Bæjarráð
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
2.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - 09 Malbikun
Dagskrá
1.Fræðsla fyrir kjörna fulltrúa 2026 - 2026060025
Bryndís Ósk Jónsdóttir, bæjarritari, er með fræðslu fyrir nýkjörna fulltrúa.
Lagt fram til kynningar.
2.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - 09 Malbikun
- 2025120020
Á 1370. fundi bæjarráðs, þann 11. júní 2026, var lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, Axels R. Överby, dags. 11. maí 2026, vegna malbiksframkvæmda ársins 2026. Bæjarráð samþykkti tillögu sviðsstjóra að næstu skrefum varðandi útboð á malbikun hjá Ísafjarðarbæ 2026, þ.e. beinu innkaupaferli í kjölfar höfnunar tilboða hjá Vegagerðinni. Bæjarstjóra var falið að leggja fram viðauka á næsta fundi bæjarráðs.
Er viðauki 9 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar nú lagður fram til samþykktar, ásamt minnisblaði Axels R. Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 16. júní 2026.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000.
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka 9 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026 vegna malbikunar ársins.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000.
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000.
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000.
Gestir
- Axel R. Överby, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs - mæting: 08:18
3.Forkaupsréttur - Fjarðarstræti 16 Ísafirði - 2026060126
Lagt fram erindi Guðmundar Óla Tryggvasonar, dags. 15. júní 2026, varðandi athugun á því hvort Ísafjarðarbær vilji nýta forkaupsrétt sinn að fasteigninni Fjarðarstræti 16, Ísafirði, nr. 211-9491. Fyrirliggjandi kauptilboð er að fjárhæð kr. 9.000.000.
Jafnframt lagt fram fyrirvaralaust kauptilboð og eignaskiptayfirlýsing.
Jafnframt lagt fram fyrirvaralaust kauptilboð og eignaskiptayfirlýsing.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að Ísafjarðarbær nýti forkaupsrétt sinn að fasteigninni Fjarðarstræti 16, Ísafirði, fnr. 211-9491.
Axel yfirgaf fund kl. 8:36.
4.Aukning á stöðugildum skólaárið 2026-2027 - 2026060125
Lagt fram erindi Ernu Höskuldsdóttur, skólastjóra Grunnskólans á Þingeyri, dags. 13. maí 2026, varðandi aukningu á stöðugildum skólans skólaárið 2026-2027 vegna fjölgunar nemenda. Einnig lagt fram minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 15. júní 2026.
Bæjarráð samþykkir aukningu á einu stöðugildi vegna eins starfsmanns fyrir kennslu 1. bekkjar veturinn 2026-2027, og felur bæjarstjóra að gera viðauka við launaáætlun og leggja fyrir fund bæjarráðs til samþykktar.
Hafdís yfirgaf fund kl. 8:50.
Gestir
- Hafdís Gunnarsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs - mæting: 08:36
5.Vefslóð Ísafjarðarbæjar - 2026060106
Lagt fram minnisblað Gylfa Ólafssonar, bæjarstjóra, dags. 9. júní 2026, varðandi breytingar á vefslóð Ísafjarðarbæjar.
Bæjarráð samþykkir breytingar á vefslóð Ísafjarðarbæjar í samræmi við minnisblað bæjarstjóra, og felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir.
6.Beiðni um að Ísafjarðarbær óski eftir að settar verði sérreglur um byggðakvóta varðandi ufsa - 2026060128
Lagt fram erindi frá Karen Elísabet S. Halldórsdóttir, dags. 14. júní 2026, þar sem óskað er eftir því að Ísafjarðarbær beiti sér fyrir því að Ísafjarðarbær setji sérreglur um löndun mótframlags til byggðakvóta á ufsa, þannig að öllum fiski sem landað væri á Suðureyri myndi teljast sem mótframlag þrátt fyrir að verða í einhverjum tilfellum seldur í gegnum fiskmarkað. Með öðrum orðum að fallið verði frá vinnsluskyldu á ufsa sem Íslandssaga sér sér ekki fært að nýta.
Bæjarráð beinir því til bæjarstjórnar að líta til erindisins næst þegar bæjarstjórn getur komið að athugasemdum vegna sérreglna sveitarfélagsins vegna byggðakvóta.
7.Endurskoðun á byggðakvótakerfinu - 2026050079
Á 1370. fundi bæjarráðs, þann 11. júní 2026, var lagt fram erindi innviðaráðuneytisins, dags. 11. maí 2026, þar sem óskað var eftir umsögn sveitarfélagsins vegna endurskoðunar á byggðakvótakerfinu. Auk bréfsins fylgdi yfirlit yfir helstu tillögur og ábendingar sem komið hafa fram um breytingar á byggðakvótakerfinu. Þá fylgdi spurningalisti í Word-formi, samhljóða þeim atriðum sem fram koma í bréfinu. Framlengdur frestur til svara er 16. júní 2026. Bæjarráð fól bæjarstjóra að gera umsögn og leggja fyrir bæjarráð að nýju. Jafnframt fól bæjarráð bæjarstjóra að sækja um frest fram til 18. júní 2026.
Er drög að umsögn bæjarstjóra nú lögð fyrir bæjarráð.
Er drög að umsögn bæjarstjóra nú lögð fyrir bæjarráð.
Bæjarráð samþykkir umsögn sveitarfélagsins frá bæjarstjóra og felur bæjarstjóra að senda hana innviðaráðuneytinu.
8.Forsendur fjárhagsáætlana 2027-2030 - Sambandið - 2026060129
Lagt fram til kynningar minnisblað Sögu Guðmundsdóttur, aðalhagfræðings Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 12. júní 2026, varðandi forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2027-2030.
Lagt fram til kynningar.
9.Rekstur landsbyggðarvagna - 2026060127
Lögð fram til kynningar tilkynning Vegagerðarinnar, dags. 12. júní 2026, þar sem tilkynnt er að rekstur akstursleiðar nr. 61 (Ísafjörður-Hólmavík) verður hætt haustið 2026, vegna kostnaðar.
Bæjarráð vísar erindinu til kynningar í umhverfis- og framkvæmdanefnd.
10.Fundargerðir 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga - 2026020009
Lögð fram til kynningar fundargerð 1000. fundar stjórnar Sambandsins frá 9. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:12.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?