Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1357. fundur 29. janúar 2026 kl. 08:10 - 09:10 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson formaður
  • Kristján Þór Kristjánsson varaformaður
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - 2025120020

Lagt fram minnisblað Axels R. Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 23. janúar 2026, þar sem óskað er eftir heimild til að gera viðauka við fjárhagsáætlun 2026, sem snýr að innkaupum á skrifstofugám fyrir leikskólann Eyrarskjól. Óskað er eftir heimild til að nýta 2,5 m.kr.- af ófyrirséðum potti.
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja hana, auk viðauka við fjárhagsáætlun 2026, sem bæjarstjóri er falið að leggja fram með málinu.

Gestir

  • Axel R. Överby, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs - mæting: 08:10

2.Samþykkt um búfjárhald - 2025 - 2025070010

Á 160. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar, þann 18. september 2025, var lögð fram ný samþykkt um búfjárhald auk minnisblaðs bæjarritara, dags. 2. júlí 2025. Þar sagði að núgildandi samþykkt um búfjárhald væri frá 2016. Rætt hefði verið um hjá núverandi bæjarstjórn og fyrrum bæjarstjórn að uppfæra þyrfti samþykktina. Á árinu 2020 bókaði umhverfis- og framkvæmdanefnd að starfsmanni væri falið að breyta samþykkt um búfjárhald vegna reglna um fiðurfé. Þá var umræða í nefndinni í maí 2021 um breytingar á samþykktinni, en ekki var unnið frekar með málið.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkti nýja samþykkt og vísaði henni til samþykktar í bæjarstjórn.

Á 1340. fundi bæjarráðs, þann 22. september 2025, var málið tekið á dagskrá að beiðni formanns. Málið var til umræðu og bæjarráð fól bæjarstjóra að skýra betur ákvæði um girðingamál búfjár í sveitarfélaginu í nýrri búfjársamþykkt, áður en málið færi til samþykktar í bæjarstjórn.

Er nú lagt fram minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 26. janúar 2025, með frekari upplýsingum um girðingarmál búfjár, auk nýrrar samþykktar um búfjárhald.
Minnisblað lagt fram til kynningar.

Bæjarráð tekur undir bókun umhverfis- og framkvæmdanefndar og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja nýja samþykkt um búfjárhald.
Axel yfirgaf fund kl. 8:25.

3.Hátíðahöld og viðburðir Ísafjarðarbæjar - 2026010296

Lagt fram til samþykktar minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, dags. 23. janúar 2026, varðandi breytt fyrirkomulag á skipulagningu og framkvæmd viðburða- og hátíðahalda Ísafjarðarbæjar.
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja hana, auk viðauka við fjárhagsáætlun 2026, sem bæjarstjóra er falið að leggja fram með málinu.

4.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - Samgönguáætlun 2026-2040 - 2026010014

Lögð fram umsagnarbeiðni dags. 21. janúar 2026, frá Jóni Ingva Ingimundarsyni f.h. nefndar og greiningarsviðs Alþingis þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 322. mál "Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030." Umsagnarfrestur er til og með 9. febrúar 2026.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.

5.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - Stofnun innviðafélags - 2026010014

Lögð fram umsagnarbeiðni úr samráðsgátt stjórnvalda, dags. 23. Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 14/2026, "Frumvarp um stofnun innviðafélags". Umsagnarfrestur er til og með 9. febrúar 2026.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.

6.Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði - 2 - 2601013F

Lögð fram til kynningar fundargerð 2. fundar nefndar um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði, en fundur var haldinn 21. janúar 2026.

Fundargerðin er í 2 liðum.
Lagt fram til kynningar.

7.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 666 - 2601014F

Lögð fram til kynningar fundargerð 666. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 22. janúar 2026.

Fundargerðin er í 9 liðum.
Lagt fram til kynningar.

8.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 37 - 2601010F

Lögð fram til kynningar fundargerð 37. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 21. janúar 2026.

Fundargerðin er í 4 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:10.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?