Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
870. fundur 19. janúar 2015 kl. 08:05 - 10:15 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Mánaðaryfirlit 2014 - 2014090065

Lagt er fram minnisblað Eddu Maríu Hagalín um skatttekjur og laun 31. desember 2014, ásamt yfirlitum yfir framlög Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga.
Edda María Hagalín mætir til fundarins undir þessum lið kl. 8:15.

2.Tækjahús og 30m mastur á Laugabólsfjalli - byggingarleyfi - Sæstrengur Arnarfirði - 2014050056

Lagt er fram bréf Friðriks Friðrikssonar, hdl., f.h. Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, dags. 9. janúar sl. auk minnisblaðs Ólafar Guðnýjar Valdimarsdóttur, skipulags- og byggingarfulltrúa, dags. 15. janúar sl.
Daníel Jakobsson óskar eftir að bóka að stjórnsýsla Ísafjarðarbæjar hafi ekki verið til fyrirmyndar í þessu máli og eigi að leiða til þess að við bætum vinnulag. Að öðru leyti er málið lagt fram til kynningar.

3.Vatnsleki við sjúkrahúsið á Torfnesi - 2015010063

Lagt er fram bréf Þrastar Óskarssonar, forstjóra Heilbriðisstofnunar Vestfjarða, dags. 13. janúar 2014, vegna vatnsleka við sjúkrahúsið á Torfnesi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna frekar í málinu.

4.Varmadæla í skotæfingahúsnæði - 2015010075

Lagður er fram tölvupóstur Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra, frá 15. janúar sl., þar sem skotíþróttafélag Ísafjarðar óskar eftir styrk Ísafjarðarbæjar til kaupa á varmadælu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna frekar í málinu.

5.Hjúkrunarheimili á Ísafirði - 2011120009

Lögð er fram fyrirspurn Daníels Jakobssonar og Kristínar Hálfdánsdóttur varðandi byggingu hjúkrunarheimilisins Eyrar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni í samráði við formann nefndar um byggingu hjúkrunarheimilisins Eyrar.

6.Hverfisráð Ísafjarðarbæ - 2011030002

Lögð er fram til kynningar fundargerð frá stofnfundi Íbúasamtakanna í Hnífsdal, hverfisráðs Hnífsdals.
Lagt fram til kynningar.

7.Íþrótta- og tómstundanefnd - 153. - 1501001F

153. fundur haldinn 14. janúar, fundargerðin er í fimm liðum.
Lögð fram til kynningar.

8.Íþrótta- og tómstundanefnd - 154 - 1501009F

154. fundur haldinn 15. janúar sl., fundargerðin er í einum lið.
Lögð fram til kynningar.

9.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 425 - 1412013F

425. fundur haldinn 14. janúar sl., fundargerðin er í 10. liðum.
Lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:15.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?