Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
864. fundur 24. nóvember 2014 kl. 08:05 - 10:15 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Fatlaðir nemendur í grunnskólum skólaárið 2014/2015 - 2014090009

Lagt er fram bréf Elínar Pálsdóttur og Elínar Gunnarsdóttur, f.h. innanríkisráðherra, dags. 29. október sl., vegna áætlaðrar úthlutunar framlags vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fjárhagsárið 2015.
Lagt fram til kynningar.

2.Nýbúafræðsla skólaárið 2014/2015 - 2014090010

Lagt fram bréf Elínar Pálsdóttur og Elínar Gunnarsdóttur, f.h. innanríkisráðherra, dags. 29. október sl., vegna úthlutunar framlaga til sveitarfélaga vegna nýbúafræðslu á fjárhagsárinu 2015.
Lagt fram til kynningar.

3.Frumvarp til laga um tekjustofna sveitarféalga (afnám lágmarksútsvars) - 2014110048

Lagður er fram tölvupóstur frá nefndasviði Alþingis, dags. 17. nóvember sl. þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (afnám lágmarksútsvars).
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram í málinu.

4.Tillaga til þingsályktunar um millilandaflug um Hornarfjarðarflugvöll - 2014110047

Lagður er fram tölvupóstur frá nefndasviði Alþingis, frá 17. nóvember sl., þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um millilandaflug um Hornarfjarðarflugvöll.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram í málinu.

5.Ljósleiðarauppbygging opinberra aðila - 2014110053

Lögð er fram til kynningar skýrsla Póst- og fjarskiptastofnunar um ljósleiðarauppbyggingu opinberra aðila, sem gefin var út í október 2014.
Lagt fram til kynningar.

6.Áheyrnarfulltrúar framsóknarflokks í nefndum - 2014060094

Lagt er fram minnisblað Gísla Halldórs Halldórssonar, dags. 13. nóvember sl.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að allar greiðslur til áheyrnarfulltrúa fyrir fundarsetur verði lagðar niður, að undanskildum greiðslum til áheyrnarfulltrúa í bæjarráði. Í víðfeðmu sveitarfélagi eins og Ísafjarðarbæ er hins vegar ástæða til að jafna möguleika íbúa til slíkrar hagsmunagæslu óháð búsetu í sveitarfélaginu og halda akstursgreiðslum áfram, til áheyrnarfulltrúa utan Skutulsfjarðar.

7.Vestfirðir - Stöðugreining 2014 - 2014110051

Lögð er fram til kynningar stöðugreining Byggðastofnunar á Vestfjörðum árið 2014, útgefin 14. nóvember 2014.
Bæjarráð vísar skýrslunni til atvinnumálanefndar.

8.Atvinnuástand á Flateyri - 2011070075

Lagt er fram bréf útgerðarfólks á Flateyri, dags. 19. nóvember sl., þar sem óskað er eftir tímabundinni undanþágu frá úthlutunarreglum um löndun fisks úr byggðakvóta og Byggðastofnunarkvóta.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kanna gerð vinnslusamninga Ísafjarðarbæjar á svæðinu í samræmi við umræður á fundinum.

9.Sjókvíaeldi Dýrfisks ehf. - 2012030012

Lagt er fram til kynningar bréf Rúnar Kristinsdóttur og Vals Klemenssonar, f.h. Skipulagsstofnunar, dags. 14. nóvember sl., varðandi framleiðslu á 4.000 tonnum af regnbogasilungi í Borgarfirði, Trostansfirði og Lækjarbót - ákvörðun um tillögu að matsáætlun.
Lagt fram til kynningar.

10.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2014 - 2014020125

Lagðir eru fram 8 viðaukar við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2014.
Bæjarráð leggur til að viðaukarnir verði lagðir fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

11.Fjárhagsáætlun 2015 - 2014080027

Lögð eru fram, til kynningar, drög að fjárhagsáætlun ársins 2015. Drög að þriggja ára áætlun berast fyrir fund bæjarráðs.
Lagt fram til kynningar. Frumvarp að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Ísafjarðarbæjar, stofnana hans og fyrritækja fyrir árið 2014, til fyrri umræðu á næsta fundi bæjarstjórnar.

12.Íþrótta- og tómstundanefnd 19/11 - 1411013F

151. fundur
Lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:15.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?