Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
868. fundur 22. desember 2014 kl. 08:05 - 10:15 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Díoxínmengun - bótakröfur o.fl. - 2011040059

Lögð eru fram drög að samkomulagi
Bæjarráð samþykkti drögin að samkomulaginu og felur bæjarstjóra að ganga frá samningnum.

2.Reykjavíkurflugvöllur í Vatnsmýri - 2014080017

Lagt er fram til kynningar bréf Friðriks Pálssonar og Njáls Trausta Friðbertssonar, f.h. hópsins Hjartað í Vatnsmýrinni, til innanríkisráðherra, dags. 17. desember sl., vegna deiliskipulags í tengslum við Reykjavíkurflugvöll.
Lagt fram til kynningar.

3.Samstarfsnefnd um friðlandið Hornstrandir - tilnefning fulltrúa - 2014120033

Lagt er fram bréf Ólafs A. Jónssonar og Kristínar L. Árnadóttur, f.h. Umhverfisstofnunar, dags. 12. desember sl., vegna samstarfsnefndar um friðlandið Hornstrandir.
Bæjarráð tilnefnir hér með Gísla Halldór Halldórsson og Andreu Harðardóttur.

4.Vinabæjarsamstarf Ísafjarðarbæjar og Kujalleq Kommune á Grænlandi - 2014120052

Lagður er fram tölvupóstur Frank Hedegaard Jørgensen, frá 18. desember sl., þar sem óskað er eftir framlengingu á vinabæjarsamstarfi Ísafjarðarbæjar við Nanortalik til Kujalleq.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samstarfi við Frank Hedegaard Jørgensen.

5.Vatnssala frá Ísafirði - 2007080062

Lagður er fram tölvupóstur Birgis Viðars Halldórssonar, frá 16. desember sl., með beiðni um framlengingu á vatnskaupasamningi við Ísafjarðarbæ.
Bæjarráð samþykkir framlengingu á vatnskaupasamningi um 1 ár.

6.Hverfisráð Ísafjarðarbæ - 2011030002

Lagt er fram til kynningar minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 19. desember sl., um stofnun hverfisráða í Súgandafirði og Önundarfirði
Lagt fram til kynningar.

7.Fossavatnsgangan 2014 - styrkbeiðni - 2014100049

Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 19. desember sl., vegna beiðni Fossavatnsgöngunnar um styrk í formi greiðslu á leigu í Edinborgarhúsinu vegna Fossavatnsgöngunnar 2015.
Bæjarráð samþykkir að nýta inneign Ísafjarðarbæjar hjá Edinborgarhúsinu til að greiða niður 50% af heildar leigukostnaði Fossavatnsgöngunnar í Edinborgarhúsinu 2.-3. maí n.k.

Daníel Jakobsson yfirgaf fundinn undir þessum lið.

8.Beiðni um afnot af húsi - 2014120055

Lagt er fram minnisblað Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra, vegna beiðni Arnar Elíasar Guðmundssonar um afnot af húsi í eigu Ísafjarðarbæjar.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.

9.Fjölgun brunahana á Þingeyri - 2014120056

Lagt er fram bréf Kristjáns Gunnarssonar, liðsstjóra slökkviliðsins á Þingeyri, dags. í desember 2014, varðandi fjölgun á brunahönum á Þingeyri.
Bæjarráð vísar erindinu til slökkviliðsstjóra.

10.Fundargerðir bæjarstjórnar - 2014080045

Umræður um fundarhöld bæjarstjórnar í janúar.
Bæjarráð tekur ákvörðun um að fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir áramót verði 3. fimmtudaginn í janúar, þ.e. 15. janúar n.k.

11.Samb.ísl.sveitarf. - Ýmis erindi og fundargerðir 2014 - 2014010071

Lögð er fram til kynningar fundargerð 823. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, frá 12. desember sl.

12.Fundargerðir fræðslunefndar - 2014080047

351. fundargerð - 18. desember 2014

13.Fundargerðir íþrótta- og tómstundanefndar - 2014080050

152. fundur - 17. desember 2014

14.Fundargerðir skipulags- og mannvirkjanefndar - 2014080055

423. fundur - 17. desember 2014

Fundi slitið - kl. 10:15.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?