Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1370. fundur 11. júní 2026 kl. 08:10 - 09:47 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Stefán Hannibal Hafberg varamaður
    Aðalmaður: Kristján Þór Kristjánsson
  • Elísabet Samúelsdóttir varaformaður
  • Þóra Marý Arnórsdóttir varamaður
    Aðalmaður: Jónas Þór Birgisson
  • Svanfríður G Bergvinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arndís Dögg Jónsdóttir skjalastjóri
  • Gylfi Ólafsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Arndís Dögg Jónsdóttir skjalastjóri
Dagskrá
Edda María Hagalín mætir til fundar í gegnum fjarfundarbúnað.

1.Malbikun 2026 - Ísafjarðarbær - 2026030111

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, Axel R. Överby, dags. 11. maí 2026, vegna malbiksframkvæmda ársins 2026.
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra að næstu skrefum varðandi útboð á malbikun hjá Ísafjarðarbæ 2026, þ.e. beinu innkaupaferli í kjölfar höfnunar tilboða hjá Vegagerðinni. Bæjarstjóra er falið að leggja fram viðauka á næsta fundi bæjarráðs.




Gestir

  • Edda María Hagalín, fjármáalstjóri - mæting: 08:18
  • Axel R. Överby, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs - mæting: 08:10

2.Fasteignir Ísafjarðarbæjar - Ársreikningur fyrir starfsárið 2025 - 2026040238

Lagður fram til kynningar ársreikningur 2025 fyrir Fasteignir Ísafjarðarbæjar ehf.
Lagt fram til kynningar.
Axel og Edda María yfirgáfu fund kl. 08:40.
Guðrún Anna Finnbogadóttir mætir til fundar í gegnum fjarfundarbúnað.

3.Endurskoðun á byggðakvótakerfinu - 2026050079

Lagt fram erindi innviðaráðuneytisins, dags. 11. maí 2026, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna endurskoðunar á byggðakvótakerfinu.

Auk bréfsins fylgir yfirlit yfir helstu tillögur og ábendingar sem komið hafa fram um breytingar á byggðakvótakerfinu. Þá fylgir spurningalisti í Word-formi, samhljóða þeim atriðum sem fram koma í bréfinu.

Framlengdur frestur til svara er 16. júní 2026.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera drög að umsögn og leggja fyrir bæjarráð að nýju. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra að sækja um frest fram til 18. júní 2026.
Guðrún Anna yfirgaf fund kl: 09:02.

Gestir

  • Guðrún Anna Finnbogadóttir, teymisstjóri - Atvinnu- og byggðaþróun Vestfjarðastofu - mæting: 08:43

4.Skipurit 2026 - 2026060031

Lagt fram til samþykktar uppfært skipurit stjórnsýslu Ísafjarðarbæjar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfært skipurit Ísafjarðarbæjar.
Fylgiskjöl:

5.Hvetjandi hf. - hlutafjáraukning 2026 - 2026010261

Lagt fram erindi N. Shiran Þórissonar, dags. 31. maí 2026, varðandi hlutafjáraukningu í Hvetjanda vegna kaupa á fasteign að Sindragötu 5-7 á Ísafirði.

Þann 30. apríl 2026 var erindi Hvetjanda vegna hlutafjáraukningar tekið fyrir sem trúnaðarmál í bæjarráði og bókað að bæjarstjóra væri heimild til að skrifa undir áskriftarsamkomulag um aukið hlutafé í Hvetjanda. Þá var viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2026 vegna málsins samþykktur í bæjarstjórn þann 7. maí 2026, að fjárhæð kr. 50.000.000.
Bæjarráð samþykkir aukningu á hlutafé Ísafjarðarbæjar að fjárhæð kr. 50.000.000 í Hvetjanda ehf. í samræmi við þegar samþykktan viðauka 7 við fjárhagsáætlun 2026 og fyrri bókun bæjarráðs.

6.Aðalfundur Hvetjanda 2025 - 2026060107

Lagt fram til kynningar fundarboð vegna Aðalfundar Hvetjanda, en fundurinn fer fram 23. júní 2026, á Teams.
Nanný Arna Guðmundsdóttir situr í stjórn Hvetjanda fyrir hönd Ísafjarðarbæjar og mætir til fundarins.

7.Byggðakvóti fiskveiðiársins 2025-2026 - 2025120183

Lagður fram til staðfestingar einn vinnslusamningur vegna byggðakvóta fiskveiðiársins 2025-2026.
Bæjarráð staðfestir vinnslusamning vegna byggðakvóta fiskveiðiársins 2025-2026.

8.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - breyting á hafnalögum - 2026010014

Lagt fram til kynningar erindi frá innviðaráðuneyti þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 93/2026, "Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga)". Umsagnarfrestur er til og með 19. júní 2026.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu í hafnarstjórn.

9.Fundargerðir Brákar íbúðafélags hses. 2026-2029 - 2026040224

Lögð fram til kynningar fundargerð ársfundur Brákar íbúðafélags hses. en fundurinn var haldinn 28. apríl 2026, auk ársreiknings Brákar 2025.
Lagt fram til kynningar.

10.Hverfisráð - fundargerðir 2026 - Þingeyri - 2026020010

Lögð fram til kynningar fundargerð Hverfisráðs Dýrafjarðar, en fundur var haldinn 2. júní 2026.
Fundargerð er lögð fram til kynningar, bæjarráð vísar fundargerð Hverfisráðs Dýrafjarðar til umfjöllunar í umhverfis- og framkvæmdanefnd og skipulags- og mannvirkjanefnd. Bæjarstjóra er falið að hefja vinnu við að skýra og staðla verkferla í samskiptum við hverfisráð.

11.Fundargerðir 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga - 2026020009

Lögð fram til kynningar fundargerð 998. og 999. fundar stjórnar Sambandsins frá 8. og 28. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:47.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?