Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
938. fundur 14. júlí 2016 kl. 08:05 - 08:15 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Sigurður Jón Hreinsson varamaður
  • Helga Dóra Kristjánsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Snjóflóðavarnir undir Kubba, framkvæmdaleyfi. - 2010120048

Lagt er fram bréf Hafsteins Steinarssonar, verkefnastjóra hjá Framkvæmdasýslu ríkisins, dags. 22. júní sl., varðandi tillögu að töku tilboðs.
Bæjarráð samþykkir að samið verði við ÍAV hf. um verkið Uppsetning stoðvirkja í Kubba að uppfylltum skilyrðum innkaupareglna Ísafjarðarbæjar.

2.Brennur, flugeldasölur og flugeldasýningar 2015-2016 - 2015120029

Lögð er fram umsókn Jóhanns B. Gunnarssonar, f.h. Mýrarboltafélags Íslands, um brennuleyfi sunnudaginn 31. júlí nk. kl. 20:00, dags. 8. júlí sl.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsókn Mýrarboltafélags Íslands um leyfi fyrir brennu 31. júlí nk. sé búið að slökkva í brennunni kl. 8 á mánudagsmorgninum 1. ágúst nk.

Fundi slitið - kl. 08:15.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?