Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
887. fundur 01. júní 2015 kl. 08:05 - 09:40 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Jónas Þór Birgisson varamaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Gatnagerð á Hlíðarvegi - 2013100042

Lögð er fram áskorun íbúa utanverðs Hlíðarvegar, dags. 13. maí sl., um breytingar á framkvæmdum við Hlíðarveg, auk minnisblaðs Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 22. maí sl.
Bæjarráð samþykkir að gerðar verði þær breytingar sem íbúar Hlíðarvegar óskuðu eftir, þ.e. að snúningsplani við enda götunnar yrði breytt í bílastæði.

2.100 ára afmæli kosningaréttar kvenna - 2014080014

Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 21. maí sl., með tillögu að fríi 19. júní n.k.
Bæjarráð samþykkir að veita starfsfólki Ísafjarðarbæjar frí milli kl. 13:00 og 17:00, samkvæmt nánari útlistun í framlögðu minnisblaði.

3.Greiðslur til bæjarfulltrúa og nefndarmanna - 2013020002

Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 26. maí sl., með tillögu að breytingu á reglum um greiðslur til bæjarfulltrúa og nefndarmanna.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar um greiðslur til bæjarfulltrúa og nefndarmanna.

4.Endurskoðun mats á umhverfisáhrifum Vestfjarðarvegar - 2011040071

Lögð er fram ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 26. maí sl., um endurskoðun mats á umhverfisáhrifum Vestfjarðarvegar um Reykhólahrepp.
Lagt fram til kynningar.

5.Varasjóður húsnæðismála, framlög til sveitarfélaga vegna sölu eigna - 2012070020

Lagt er fram bréf Guðna Kristjánssonar, framkvæmdastjóra Varasjóðs húsnæðismála, frá 21. maí sl., um lok verkefnis um framlög til sveitarfélaga vegna sölu félagslegra eignar- og leiguíbúða á almennum markaði.
Bæjarráð mótmælir þessari fyrirætlun þar sem hún er andstæð hagsmunum sveitarfélagsins og felur bæjarstjóra að svara bréfritara.

6.Rafstrengur í landi Dynjanda, frá Snjalleyri að Laugabóli - framkvæmdaleyfi - 2015050037

Lögð er fram umsókn Orkubús Vestfjarða ohf. um framkvæmdaleyfi vegna lagningu rafstrengs frá Snjalleyri að Laugabóli. Umsóknin var tekin fyrir á 435. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, þar sem eftirfarandi var bókað: "Skipulags- og mannvirkjanefnd telur, í ljósi framlagðra gagna, að framkvæmdin geti ekki talist meiri háttar og hafi ekki umtalsverð áhrif á umhverfið eða breyti ásýnd þess og sé því ekki framkvæmdaleyfisskyld."
Bæjarráð gerir hvorki athugasemdir við afgreiðslu skipulags- og mannvirkjanefndar né að framkvæmdin eigi sér stað.

7.Áform um uppbyggingu atvinnustarfsemi á Þingeyri - 2015050064

Kjartan Hauksson mætir sem gestur á fund bæjarráðs þar sem hann mun kynna áform sín um uppbyggingu atvinnustarfsemi á Þingeyri.
Bæjarráð þakkar Kjartani fyrir innlitið.
Kjartan yfirgefur fundinn kl. 8:56.

Gestir

  • Kjartan Hauksson - mæting: 08:36

8.Hvammur, Dýrafirði - landamerki - 2015050067

Lögð er fram yfirlýsing um landamerki milli séreigna landeigenda Hvamms í Dýrafirði til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir framlagða yfirlýsingu um landamerki og felur bæjarstjóra að undirrita nauðsynleg gögn.

9.60. fjórðungsþing Vestfirðinga - 2015050061

Lagt er fram bréf Fjórðungssambands Vestfirðinga, dags. 27. maí sl., með boði á 60. Fjórðungsþing Vestfirðinga, haldið á Patreksfirði 3. og 4. október n.k.
Lagt fram til kynningar.

10.Málþing og sýning um sr. Sigtrygg Guðlaugsson að Núpi - 2015050065

Lagður er fram tölvupóstur Kristins Jóhanns Níelssonar, frá 27. maí sl., til upplýsingar, vegna málþings og sýningar um sr. Sigtrygg Guðlaugsson.
Lagt fram til kynningar.

11.Fræðsla og forvarnir, beiðni um styrk - 2015010017

Lagður er fram tölvupóstur frá Fræðslu og forvörnum með beiðni um styrk til útgáfu tímaritsins Áhrifa um forvarnir og vímuefnamál.
Bæjarráð hafnar erindinu.

12.Verkefni mannauðsstjóra - 2015040065

Lagt er fram minnisblað Herdísar Rósar Kjartansdóttur, mannauðsstjóra, dags. 30. apríl sl.
Bæjarráð þakkar upplýsingarnar.

13.Mánaðaryfirlit 2015 - 2015020081

Lagt er fram uppgjör Q1 sem sent var Hagstofu 8. maí síðastliðinn. Einnig er lagt fram yfirlit á skatttekjum og launum fyrir fyrstu 4 mánuði 2015 af Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 29.5.15
Edda María Hagalín, fjármálastjóri mætti til fundarins og fór yfir yfirlitið.
Edda María yfirgaf fundinn kl. 09:27.

Gestir

  • Edda María Hagalín, fjármálastjóri - mæting: 09:04

14.Fundargerðir Fjórðungssambands Vestfirðinga 2014/2015 - 2014090054

Lögð er fram fundargerð stjónarfundar Fjórðungssambands Vestfirðinga sem haldinn var 11. maí sl.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

15.Ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla, framkvæmdaleyfi. - 2013030023

Lögð er fram til kynningar fundargerð fundar Framkvæmdasýslu ríkisins sem haldinn var 15. maí sl., vegna ofanflóðavarna Ísafirði, byggðar neðan Gleiðarhjalla.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

16.Hverfisráð Ísafjarðarbæ - 2011030002

Lagðar eru fram til kynningar fundargerðir Hverfisráðs Önundarfjarðar frá 18. mars sl. og 19. maí sl.
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

17.Fræðslunefnd - 356 - 1505006F

Fundargerð 356. fundar sem haldinn var 19. maí sl., fundargerðin er í 8 liðum.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

18.Hafnarstjórn - 179 - 1505011F

Fundargerð 179. fundar hafnarstjórnar sem haldinn var 19. maí sl., fundargerðin er í 5 liðum.
Fundargerðin lögð fram til kynningar. Bæjarráð þakkar starfsfólki bæjarskrifstofunnar og öðrum íbúum bæjarins sem tóku þátt í hreinsun á Suðurtanganum.

19.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 434 - 1504016F

Fundargerðar 434. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 20. maí sl., fundargerðin er í 10 liðum.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

20.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 435 - 1505013F

Fundargerð 435. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 27. maí sl., fundargerðin er í 1 lið.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

21.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 14 - 1505014F

Fundargerð 14. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 28. maí sl., fundargerðin er í 2 liðum.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:40.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?