Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1372. fundur 25. júní 2026 kl. 08:10 - 09:04 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján Þór Kristjánsson formaður
  • Stefán Hannibal Hafberg varamaður
    Aðalmaður: Elísabet Samúelsdóttir
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Svanfríður G Bergvinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Fráveita Þingeyri - Ofanvatnblágrænar lausnir - 2026050115

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, Axels R. Överby, dags. 23. júní 2026, þar sem lagt er til að samið verði við Kjarnasögun ehf. grundvelli tilboðs.
Bæjarráð samþykkir að samið verði við Kjarnasögun ehf. á grundvelli tilboðs.

Gestir

  • Axel R. Överby, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs - mæting: 08:10

2.Ný slökkvistöð - Hönnun og útboð - 2024120087

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, Axels R. Överby, dags. 22. júní 2026, þar sem lagt er til að samið verði við Tanga ehf. á grundvelli tilboðs.
Bæjarráð samþykkir að samið verði við Tanga ehf. á grundvelli tilboðs.
Axel yfirgaf fund kl. 8.23.

3.Mánaðaryfirlit launakostnaðar 2026 - 2026020074

Lagt fram til kynningar minnisblað Helgu Sigríðar Hjálmarsdóttur, launafulltrúa, dags. 19. júní 2026, um launakostnað fyrir janúar - maí árið 2026.
Bæjarráð óskar frekari skýringa á fræðslusviði og skíðasvæði, með hliðsjón af minnisblaði, og felur bæjarstjóra að leggja fram á næsta fundi.

4.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - grænbók um fjarskipti og netöryggi - 2026010014

Lagt fram erindi innviðaráðuneytisins, dags 19. júní 2026, sem undirbýr gerð grænbókar um fjarskipti og netöryggi. Með forsamráði er óskað eftir sjónarmiðum um hvaða viðfangsefni, álitaefni, áskoranir og tækifæri grænbókin eigi að fjalla um.
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar.

5.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - hvítbók um byggðamál - 2026010014

Lagt fram erindi innviðaráðuneytisins, dags 19. júní 2026, "Hvítbók um byggðamál". Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026.

Á 1358. fundi bæjarráðs, þann 5. febrúar 2026, var umsagnarbeiðni innviðaráðuneytisins um "Grænbók um byggðamál", mál nr. 22/2026, lagt fyrir bæjarráð til kynningar.
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar.

6.Aðalfundur Hvetjanda 2025 - 2026060107

Lagður fram til kynningar ársreikningur Hvetjanda ehf. fyrir 2025, en aðalfundur fór fram 23. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

7.Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði - fundargerðir stjórnar 2026 - 2026020075

Lögð fram til kynningar fundargerð 5. fundar 2026 stjórnar stjórnsýsluhússins á Ísafirði en fundur var haldinn 16. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

8.Hafnarstjórn - 271 - 2606009F

Lögð fram til kynningar fundargerð 271. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 16. júní 2026.

Fundargerðin var í 5 liðum.
Lagt fram til kynningar.

9.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 673 - 2606010F

Lögð fram til kynningar fundargerð 673. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 18. júní 2026.

Fundargerðin var í 14 liðum.
Lagt fram til kynningar.

10.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 44 - 2606011F

Lögð fram til kynningar fundargerð 44. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 19. júní 2026.

Fundargerðin er í 11 liðum.
Lagt fram til kynningar.

11.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 169 - 2606012F

Lögð fram til kynningar fundargerð 169. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 18. júní 2026.

Fundargerðin var í 7 liðum.
Lagt fram til kynningar.

12.Velferðarnefnd - 504 - 2606006F

Lögð fram til kynningar fundargerð 504. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 18. júní 2026.

Fundargerðin var í 8 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:04.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?