Bæjarráð
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Slit Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks - 2026040011
Lagt fram til samþykktar erindi Ólafs Þórs Ólafssonar, formanns stjórnar Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks, dags. 27. mars 2026, um tillögu stjórnar BsVest að starfsemi Byggðasamlagsins verði hætt og því slitið.
Unnið hefur verið að uppgjöri vegna Byggðasamlagsins sem nú er á lokametrunum og verður það kynnt aðildarsveitarfélögum fljótlega eftir páska.
Unnið hefur verið að uppgjöri vegna Byggðasamlagsins sem nú er á lokametrunum og verður það kynnt aðildarsveitarfélögum fljótlega eftir páska.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu stjórnar Byggðasamlags Vestfjarða um að starfsemi verði hætt og félaginu slitið.
2.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - lagareldi - 2026010014
Á 1365. fundi bæjarráðs, þann 26. mars 2026, var lögð fram umsagnarbeiðni frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis, dags. 24. mars 2026, þar sem atvinnuveganefnd sendir til umsagnar 529. mál "Lagareldi". Umsagnarfrestur er til og með 10. apríl 2026. Umsagnir skulu berast í umsagnargátt Alþingis. Bæjarráð fól bæjarstjóra að móta umsögn í samræmi við umræður á fundinum og leggja aftur fram til samþykktar.
Er málið nú lagt aftur fram ásamt umsögn.
Er málið nú lagt aftur fram ásamt umsögn.
Bæjarráð samþykkir umsögn bæjarstjóra og felur bæjarstjóra að senda hana í umsagnargátt Alþingis.
3.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - Stofnun atvinnuveganna - 2026010014
Lögð fram umsagnarbeiðni frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 27. mars 2026, þar sem atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar 568. mál "Stofnun atvinnuveganna". Umsagnarfrestur er til og með 15. apríl 2026. Umsagnir skulu berast í umsagnargátt Alþingis.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skila inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
4.Stefna um opinbera þjónustu - 2026040010
Lögð fram drög að stefnu um opinbera þjónustu, frá mars 2026, unnin af fjármála- og efnahagsráðuneytinu í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, og mun leysa af hólmi stefnu hins opinbera um stafræna þjónustu sem kom út árið 2021.
Næsta skref er að vinna aðgerðaáætlun sem á að fylgja stefnunni. Sambandið hvetur sveitarfélög til að senda Sambandinu ábendingar um stefnuna og ábendingar um mögulegar aðgerðir á netfangið samband@samband.is

Lagt fram til kynningar.
5.Fiskeldissjóður - umsóknir 2026 - 2026020020
Lögð fram til kynningar niðurstöðubréf fimm umsókna Ísafjarðarbæjar í Fiskeldissjóð árið 2026, en jákvætt svar fékkst við umsókn um byggingu slökkvistöðvar, alls að fjárhæð kr. 106.812.339.
Lagt fram til kynningar.
6.Fiskeldissjóður - umsóknir 2024 - 2024020013
Lagt fram erindi Atvinnuvegaráðuneytisins, dags. 7. apríl 2026, þar sem fram kemur að stjórn Fiskeldissjóðs samþykkti á stjórnarfundi 31. mars 2026 að veita Ísafjarðarbæ frest til 1. apríl 2027 til að skila lokaskýrslu vegna verknámshúss við Menntaskólann á Ísafirði vegna styrkveitingar frá 2024. Ef verkefnið verður ekki hafið fyrir þennan frest mun styrkurinn, að fjárhæð kr. 27.747.000, falla niður.
Jafnframt lagt fram til kynningar erindi Ísafjarðarbæjar, dags. 17. mars 2026, vegna málsins, en bygging verknámshúss, samkvæmt viljayfirlýsingu sveitarfélaga á Vestfjörðum og ríkisins, hefur ekki farið af stað af ástæðum sem ekki eru á valdi sveitarfélaganna að hafa stjórn á.

7.Fundargerðir 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga - 2026020009
Lögð fram til kynningar fundargerð 996. fundar stjórnar Sambandsins frá 20. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:00.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?