinn varamaður í bæjarráð, í stað Hafdísar Gunnarsdóttur.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Endurgjaldslausar tíðavörur í grunnskólum og félagsmiðstöðvum - 2021040028

Mál sett á dagskrá að beiðni bæjarfulltrúa Í-lista í samræmi við 4. tl. 1. mgr. 10. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, ásamt tillögu til bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar um að fræðslunefnd, ásamt sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, verði falið að útfæra tillögu um ókeypis tíðavörur í grunnskólum og félagsmiðstöðvum í Ísafjarðarbæ og leggja fyrir bæjarstjórn auk kostnaðaráætlunar.
Stefnt skal að því að strax haustið 2021 verði ókeypis tíðavörur í boði í öllum grunnskólum og fræðslumiðstöðvum sveitarfélagsins.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Nanný Arna Guðmundsdóttir og Arna Lára Jónsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Umsókn um stofnframlag - Bæjartún hses.. - 2021020097

Tillaga frá 1146. fundi bæjarráðs, sem fram fór 22. mars 2021, um að bæjarstjórn samþykki umsókn Bæjartúns hses. um 12% stofnframlög vegna byggingar almennra íbúða í Ísafjarðarbæ, á Flateyri, á Suðureyri og á Þingeyri, í samræmi við umsóknargögn og minnisblað sviðsstjóra.

Auk þessa tillaga um að samþykkja viðauka 2 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2021 vegna málsins.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Umsókn um stofnframlag - Bæjartún hses.. - 2021020097

Tillaga frá 557. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 8. apríl 2021, um að bæjarstjórn heimili að hefja vinnu við nýtt deiliskipulag á Þingeyri og veiti heimild til að hefja vinnu við breytingar á deiliskipulagi Flateyrar frá 29. janúar 1998, og deiliskipulagi milli Sætúns og Hlíðarvegar á Suðureyri frá 3. desember 2003, til þess að fjölga byggingalóðum í sveitarfélaginu. Þær lóðir sem skipulagðar verða á Þingeyri fara síðan til auglýsingar skv. úthlutunarreglum Ísafjarðarbæjar, sem og þær lóðir sem verða aukalega til við breytingu á skipulagi Flateyrar og Suðureyrar.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Bygging nýrra nemendagarða Lýðskólans - 2020090040

Tillaga frá bæjarstjóra um að bæjarstjórn samþykki umsókn Nemendagarða Lýðskólans á Flateyri um 12% stofnframlög vegna byggingar nemendagarða á Flateyri, í samræmi við uppfærð umsóknargögn og minnisblað sviðsstjóra.

Auk þessa tillaga um að samþykkja viðauka 3 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2021 vegna málsins.

Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

10.Act Alone - endurnýjun samnings 2021 - 2021030095

Tillaga frá 156. fundi atvinnu- og menningarmálanefndar sem haldinn var 23. mars 2021, um að bæjarstjórn samþykki endurnýjun samnings við Act Alone til þriggja ára.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

11.Reglur um heiðursborgara Ísafjarðarbæjar - 2021030099

Tillaga frá 1147. fundi bæjarráðs, sem fram fór 29. mars 2021, um að bæjarstjórn samþykki reglur um heiðursborgara Ísafjarðarbæjar.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

12.Sjúkraflutningar - samningur - 2009020008

Tillaga frá 1148. fundi bæjarráðs, sem fram fór 12. apríl 2021, um að bæjarstjórn samþykki viðauka við samning um sjúkraflutninga á svæði Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

13.Sindragata 4a, sala fasteigna - 2019030022

Tillaga frá 1147. fundi bæjarráðs, sem fram fór 29. mars 2021, um að bæjarstjórn samþykki framkomið tilboð, að fjárhæð kr. 23.000.000, fyrir íbúð 105 að Sindragötu 4a, Ísafirði.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

14.Skrúður - málefni garðsins 2021 - 2021020030

Tillaga frá 1148. fundi bæjarráðs, sem fram fór 12. apríl 2021, um að bæjarstjórn samþykki samstarfssamning Ísafjarðarbæjar og Framkvæmdasjóðs Skrúðs.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

15.Uppbyggingasamningar 2020 - 2019080035

Tillaga frá 1147. fundi bæjarráðs, sem fram fór 29. mars 2021, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 4 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2021 vegna uppbyggingasamninga 2019 og 2020, í samræmi við minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

16.Kláfur upp Eyrarhlíð - 2019070011

Tillaga frá bæjarstjóra um að bæjarstjórn samþykki umsögn skipulagsfulltrúa vegna matsskyldufyrirspurnar Skipulagsstofnunar varðandi uppsetningu kláfs í hlíðum Eyrarfjalls, Ísafirði, dags. 8. apríl 2021, en málið var lagt fram til kynningar á 1148. fundi bæjarráðs, þann 12. apríl 2021.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

17.Ártunga 3, Ísafirði. Umsókn um lóð undir einbýlishús - 2021030061

Tillaga frá 556. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 24. mars 2021, um að bæjarstjórn veiti Gömlu spýtunni ehf. lóðina við Ártungu 3, Ísafirði, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

18.Daltunga 2, Ísafirði. Umsókn um lóð undir einbýlishús - 2021030052

Tillaga frá 556. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 24. mars 2021, um að bæjarstjórn veiti EBS fasteignum ehf. lóðina við Daltungu 2, Ísafirði skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

19.Daltunga 4 , Ísafirði. Umsókn um lóð undir einbýlishús - 2021030053

Tillaga frá 556. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 24. mars 2021, um að bæjarstjórn veiti EBS fasteignum ehf. lóðina við Daltungu 4, Ísafirði skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

20.Sjávargata 12, Þingeyri. Umsókn um atvinnuhúsalóð - 2020020041

Tillaga frá 557. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 8. apríl 2021, um að bæjarstjórn veiti Viðari Magnússyni lóðina við Sjávargötu 12, Þingeyri, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða.
Þá skal kvöð fylgja lóð að á henni fái að standa spennistöð OV og að greitt aðgengi verði að spennistöðinni. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

21.Hafnarstræti 2a, Þingeyri. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2021030073

Tillaga frá 556. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 24. mars 2021, um að bæjarstjórn heimili endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir Hafnarstræti 2a, Þingeyri.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

22.Sætún 2, Suðureyri. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2021030072

Tillaga frá 556. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 24. mars 2021, um að bæjarstjórn heimili endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir Sætún 2, Suðureyri.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

24.Staðfesting landamerkja - 2021020013

Tillaga frá 556. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 24. mars 2021, um að bæjarstjórn staðfesti landamerki jarðanna Kirkjubóls í Korpudal og Efstabóls, Efstabóls og Kroppstaða og Kirkjubóls í Korpudal og Kroppstaða.

Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

25.Staðfesting landamerkja - 2021020013

Tillaga frá 556. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 24. mars 2021, um að bæjarstjórn staðfesti landamerki milli Hjarðardalsjarða og Tungu í Firði, Hóls í Firði, Holts og Lambadals Ytri 1.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

26.Rofavörn, Pollgata - 2020020004

Tillaga frá 557. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 8. apríl 2021, um að bæjarstjórn heimili vinnu við breytingar á deiliskipulagi miðbæjar Ísafjarðar frá 22. mars 1994.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Sigurður Jón Hreinsson og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

27.Tjarnarreitur Þingeyri - 2019060041

Tillaga frá 557. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 8. apríl 2021, um að bæjarstjórn samþykki deiliskipulag fyrir Tjarnarreit á Þingeyri, skipulagsuppdrátt og greinargerð, dags. 23. október 2020, með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. apríl 2021. Málsmeðferð er í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og skulu gögn send, ásamt málsmeðferð, til Skipulagstofnunar, þegar gögn hafa verið lagfærð í samræmi við þessa samþykkt.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

28.Atvinnu- og menningarmálanefnd - 156 - 2103021F

Fundargerð 156. fundar atvinnu- og menningarmálanefndar sem haldinn var 23. mars 2021 lögð fram til kynningar.

Fundargerðin er í fimm liðum.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Lagt fram til kynningar.

29.Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 182 - 2103013F

Fundargerð 182. fundar barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum sem haldinn var 30. mars 2021 lögð fram til kynningar.

Fundargerðin er í einum lið.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Lagt fram til kynningar.

30.Bæjarráð - 1146 - 2103015F

Fundargerð 1146. fundar bæjarráðs sem haldinn var 22. mars 2021 lögð fram til kynningar.

Fundargerðin er í 25 liðum.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Lagt fram til kynningar.

31.Bæjarráð - 1147 - 2103027F

Fundargerð 1147. fundar bæjarráðs sem haldinn var 29. mars 2021 lögð fram til kynningar.

Fundargerðin er í 16 liðum.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Lagt fram til kynningar.

32.Bæjarráð - 1148 - 2104001F

Fundargerð 1148. fundar bæjarráðs sem haldinn var 12. apríl 2021 lögð fram til kynningar.

Fundargerðin er í 15 liðum.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Lagt fram til kynningar.

33.Fræðslunefnd - 425 - 2103020F

Fundargerð 425. fundar fræðslunefndar sem haldinn var 25. mars 2021 lögð fram til kynningar.

Fundargerðin er í sex liðum.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Lagt fram til kynningar.

34.Hafnarstjórn - 219 - 2103024F

Fundargerð 219. fundar hafnarstjórnar sem haldinn var 25. mars 2021 lögð fram til kynningar.

Fundargerðin er í níu liðum.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Lagt fram til kynningar.

35.Íþrótta- og tómstundanefnd - 221 - 2103011F

Fundargerð 221. fundar íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var 17. mars 2021 lögð fram til kynningar.

Fundargerðin er í einum lið.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Lagt fram til kynningar.

36.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 556 - 2103022F

Fundargerð 556. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 24. mars 2021 lögð fram til kynningar.

Fundargerðin er í 16 liðum.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Lagt fram til kynningar.

37.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 557 - 2103029F

Fundargerð 557. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 8. apríl 2021 lögð fram til kynningar.

Fundargerðin er í átta liðum.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:34.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?