Bæjarráð
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Stjórn Lýðskólans á Flateyri 2026 - 2026030177
Tillaga bæjarstjóra um að skipa Nanný Örnu Guðmundsdóttur í stjórn Lýðskólans á Flateyri, en Hafdís Gunnarsdóttir, hefur óskað eftir að fara úr stjórn.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að skipa Nanný Örnu Guðmundsdóttur í stjórn Lýðskólans á Flateyri.
2.Byggðakvóti fiskveiðiársins 2025-2026 - 2025120183
Lagðar fram til staðfestingar 4 yfirlýsingar um vinnslu afla vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025/2026.
Bæjarráð staðfestir 4 meðfylgjandi yfirlýsingar um vinnslu afla.
3.Hafnarstjórn - 268 - 2603001F
Lögð fram til kynningar fundargerð 268. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 6. mars 2026.
Fundargerðin er í 10 liðum.
Fundargerðin er í 10 liðum.
Lagt fram til kynningar.
4.Ársfjórðungsuppgjör 2025 - 2025050010
Lagt fram til kynningar minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 16. mars 2026, um niðurstöðu fjórða ársfjórðungs 2025. Uppgjörið sýnir jákvæða rekstrarniðurstöðu A og B hluta upp á 670 m.kr. fyrir árið 2025. Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu upp á 321,7 m.kr. fyrir sama tímabil og er rekstrarafgangur 348 m.kr. hærri en áætlað var fyrir árið.
Lagt fram til kynningar.
Edda yfirgaf fund kl. 8.45.
Gestir
- Edda María Hagalín, fjármálstjóri - mæting: 08:23
5.Móttökuáætlun fyrir íbúa af erlendum uppruna á Vestfjörðum - 2025120113
Á 496. fundi velferðarnefndar þann 16. desember 2025, mætti Halla Signý Kristjánsdóttur, verkefnastjóri hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða á fund velferðarnefndar og kynnti drög um samræmda móttöku og inngildingu íbúa af erlendum uppruna hjá sveitarfélögum á Vestfjörðum. Bæjarstjóri, Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, óskaði eftir umsögn velferðarnefndar um drögin.
Í bókun velferðarnefndar lýsti velferðarnefnd yfir ánægju með stefnuna sem felur í sér aukið samstarf sveitarfélaga á Vestfjörðum á nýjum vettvangi. Nefndin leggur áherslu á að betur verði reifuð sjálfsábyrgð hvers einstaklings á lífi sínu, að áætlaður stuðningur og inngilding sé valdeflandi og að Vinnumálastofnun sé lykilaðili í málaflokknum. Jafnframt óskar nefndin eftir að móttökuáætlunin verði kostnaðarmetin af höfundi hennar þar sem ýmis ákvæði í aðgerðaáætlun munu óhjákvæmilega leiða til kostnaðar fyrir aðildarsveitarfélögin. Þá er nauðsynlegt að skoða með hvaða hætti sveitarfélögin styðji við framhald vinnunnar þegar ráðningartímabili verkefnastjóra lýkur, í maí 2026, og hvaða kostnaður felist í því.
Er nú málið lagt fyrir bæjarráð, ásamt kostnaðarmati unnið af Höllu Signý Kristjánsdóttir, verkefnastjóra Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, móttekið 13. mars 2026.

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
Hafdís og Margrét yfirgáfu fund k. 9.10.
Gestir
- Hafdís Gunnarsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs - mæting: 08:45
- Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs - mæting: 08:45
6.Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði - 4 - 2603006F
Lögð fram til kynningar 4. fundargerð fundar nefndar um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði, en fundur var haldinn 11. mars 2026.
Fundargerðin er í 1 lið.
Fundargerðin er í 1 lið.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:20.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?