Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
922. fundur 14. mars 2016 kl. 08:05 - 08:53 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Jónas Þór Birgisson varamaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Snjóflóðavarnir undir Kubba, framkvæmdaleyfi. - 2010120048

Lögð eru fram bréf Hafsteins Pálssonar og Sigríðar Auðar Arnardóttur, f.h. ofanflóðanefndar, dags. 7. mars sl., og bréf Laufeyjar Helgu Guðmundsdóttur og Kjartans Ingvarssonar, f.h. umhverfis- og auðlindaráðherra, dags. 4. mars sl., varðandi ofanflóðavarnir án stoðvirkja í Kubba.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn, í ljósi svars frá umhverfis- og auðlindaráðherra og ofanflóðanefnd við fyrirspurn frá 374. fundi bæjarstjórnar, að haldið verði áfram þeim framkvæmdum sem unnið hefur verið að í Kubba með gerð stoðvirkja, þar sem ljóst er að Ísafjarðarbæ sé ekki heimilt að taka ákvörðun um að reisa 18 metra þvergarð í stað stoðvirkja.

2.Sýslumaðurinn á Ísafirði - 2016 leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026

Lagt er fram bréf Jónasar Guðmundssonar, sýslumanns, dags. 4. mars sl., þar sem óskað er umsagnar um umsókn um endurnýjun leyfis til að reka gististað að Mánagötu 1, Ísafirði, dags. 4. desember 2015.
Lagt fram til kynningar.

3.Fiskvinnsla Flateyrar - löndun utan byggðarlags - 2016030022

Lagt er fram bréf Lýðs Árnasonar, f.h. Stútungs ehf. á Flateyri, dags. 3. mars sl., varðandi löndun þorsks á Flateyri.
Bæjarráð bendir á að ekki sé hægt að breyta reglum um löndun byggðakvóta innan yfirstandandi árs, en mögulegt að taka þetta til skoðunar á næsta fiskveiðiári.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn fiskvinnslunnar á Flateyri um málið.

Kristján Andri Guðjónsson yfirgefur fundinn undir þessum lið.

4.Stjórnsýsluhúsið Ísafirði kaup á 4. hæð. - 2015090040

Lagt er fram minnisblað Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra, dags. 11. mars sl., með tillögu um kaup á hluta af 4. hæð Stjórnsýsluhússins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að Ísafjarðarbær kaupi húsnæði Ríkiseigna á 4. hæð Stjórnsýsluhússins, sbr. minnisblað Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra og feli bæjarstjóra að undirrita kaupsamning þar um.

5.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 452 - 1602029F

Fundargerð 452. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 9. mars sl. fundargerðin er í 8 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 452 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að umsókn um stækkun lóðar verði samþykkt og að þinglýst verði kvöð um aðgengi ábúanda Fagrahvamms að hliði í samræmi við framkomnar athugasemdir.

    Ólöf Guðný Valdimarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 452 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að lóðaumsóknin verði samþykkt með þeim skilmálum sem eru í gildi.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 452 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að lóðaumsóknin verði samþykkt með þeim skilmálum sem eru í gildi.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 452 Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi tillögu að matsáætlun enda samræmist hún nýtingaráætlun fyrir Arnarfjörð.

6.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 25 - 1601022F

Fundargerð 25. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 8. mars sl., fundargerðin er í 9 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 08:53.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?