Bæjarráð
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Byggðakvóti fiskveiðiársins 2025-2026 - 2025120183
Á 1353. fundi bæjarráðs, þann 29. desember 2025, var lagt fram til kynningar erindi Leifs Arnkels Skarphéðinssonar, f.h. innviðaráðuneytis, dags. 19. desember 2025, þar sem tilkynnt var um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2025/2026. Einnig lagðar fram leiðbeiningar vegna samantektar og afgreiðslu á tillögum sveitarstjórna um sérstök skilyrði vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025/2026.
Bæjarráð gerði ekki tillögu að efnislegri breytingu á úthlutun en fól bæjarstjóra að vinna málið áfram og leggja fram að nýju.
Er nú lagt fram útfyllt eyðublað Fiskistofu frá bæjarstjóra með tillögu til bæjarstjórnar að sérstökum skilyrðum fyrir úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða tillögu að sérreglum um byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026.
2.Mánaðaryfirlit launakostnaðar 2025 - 2025020111
Lagt fram til kynningar minnisblað Helgu Sigríðar Hjálmarsdóttur, launafulltrúa, dags. 6. janúar 2026, um launakostnað fyrir janúar til desember árið 2025.
Lagt fram til kynningar.
3.70. Fjórðungsþing Vestfirðinga - 2025030105
Lögð fram til kynningar þinggerð 70. Fjórðungsþings Vestfirðinga að hausti, sem haldið var þann 16. og 17. september og óskast hún kynnt í sveitarstjórn.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 08:30.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?