Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
873. fundur 09. febrúar 2015 kl. 08:10 - 10:15 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir varamaður
  • Jónas Þór Birgisson varamaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
  • Hjördís Þráinsdóttir skjalastjóri
Fundargerð ritaði: Hjördís Þráinsdóttir skjalastjóri
Dagskrá

1.Tjón vegna asahláku í febrúar 2015 - 2015020033

Rætt um tjón og aðgerðir vegna asahláku sem varð um liðna helgi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgjast með framvindu mála.

2.Tjaldsvæði Tungudalur 2015 - 2014090032

Lagt fram minnisblað Ralfs Trylla, umhverfisfulltrúa, dagsett 30. janúar sl., þar sem hann leggur til að komið verði til móts við verktaka, sem séð hefur um rekstur tjaldsvæðisins, vegna raforkukostnaðar.
Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisfulltrúa.

3.Frímerkjaútgáfa í tilefni 150 ára kaupstaðarafmælis Ísafjarðarbæjar - 2015020031

Lagður fram tölvupóstur Vilhjálms Sigurðssonar, forstöðumanns frímerkjasölu Póstsins, dagsettur 6. febrúar sl., þar sem hann tilkynnir að ákveðið hafi verið að gefa út frímerki í tilefni 150 ára kaupstaðarafmælis Ísafjarðarbæjar árið 2016.
Lagt fram til kynningar.

4.Leiga á efri hæð Hafnarstrætis 11, Flateyri - Dellusafn - 2011020091

Lagður fram leigusamningur milli eigasjóðs Ísafjarðarbæjar og Dellusafnsins um leigu á húsnæði að Hafnarstræti 11, Flateyri.
Bæjarráð staðfestir samninginn.

5.Mánaðaryfirlit 2014 - 2014090065

Lagt fram minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dagsett 29. janúar sl., ásamt rekstraryfirliti 31.12.2014.
Lagt fram til kynningar.

6.Ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla, framkvæmdaleyfi. - 2013030023

Lagður fram tölvupóstur Halldóru Vífilsdóttur, fyrir hönd Framkvæmdasýslu ríkisins, dagsettur 3. febrúar sl., ásamt sáttagjörð, vegna kröfu Íslenskra aðalverktaka um greiðslu á efni í jöfnunarlag. Lagt er til að fallist verði á niðurstöðu sáttamanns, sem fram kemur í fyrrgreindri sáttagjörð.
Bæjarráð samþykkir erindið.

7.Sjónvarp í dreifbýli - 2015020029

Lagður fram tölvupóstur Jóns Jónssonar, menningarfulltrúa Vestfjarða, dagsettur 4. febrúar sl., vegna breytinga á möguleikum íbúa í dreifbýli til að sjá sjónvarp eftir að slökkt var á hliðrænni útsendingu RÚV. Óskað hefur verið eftir upplýsingum frá RÚV um þá staði sem ekki ná stafrænni útsendingu, og óskar Jón einnig eftir upplýsingum frá sveitarfélögum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka saman upplýsingar um þá staði í dreifbýli sem ekki ná stafrænni útsendingu.

8.Tilnefning í ráðgjafanefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga - 2015010049

Lagt fram afrit af bréfi Sambands íslenskra sveitarfélaga til innanríkisráðuneytis, dagsett 2. febrúar sl., þar sem tilkynnt er um tilnefningar í ráðgjafanefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, en Kristján Andri Guðjónsson, bæjarfulltrúi, var tilnefndur sem varamaður.
Lagt fram til kynningar.

9.Almennar styrkbeiðnir og styrktarlínur 2015 - 2015010017

Lagt fram bréf frá Yrkjusjóði, dagsett 4. febrúar sl., þar sem óskað er eftir styrk til kaupa á trjáplöntum, sem síðan verður úthlutað til grunnskólanema til plöntunar.
Bæjarráð hafnar erindinu.

10.Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. - 2015010049

Lagður fram tölvupóstur Magnúsar Karels Hannessonar, fyrir hönd Sambandsins, ásamt fundargerð 824. fundar stjórnar Sambandsins, sem haldinn var 30. janúar sl.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

11.Fundargerð fræðslunefndar - 1502002F

353. fundur, haldinn 5. febrúar 2015.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

12.Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar - 1502001F

155. fundur, haldinn 4. febrúar 2015.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:15.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?