Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
859. fundur 27. október 2014 kl. 08:05 - 10:15 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Fossavatnsgangan 2014 - styrkbeiðni - 2014100049

Lagður er fram tölvupóstur Daníels Jakobssonar, f.h. Fossavatnsgöngunnar, þar sem óskað er eftir afnotum af Edinborgarhúsinu á kostnað Ísafjarðarbæjar vegna Fossavatnsgöngunnar 2014.
Daníel Jakobsson vék af fundi við umfjöllun um þetta erindi.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.

2.Mannvirkjastofnun - ýmis erindi 2014-2015 - 2014100048

Lagt er fram bréf Bernhards Jóhannessonar, f.h. Mannvirkjastofnunar, dags. 17. október sl. varðandi gæðakerfi þjónustuaðila brunavarna á Ísafirði.
Lagt fram til kynningar.

3.Byggðakvóti fiskveiðiárið 2014/2015 - 2014090033

Lagt er fram bréf Jóhanns Guðmundssonar og Hinriks Greipssonar, f.h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, dags. 9. október sl., með niðurstöðu um úthlutun byggðakvóta til sveitarfélagsins fiskveiðiárið 2014/2015.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skoða úthlutunarreglur byggðakvóta og vinna svar til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í samvinnu við bæjarfulltrúa bæjarráðs.

4.Sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs - uppsögn og ráðning 2014 - 2014080070

Gísli Halldór Halldórsson gerir grein fyrir stöðu mála.
Bókun er færð í trúnaðarmálabók bæjarráðs Ísafjarðarbæjar.

5.Frumvarp til laga um verslun með áfengi og tóbak o.fl. - 2014100054

Lagður er fram tölvupóstur nefndasviðs Alþingis, frá 23. október sl., þar sem leitað er umsagnar um frumvarp til laga um verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Bæjarráð vísar erindinu til félagsmálanefndar og atvinnumálanefndar.

6.Endurskoðun erindisbréfa - 2012110034

Lagt er fram til kynningar minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 23. október sl., þar sem lagt er til að verkefni menningarmála verði flutt frá bæjarráði til atvinnumálanefndar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að verkefni menningarmála verði flutt frá bæjarráði til atvinnumálanefndar.

7.Almennar styrkbeiðnir og styrktarlínur 2014 - 2014020105

Lögð er fram umsókn Þórlaugar R. Jónsdóttur, rekstrarstjóra, f.h. Samtaka um kvennaathvarf, dags. í október sl. um rekstrarstyrk fyrir árið 2015.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

8.Byggðasafn Vestfjarða 2014 - 2014080064

Lögð eru fram frumdrög að viðauka vegna breytinga á starfsmannamálum Byggðasafns Vestfjarða.
Bæjarráð leggur til að viðauki verði lagður fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

9.Fundur sveitarstjórnar með fjárlaganefnd 2014 - 2014100057

Lagður er fram listi með þeim atriðum sem farið var yfir með fjárlaganefnd Alþingis
Lagt fram til kynningar.

10.Tjaldsvæði Tungudalur 2015 - 2014090032

G.I. Halldórsson óskar eftir framlagi vegna taprekstrar á Mýrarboltanum.
Bæjarráð hafnar erindinu.

11.Fjárhagsáætlun 2015 - 2014080027

Lögð er fram uppfærð tímaáætlun um vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2015.
Lagt fram til kynningar.

12.Hafnarstjórn 21/10 - 1410010F

174. fundur
Lagt fram til kynningar.

13.Skipulags- og mannvirkjanefnd 22/10 - 1410004F

421. fundur
Lagt fram til kynningar.

14.Hverfisráð Holta- og Tunguhverfis - 2011030002

Lögð er fram til kynningar fundargerð hverfisráðs Holta- og Tunguhverfis frá 20. október sl.
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar fundargerðinni til kynningar í umhverfis- og framkvæmdanefnd.

15.Hverfisráð Dýrafjarðar - Íbúasamtökin Átak - 2011030002

Lögð er fram til kynningar fundargerð aðalfundar íbúasamtakanna Átaks, frá 29. apríl sl.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:15.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?