Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
894. fundur 10. ágúst 2015 kl. 08:05 - 09:40 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir varamaður
  • Jónas Þór Birgisson varamaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Mánaðaryfirlit maí mánaðar 2015 - 2015020081

Lögð eru fram drög að rekstraryfirliti fyrir maí 2015. Einnig er lagt fram yfirlit á skatttekjum og launum fyrir maí 2015 af Helgu Ásgeirsdóttur dags. 21. júlí 2015.
Lagt fram til kynningar.
Helga Ásgeirsdóttir yfirgaf fundinn kl. 8:23.

Gestir

  • Helga Ásgeirsdóttir - mæting: 08:13

2.Úthlutun framlaga vegna fasteignaskattstekna 2015 - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - 2014090008

Lagt er fram bréf jöfnunarsjóðs sveitarfélaga dags. 10. júlí sl., þar sem tilkynnt er um áætlað uppgjör framlaga vegna lækkaðra fasteignaskattstekna á árinu 2015.
Lagt fram til kynningar.

3.Fjárhagsáætlun 2016, forsendur og fjárhagsáætlun til þriggja ára - 2015030048

Lagt er fram minnisblað Gunnlaugs Júlíussonar, f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 29. júní sl., um forsendur fyrir vinnslu fjárhagsheimilda fyrir árið 2016 og fjárhagsáætlun til þriggja ára.
Lagt fram til kynningar.

4.Bréf eftirlitsnefndar vegna skuldahlutfalls Ísafjarðarbæjar 2014 - 2015010057

Lagt er fram bréf Þóris Ólafssonar, formanns, og Eiríks Benónýssonar, frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, dags. 13. júlí sl., vegna skuldahlutfalls samstæðu Ísafjarðarbæjar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindið Eftirlitsnefndarinnar. Helsta ástæða þess að skuldahlutfall sveitarfélagsins er yfir viðmiðarmörkum um skuldahlutfall er að bygging Hjúkrunarheimilisins Eyri hefur að mestu farið fram, en er þó ekki að fullu lokið. Um næstu áramót ætti skuldahlutfallið að vera rétt ríflega 130%.

5.Varnir vegna mögulegrar hækkunar á verðbólgu - 2015080002

Lögð er fram tillaga Daníels Jakobssonar, bæjarfulltrúa, sem barst í tölvupósti 31. júlí sl., um að skoða hvort og til hvaða varna sé hægt að grípa vegna mögulegrar hækkunar á verðbólgu og þar af leiðandi hækkun verðtryggðra skulda samstöðu Ísafjarðarbæjar.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.

6.Bílastæði, göngustígar og útsýnispallar við Dynjanda í Arnarfirði - umsókn um framkvæmdaleyfi - 2015060091

Lögð er fram umsókn Umhverfisstofnunar um framkvæmdaleyfi 19. júni, fyrir bílastæði, göngustígum og útsýnispalli við Dynjanda í Arnarfirði. Erindið var samþykkt á 438. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar.
Bæjarráð samþykkir umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir bílastæði, göngustígum og útsýnispalli við Dynjanda í Arnarfirði.

7.Virkjun bæjarlæksins á Hesteyri - 2014100013

Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi til virkjunar bæjarlæksins á Hesteyri, dags. 27. maí sl. Samþykki landeigenda liggur fyrir. Erindið var samþykkt á 438. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar.
Bæjarráð samþykkir umsókn um framkvæmdaleyfi til virkjunar bæjarlæksins á Hesteyri.

8.Íbúðir í útleigu til ferðamanna - 2015080010

Lögð er fram tillaga Jónasar Þ. Birgissonar, bæjarfulltrúa, sem barst í tölvupósti 5. ágúst sl., um að fela bæjarstjóra að gera athugan á því hvort þær íbúðir sem eru í útleigu til ferðamanna séu rétt skráðar, m.t.t. fasteignagjalda o.fl.
Bæjarráð samþykkir tilllöguna og bendir á að málið er þegar komið í vinnslu.

9.Framtíðarhúsnæði fyrir skjalasafnið - 2014050036

Lögð eru fram ný drög að húsaleigusamningi um Norðurtangahúsið vegna skjalageymslu Ísafjarðarbæjar ásamt minnisblaði Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra dags. 7. ágúst sl. um forsögu málsins og mat forstöðumanns á þörfinni fyrir skjalageymslu.
Meirihluti bæjarráðs samþykkir drögin að húsaleigusamningnum og felur bæjarstjóra að undirrita nauðsynleg gögn vegna þessa.

Jónas Þór Birgisson, fulltrúi sjálfstæðisflokksins, og Marzellíus Sveinbjörnsson, fulltrúi framsóknarflokksins lögðu fram eftirfarandi bókun vegna málsins:

"Fulltrúar sjálfstæðis- og framsóknarmanna í bæjarráði harma afgreiðslu Í-listans er varðar leigu á geymsluhúsnæði fyrir söfn bæjarfélagsins. Um er að ræða samning til 10 ára og því er ekki bara verið að skuldbinda þá bæjarstórn sem nú situr heldur líka þá næstu og þarnæstu. Við teljum að ekki hafi verið kannað til fulls hvort hægt væri að nýta húsnæði í eigu bæjarins eða fá ódýrara húsnæði til leigu með t.d. útboði sem næði þá til allra byggðakjarna bæjarfélagsins. Það verður líka að teljast synd að koma upp geymslu í húsnæði sem er bæði staðsett jafnmiðsvæðis og þetta og með slíkt útsýni sem raunin er. Um er að ræða kostnað upp á í kringum 73 milljónir á samningstímanum með rafmagni og hita. Þá er ekki tekið tillit til neins starfsmannakostnaðar sem þó verður að telja líklegt að af verði. Vissulega þarf, og hefur þurft til margra ára, að koma geymslumálum safnanna í betra horf en það eru líka mörg önnur mál sem setið hafa á hakanum þar sem fjármunir hafa verið af skornum skammti og þetta er jú alltaf spurning um forgangsröðun. Það verður að teljast sérstakt að fela bæjarráði, þótt vissulega sé í umboði bæjarstjórnar vegna sumarleyfa, að afgreiða mál af þessari stærðargráðu sem er ekki á fjárhagsláætlun. Ekki er nóg með að um sé að ræða bæjarráð heldur sátu varamann fyrir tvo af þremur kjörnum fulltrúum í bæjarráði. Í tíð síðasta meirihluta voru viðhöfð þau vinnubrögð að þau mál sem ekki voru samþykkt samhljóða í bæjarráði, þau biðu afgreiðslu bæjarstjórnar og hörmum við að fallið hafi verið frá þeim vinnubrögðum."

Nanný Arna Guðmundsdóttir og Arna Lára Jónsdóttir, fulltrúar Í-listans lögðu fram eftirfarandi gagnbókun:
"Það er orðið brýnt að leysa vanda skjala-, ljósmynda- og byggðasafnsins eins fram kemur í minnisblaði bæjarstjóra vegna málsins. Nokkrar leiðir hafa verið kannaðar ásamt því að gerð hefur verið ítarleg þarfagreining. Sú leið sem hér er farin leysir brýnustu þörfina og er afar ásættanleg að mati fulltrúa Í-listans.
Samkvæmt 8. gr. samþykkta um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella þegar fundir bæjarstjórnar eru felldir niður að sumarlagi, eins og áréttað var í bókun bæjarstjórnar þann 19. júní sl. og eru varamenn í bæjarráði fullfærir um að taka ákvörðun sem þessa í fjarveru aðalmanna."


10.Hjúkrunarheimili á Ísafirði, viðtökuvottorð - 2011120009

Lagt er fram til kynningar viðtökuvottorð vegna 30 hjúkrunarrýma í hjúkrunarheimilinu Eyri á Torfnesi á Ísafirði sem gefið er út af Framkvæmdasýslu ríkisins þann 30. júlí sl.
Lagt fram til kynningar.

11.Viðmiðunarreglur Kirkjugarðsráðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga, breytingar - 2015010049

Lagður er fram tölvupóstur Þóru Bjargar Jónsdóttur, frá 8. júlí sl., þar sem tilkynntar eru breytingar á viðmiðunarreglum Kirkjugarðaráðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.

12.Aðgengileg ferðasalerni fyrir fatlað fólk - 2015070045

Lagt er fram bréf Ellenar Calmon formanns ÖBÍ, dags. 21. júlí sl., varðandi aðgengileg ferðasalerni fyrir fatlað fólk á almennum viðburðum og hátíðum á vegum sveitarfélaga og ríkisins.
Lagt fram til kynningar.

13.Umsókn um rekstrarleyfi gististaða að Ólafstúni 7, Flateyri - 2015010098

Lögð er fram beiðni sýslumannsins á Vestfjörðum, dags. 29. júní sl. um umsögn vegna umsóknar Grænhöfða ehf. um rekstrarleyfi gististaða að Ólafstúni 7, Flateyri, dags. 23. júní sl.
Lagt fram til kynningar.

14.Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi gististaða fyrir Mjallargötu 1, Ísafirði - 2015010098

Lögð er fram beiðni sýslumannsins á Vestfjörðum, dags. 4. júlí sl., um umsögn á umsókn Guðríðar Guðmundsdóttur, dags. 13. júlí sl., um endurnýjun á rekstrarleyfi gististaðar í flokki II fyrir Mjallargötu 1, Ísafirði.
Lagt fram til kynningar.

15.Umsókn um endurnýjun rekstrarleyfis gististaða fyrir Fjarðarstræti 6, Ísafirði - 2015010098

Lögð er fram beiðni sýslumannsins á Vestfjörðum, dags. 14. júlí sl., um umsögn vegna umsóknar Guðríðar Guðmundsdóttur, dags. 13. júlí sl., um endurnýjun rekstrarleyfis gististaðar í flokki II að Fjarðarstræti 6, Ísafirði.
Lagt fram til kynningar.

16.Trúnaðarmál á stjórnsýslusviði - 2014090027

Lögð verða fram gögn vegna þriggja trúnaðarmála af fjölskyldusviði.
Bókun er færð í trúnaðarmálabók bæjarráðs.

17.Fundarboð - fundur stofnfjáreigenda Sparisjóðs Norðurlands - 2015070044

Lagt er fram fundarboð vegna fundar stofnfjáreigenda í Sparisjóði Norðurlands ses. sem haldinn verður þriðjudaginn 11. ágúst n.k.
Lagt fram til kynningar.

18.Minjasjóður Önundarfjarðar 2013-2014 - 2013080025

Lagður er fram til kynningar ársreikningur sjálfseignarstofnunar Minjasjóðs Önundarfjarðar fyrir árið 2014.
Lagt fram til kynningar.

19.Ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla, framkvæmdaleyfi. - 2013030023

Lagðar eru fram til kynningar fundargerðir Framkvæmdasýslu ríkisins vegna ofanflóðavarna Ísafirði, byggðar neðan Gleiðarhjalla, frá 9. og 21. júlí sl.
Lagt fram til kynningar.

20.Hverfisráð Ísafjarðarbæjar, fundargerð stjórnar Hverfisráðs eyrar og efri bæjar - 2011030002

Lögð er fram fundargerð stjórnar Hverfisráðs eyrar og efri bæjar, sem hladinn var fimmtudaginn 21. maí sl.
Lagt fram til kynningar.

21.Hverfisráð Ísafjarðarbæjar, fundargerð Íbúasamtaka Hnífsdals - 2011030002

Lögð er fram fundargerð íbúafundar á vegum Íbúasamtaka Hnífsdals sem haldinn var 29. júní sl. ásamt tillögu um lagfæringar í Stekkjargötu, Hnífsdal.
Lagt fram til kynningar.

22.Fundargerðir nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis - 2014080051

Lögð er fram fundargerð 49. fundar nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði sem haldinn var 16. júlí sl. Fundargerðin er í 7 liðum.
Lagt fram til kynningar.

23.Fundargerðir nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis - 2014080051

Lögð er fram fundargerð 50. fundar nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis sem haldinn var 5. ágúst sl., fundargerðin er í 3 liðum.
Lagt fram til kynningar.

24.Fundargerðir hafnarstjórnar - 2014080049

Lögð er fram fundargerð 180. fundar hafnarstjórnar sem haldinn var 13. júlí sl. Fundargerðin er í 4 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:40.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?