Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
450. fundur 23. janúar 2020 kl. 17:00 - 17:43 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Sunna Einarsdóttir varamaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson aðalmaður
  • Sigurður Jón Hreinsson aðalmaður
  • Hafdís Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Sif Huld Albertsdóttir aðalmaður
  • Kristján Þór Kristjánsson forseti
  • Þórir Guðmundsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir staðgengill bæjarstjóra
Fundargerð ritaði: Tinna Ólafsdóttir upplýsingafulltrúi
Dagskrá
Forseti bæjarstjórnar leggur til að 2. mál á dagskrá er varðar Náttúruhamfaratryggingu Íslands verði tekið af dagskrá og bæjarstjóra falið að vinna það áfram. Tillaga samþykkt 9-0.

1.Snjóflóð í Önundarfirði og Súgandafirði 14.1.2020 - 2020010042

Umræður fóru fram. Bæjarráð færir öllum viðbragðs- og björgunaraðilum þakkir fyrir ómetanlegt starf og þakkar einnig sýndan samhug frá landsmönnum öllum. Sérstök ánægja er með þá fyrirhyggju Landhelgisgæslunnar að staðsetja varðskipið Þór á svæðinu gagngert til að bregðast við.

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar leggur til við bæjarstjórn að óskað verði eftir við stjórn Ofanflóðasjóðs að gert verði nýtt hættumat fyrir Flateyri og gerð verði úttekt á möguleikum á endurbótum á varnargörðum ofan Flateyrar. Einnig að skipuð verði hættumatsnefnd fyrir öll hættumöt í Ísafjarðarbæ og þau endurskoðuð. Jafnframt að óskað verði eftir því að Ofanflóðasjóður taki þátt í að verja hafnarmannvirki á Flateyri fyrir snjóflóðum í ljósi mikilvægis mannvirkisins, bæði vegna öryggishlutverks hafnarinnar og að varnarmannvirkin beina snjóflóðum inn á svæðið og auki þar með áhættu þar.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að óskað verði eftir því við Vegagerðina að endurskoða sjóvarnir á Suðureyri.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að fara í öryggisáhættumat fyrir alla byggðarkjarna sveitarfélagsins í samráði við heimafólk og viðbragðsaðila þar sem mögulegar áhættur verði dregnar upp og viðbrögð við þeim kortlögð og skráð.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að óskað verði eftir við samgönguyfirvöld að komið verði upp upplýstum og upphituðum þyrlupalli á Ísafjarðarflugvelli og aðstöðu fyrir þyrlu á vellinum til að mögulegt sé að þyrla verði staðsett á svæðinu til að stytta viðbragðstíma. Einnig óskar bæjarráð eftir því að skoðaður verði möguleiki á því að þyrla sé staðsett á svæðinu þegar spáð er aftakaveðri eins og var í síðustu viku.

Mikið starf er fyrir höndum að byggja upp atvinnulíf á Flateyri og bæjarráð væntir þess að fá stuðning frá stjórnvöldum í því verkefni. Til að mynda þarf að treysta Lýðskólann í sessi með föstum fjárframlögum auk þess sem nauðsynlegt er að byggja upp útgerð á ný á Flateyri.
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Daníel Jakobsson, Sigurður J. Hreinsson, Hafdís Gunnarsdóttir, varaformaður og Þórdís Sif Sigurðardóttir staðgengill bæjarstjóra.

Hafdís Gunnarsdóttur leggur fram eftirfarandi bókun við bókun bæjarráðs: "Ljóst er að mikil þörf verður á sálfræðiþjónustu fyrir þá sem glíma við áfallastreitu vegna snjóflóðanna á Flateyri og Súgandafirði. Óskað er eftir aðkomu heilbrigðisyfirvalda til að bera kostnað vegna meðferðar við áfallastreitu."

Forseti ber tillögu bæjarráðs upp til atkvæða.

Tillaga samþykkt 9-0.

Bæjarstjórn leggur fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkir að styrkja björgunarsveitir í Ísafjarðarbæ og Bolungarvík sem og Rauðakrossdeild í þakklætisskyni fyrir björgunarstörf á Flateyri og í Súgandafirði.

Lagt er til að björgunarsveitin Björg á Suðureyri, björgunarsveitin Dýri á Þingeyri, Björgunarfélag Ísafjarðar, björgunarsveitin Sæbjörg á Flateyri, björgunarsveitin Tindar í Hnífsdal, björgunarsveitin Ernir í Bolungarvík og Rauðakrossdeildin á norðanverðum Vestfjörðum fái hver um sig kr. 700.000,- í styrk.

Bæjarstjóra er falið að útbúa viðauka við fjárhagsáætlun til að mæta þessum kostnaði og leggja fyrir næsta bæjarráðsfund og bæjarstjórn til endanlegrar samþykktar."

2.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2020 - 2020010031

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að samþykkja viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2020. Um er að ræða 10 m.kr. aukin kostnað vegna Ísland ljóstengt. Þessum kostnaði er mætt með lækkun á ófyrirséðum kostnaði um 5,5 m.kr og aukningu á tekjum Upplýsingamiðstöðvar um 4,5 m.kr. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöður samantekins A og B hluta Ísafjarðarbæjar er því kr 0,- eða óbreytt afkoma kr. 168.000.000,-. Áhrifin á sveitasjóð A hluta er einnig kr. 0,- og því óbreytt afkoma kr. 29.000.000,-.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2020 - 2020010031

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að samþykkja viðauka 2 við fjárhagsáætlun 2020. Um er að ræða 1,1 m.kr. aukinn launakostnað í leikskólanum Grænagarði. Þessum kostnaði er mætt með lækkun á ófyrirséðum kostnaði um 1,1 m.kr. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöður samantekins A og B hluta Ísafjarðarbæjar er því kr 0,- eða óbreytt afkoma kr. 168.000.000,-. Áhrifin á sveitasjóð A hluta er einnig kr. 0,- og því óbreytt afkoma kr. 29.000.000,-.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Bæjarráð - 1089 - 2001006F

Lögð er fram fundargerð 1089. fundar bæjarráðs sem haldinn var 13. janúar sl. Fundargerðin er í 6 liðum.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

5.Bæjarráð - 1090 - 2001009F

Lögð er fram fundargerð 1090. fundar bæjarráðs sem haldinn var 21. janúar sl. Fundargerðin er í 7 liðum.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

Fundi slitið - kl. 17:43.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?