Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
901. fundur 05. október 2015 kl. 08:10 - 09:40 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Hálfdán Bjarki Hálfdánsson upplýsingafulltrúi
Dagskrá

1.Grunnskólinn á Ísafirði 2012-2014 - 2012030090

Lagður er fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli 76/2013, þar sem kærð var ákvörðun bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar frá 6. júní 2013 um breytingar á skólalóð Grunnskólans á Ísafirði. Málinu var vísað frá úrskurðarnefndinni.
Lagt fram til kynningar.

2.Dagverðardalur 3 - byggingarleyfi - 2012060005

Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að Framför styrktarsjóði verði boðnar bætur fyrir framkvæmdir sem byggingarleyfi var gefið út fyrir skv. kostnaðarmati Tækniþjónustu Vestfjarða og að úthlutun lóðarinnar verði afturkölluð. Í ljósi innsendra athugasemda og álits bæjarlögmanns tók nefndin ákvörðun um að ekki yrðu frekari framkvæmdir á lóðinni.

Enn fremur er lagt fram bréf Einars Ólafssonar, f.h. Framfarar, dags. 29. september sl., með beiðni um endurskoðun á framangreindri tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar.
Lagt fram til kynningar.
Ólöf Guðný yfirgaf fundinn klukkan 09:18.

Gestir

  • Ólöf Guðný Valdimarsdóttir - mæting: 08:40

3.Brekka 1 og 2 lóð 1 - umsókn um stækkun lóðar - 2015090067

Valdimar Steinþórsson sækir um stækkun lóðarinnar Brekka 1 og 2 lóð 1. Meðfylgjandi er afsal og uppdráttur. Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við erindið.

4.Tjaldsvæði í Ísafjarðarbæ 2016 - 2015080043

Á 19. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar lagði nefndin til við bæjarstjórn að Ísafjarðarbær hætti rekstri tjaldsvæðis við Dynjanda í óbreyttu formi og skoði aðrar leiðir. Það væri sérstök staða að sveitarfélag tæki jafn ríkan þátt í rekstri salerna fyrir umferð alls ferðafólks um jafn vinsælan áningarstað og Dynjandisvog. Kostnaður Ísafjarðarbæjar vegna reksturs salerna er langt umfram tekjur af tjaldsvæðinu.
Bæjarráð tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd um að hætta rekstri tjaldsvæðis á Dynjanda í óbreyttu formi og felur umhverfisfulltrúa að vera í sambandi við Umhverfisstofnun um framtíð svæðisins. Ljóst er að umferð um Dynjanda mun stóraukast með Dýrafjarðargöngum og því mikilvægt að tryggja lausn til framtíðar.

5.Ósk um aukningu á stöðugildum Eyrarskjól - 2015090024

Á 359. fundi fræðslunefndar var lagt fram beiðni Eyrarskjóls um að fá að ráða starfsmann í 100% starfshlutfall, sbr. minnisblað dags. 29. september sl. frá Margréti Halldórsdóttur. Fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að beiðni um stuðning á Eyrarskjóli verði samþykkt í samræmi við eldri framkvæmd í svipuðum málum, enda sé stuðningur sá sami í öllum leikskólum sveitarfélagsins. Nefndin felur starfsmönnum að leggja fyrir næsta fund drög að endurskoðuðum vinnureglum um úthlutun á stuðningi við börn með sérþarfir í leikskólum sveitarfélagsins.

Bæjarráð leggur til að beiðnin verði samþykkt og bæjarstjóra falið að gera viðauka í fjárhagsáætlun vegna aukakostnaðar.

6.Gjaldskrár Ísafjarðarbæjar 2016 - 2015030048

Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 2. október sl., vegna tillagna að breytingum á gjaldskrám Ísafjarðarbæjar 2016.
Lagt fram til kynningar.

7.Fjárhagsáætlun 2016 - 2015030048

Umræður um fjárhagsáætlun 2016 og vinnufund vegna rammaáætlunar 2016.
Ákveðið að halda vinnufund mánudaginn 12. október.

8.Fundargerðir heilbrigðisnefndar og ýmis erindi 2015 - 2015020104

Lögð er fram fundargerð heilbrigðisnefndar Vestfjarða frá 25. september 2015.
Lagt fram til kynningar.

9.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum, fundargerðir, ársreikingar o.ff. - 2015050017

Fundargerð aðalfundar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, haldinn 25. september sl.
Lagt fram til kynningar.

10.Fræðslunefnd - 359 - 1509022F

Lögð er fram fundargerð 359. fundar fræðslunefndar sem haldinn var 1. október sl., fundargerðin er í 5 liðum.
Lagt fram til kynningar.

11.Íþrótta- og tómstundanefnd - 160 - 1509017F

Lögð er fram fundargerð 160. fundar íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var 30. september sl., fundargerðin er í 5 liðum.
Lagt fram til kynningar.

12.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 19 - 1509010F

Lögð er fram fundargerð 19. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 29. september sl., fundargerðin er í 6 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:40.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?