Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
874. fundur 16. febrúar 2015 kl. 08:05 - 10:15 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Almennar styrkbeiðnir og styrktarlínur 2015 - 2015010017

Lagt er fram bréf Kristjáns Einarssonar, formanns undirbúningsnefndar þorrablóts Flateyringa, dags. 11. febrúar sl.
Bæjarráð samþykkir beiðni um niðurfellingu á gjöldum er varða leigu á íþróttahúsinu á Flateyri.

2.Landsfundur Sjálfsbjargar á Ísafirði - 2015020063

Lagt er fram bréf Magnúsar Reynis Guðmundssonar, formanns Sjálfsbjargar á Ísafirði, dags. 10. febrúar sl., vegna landsfundar samtakanna.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram og afgreiða í samræmi við umræður á fundinum.

3.Dægradvöl - húsnæði - 2013010070

Lagt er fram minnisblað Margrétar Halldórsdóttur, sviðstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 10. febrúar sl., með beiðni um húsnæði fyrir Dægradvöl.
Bæjarráð samþykkir erindið, með þeim fyrirvara að það leiði ekki til frekari kostnaðar en gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun.

4.Tjón vegna asahláku í febrúar 2015 - 2015020033

Lagt er fram minnisblað Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra, dags. 12. febrúar sl., auk minnisblaðs Herdísar Sigurjónsdóttur, dags. 10. febrúar sl., um úrvinnslu mála vegna asahláku
Bæjarráð samþykkir erindið og felur bæjarstjóra að gera viðauka vegna málsins.

5.Tillögur að breyttri tilhögum á úthlutun til landshlutanna. - 2015020074

Lagður er fram tölvupóstur Hrafnhildar Ýrar Víglundsdóttur, f.h. Ferðamálastofu, bréf Ólafar Ýrr Atladóttur, ferðamálastjóra, dags. 3. desember 2014 um tillögur á breyttri tilhögun á úthlutunum til landshlutanna, auk áliti hagsmunaðila á Vestfjörðum á breyttu vinnulagi.
Díana Jóhannsdóttir mætir til fundarins undir þessum lið kl. 08:42.
Umræður fóru fram um þessa breyttu tilhögun, fulltrúar Ísafjarðarbæjar munu mæta á boðaðan fund með Ferðamálastjóra 23. febrúar n.k. til að ræða málið enn frekar.

6.Frumvarp til laga um náttúrupassa - 2015020032

Lagt er fram frumvarp til laga um náttúrupassa, 455. mál. Frumvarpið var tekið fyrir á 9. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar.
Lögð voru fram drög að ályktun fyrir bæjarstjórn vegna frumvarps til laga um náttúrupassa.
Díana Jóhannsdóttir yfirgefur fundinn kl. 09:15.

7.Frumvarp til laga um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn - 2015020035

Lagt er fram frumvarp til laga um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn, 427. mál. Frumvarpið var tekið fyrir á 9. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar.
Bæjarráð tekur undir bókun umhverfis- og framkvæmdanefndar en gerir ekki frekari athugasemdir við frumvarpið.

8.Velferðarráðuneyti - Ýmis erindi 2014-2015 - 2014010051

Lagður er fram tölvupóstur frá Velferðarráðuneytinu 11. febrúar sl., vegna breytinga á lánveitingum Íbúðalánasjóðs.
Lagt fram til kynningar.

9.Tækjahús og 30m mastur á Laugabólsfjalli - byggingarleyfi - Sæstrengur Arnarfirði - 2014050056

Lagt er fram bréf Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra, dags. 29. janúar sl., til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi vegna Sæstrengs í Arnarfirði.
Málinu er frestað til næsta fundar.

10.Gatnagerð á Hlíðarvegi - 2013100042

Lagt er fram bréf Brynjars Þórs Jónassonar, sviðstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 12. febrúar sl., vegna endurbyggingar Hlíðarvegs.
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðstjóra umhverfis- og eignasviðs og felur honum að ganga til samninga við Gámaþjónustu Vestfjarða ehf.

11.Ísafjarðarhöfn - ýmis mál 2015-2016 - 2015020034

Fyrir 177. fundi hafnarstjórnar lágu tilboð frá Vegagerðinni, hafnarmáalsviði, og Verkís vegna hönnunar og eftirlits á byggingu þybbu við enda Mávagarðs.
Bæjarráð samþykkir tillögu hafnarstjórnar og felur hafnarstjóra að ganga til samninga við Verkís vegna verksins.

12.Frumvarp til laga um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum - 2015020037

Lagt er fram frumvarp til laga um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum, 512. mál. Frumvarpið var lagt fram til kynningar á 9. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar.
Bæjarráð vísar frumvarpinu til slökkviliðsstjóra til umsagnar.

13.Frumvarp til laga um stjórn vatnamála - 2015020036

Lagt er fram frumvarp til laga um stjórn vatnamála, 511. mál. Frumvarpið var tekið fyrir á 9. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar.
Lagt fram til kynningar.

14.Atvinnumál á Flateyri - 2010110076

Lagt er fram minnisblað Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra, dags. 13. febrúar sl., auk upplýsinga um verkefnið Sterkari stoðir.
Bæjarráð vísar málinu til atvinnu- og menningarmálanefndar. Bæjarráð óskar eftir að fá að sitja fund með atvinnu- og menningarmálanefnd.

15.Samstarfssamningur Héraðssambands Vestfirðinga og Ísafjarðarbæjar - 2011010006

Lagt er fram bréf Sigríðar Láru Gunnlaugsdóttur, framkvæmdastjóra HSV, dags. 6. febrúar sl., varðandi samstarfssamning Ísafjarðarbæjar og HSV.
Lagt fram til kynningar.

16.Fundargerðir Fjórðungssambands Vestfirðinga 2014/2015 - 2014090054

Lagðar eru fram fundargerðir Fjórðungssambands Vestfirðinga frá 2. og 9. febrúar sl. auk samnings um sóknaráætlun Vestfjarða 2015-2019.
Lagðar fram til kynningar.

17.Samb.ísl.sveitarf. - Ýmis erindi og fundargerðir 2015 - 2015010049

Fundargerð 824. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lögð fram til kynningar.

18.Hafnarstjórn - 177 - 1502006F

177. fundur hafnarstjórnar haldinn 10. febrúar sl., fundargerðin er í 6 liðum.
Lögð fram til kynningar.

19.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 427 - 1501008F

427. fundur skipulags- og mannvirkjanefndar, haldinn 11. febrúar sl., fundargerðin er í 1 lið.
Lögð fram til kynningar.

20.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 9 - 1501017F

9. fundur umhverfis- og framkvæmdanefndar haldinn 12. febrúar sl., fundargerðin er í 7 liðum.
Lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:15.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?