Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
882. fundur 20. apríl 2015 kl. 08:05 - 10:08 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Sýslumaðurinn á Ísafirði - leyfisveitingar 2015 - 2015010098

Lögð er fram umsókn Sólbakka 6 ehf., dags. 24. mars sl., um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II ásamt umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa Ísafjarðarbæjar, dags. 16. apríl sl.
Bæjarráð samþykkir erindið með vísan til fordæma við fyrri afgreiðslur, en óskar eftir að skipulags- og mannvirkjanefnd taki þessi mál til skoðunar í þeirri aðalskipulagsvinnu sem núna stendur yfir.

2.Grunnskólinn á Suðureyri, lóðarfrágangur 2015 - 2014120035

Lagt er fram bréf Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 15. apríl sl., vegna tilboða í verkið "Grunnskólinn á Suðureyri frágangur lóðar 2015" þar sem lagt er til að samið verði við Gröfuþjónustu Bjarna ehf. um verkið.
Bæjarráð samþykkir að samið verði við Gröfuþjónustu Bjarna ehf. vegna verksins Grunnskólinn á Suðureyri frágangur lóðar 2015 að uppfylltum skilyrðum innkaupareglna Ísafjarðarbæjar.

3.Þvergata hellulögn - 2015030074

Lagt er fram bréf Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 15. apríl sl. vegna verksins "Þvergata á Ísafirði endurgerð" þar sem lagt er til að samið verði við Gröfuþjónustu Bjarna ehf. um verkið.
Bæjarráð samþykkir að samið verði við Gröfuþjónustu Bjarna ehf. vegna verksins Þvergata á Ísafirði endurgerð að uppfylltum skilyrðum innkaupareglna Ísafjarðarbæjar.

4.Bílastæði við Neðstakaupstað - 2014030044

Lagt er fram bréf Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 15. apríl sl., vegna verksins "Bílastæði í Neðstakaupstað, bílastæðagerð og hellulögn" þar sem lagt er til að samið verði við G.E. Vinnuvélar ehf. um verkið.
Bæjarráð samþykkir að samið verði við G.E. Vinnuvélar ehf. vegna verksins Bílastæði í Neðstakaupstað, bílastæðagerð og hellulögn að uppfylltum skilyrðum innkaupareglna Ísafjarðarbæjar.

5.Ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla, garður 5 - 2013030023

Lagt er fram minnisblað Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 16. apríl sl., vegna ofanflóðavarna neðan Gleiðarhjalla, garðs 5, tillaga að framkvæmd seinni áfanga.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við erindið en óskar eftir því að sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs hugi að hagsmunum bæjarins varðandi fráveitumál við verkhönnun garðsins.

6.Framtíðarhúsnæði fyrir skjalasafnið - 2014050036

Bæjarstjóri gerir grein fyrir stöðunni.

7.Ársreikningur Ísafjarðarbæjar 2014 - 2015010057

Edda María Hagalín, fjármálastjóri, mætir til fundarins og gerir grein fyrir stöðu ársreiknings Ísafjarðarbæjar, stofnana hans og fyrirtækja fyrir starfsárið 2014.
Bæjarráð samþykkir ársreikning Ísafjarðarbæjar stofnana hans og fyrirtækja fyrir starfsárið 2014 til endurskoðunar.
Bæjarráð samþykkir jafnframt að ársreikningurinn verði lagður fyrir fund bæjarstjórnar 21. apríl n.k. til fyrri umræðu.

Gestir

  • Edda María Hagalín, fjármálastjóri - mæting: 09:00

8.Framtíðarskipulag íþróttamannvirkja á Ísafirði - 2015020087

Lagt er fram bréf Jóhanns Birkis Helgasonar, dags. 15. apríl sl., varðandi íþróttamannvirki á Ísafirði.
Bæjarráð þakkar erindið.

9.Félagsmálanefnd - 396 - 1504008F

Fundargerð 396. fundar félagsmálanefndar sem haldinn var 14. apríl sl. Fundargerðin er í 5 liðum.
Lögð fram til kynningar.

10.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 432 - 1504006F

Fundargerð 432. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 15. apríl sl. Fundargerðin er í 9 liðum.
Lögð fram til kynningar.
Daníel Jakobsson tilkynnti að hann yrði í fríi frá störfum bæjarráðs til 1. september n.k.

Fundi slitið - kl. 10:08.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?