Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1361. fundur 26. febrúar 2026 kl. 08:10 - 08:35 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson formaður
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
Starfsmenn
  • Tinna Ólafsdóttir upplýsingafulltrúi
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Tinna Ólafsdóttir upplýsingafulltrúi
Dagskrá

1.Ársfjórðungsuppgjör 2025 - 2025050010

Lagt fram til kynningar minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 20. febrúar 2026, um stöðu framkvæmda og viðhalds í lok fjórða ársfjórðungs, auk sérstakrar greinargerðar um framkvæmdir hafnarsjóðs.

Framkvæmdakostnaður A og B hluta var 884,4 m.kr. samanborið við áætlun upp á 960 m.kr. og er því 75,6 m.kr. lægri en áætlað var. Viðhaldskostnaður A og B hluta er 457,7 m.kr. samanborið við áætlun upp á 453,8 m.kr. og er því 4,2 m.kr. lægri en áætlað var.
Lagt fram til kynningar.

Gestir

  • Axel R. Överby, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs - mæting: 08:10

2.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 3 - grafa þjónustumiðstöð - 2025120020

Lagður fram til samþykktar viðauki 3 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026 vegna breytinga á framkvæmdaáætlun 2026.

Samhliða er lagt fram minnisblað fjármálastjóra, Eddu Maríu Hagalín, dags. 17. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir heimild fyrir viðauka í þjónustumiðstöð, sem snýr að innkaupum á minigröfu. Óskað er eftir heimild til að nýta 3,9 m.kr. af ófyrirséðum potti.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er kr. 0, Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 eða óbreytt afkoma í kr. 274.600.000. Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 eða óbreytt afkoma í kr. 581.600.000.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka 3 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026 vegna breytinga á framkvæmdaáætlun 2026.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er kr. 0, Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 eða óbreytt afkoma í kr. 274.600.000. Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 eða óbreytt afkoma í kr. 581.600.000.
Axel yfirgefur fund kl. 08:26.

3.Fundargerðir 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga - 2026020009

Lögð fram fundargerð 993. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldin var þann 18. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

4.Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði - 3 - 2602015F

Lögð fram til kynningar fundargerð 3. fundar nefndar um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði, en fundur var haldinn 18. febrúar 2026.

Fundargerðin er í 1 lið.
Lagt fram til kynningar.

5.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 39 - 2602014F

Lögð fram til kynningar fundargerð 39. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 16. febrúar 2026.

Fundargerðin er í 3 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 08:35.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?