Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
853. fundur 15. september 2014 kl. 08:15 - 10:15 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Stafræn smiðja (Fab Lab). - 2011100054

Sigríður Kristjánsdóttir mætir til fundarins undir þessum lið, kl. 8:15, til að fara yfir samstarfssamning milli Menntaskólans á Ísafirði, Bolungarvíkurkaupstaðar, Súðavíkurhrepps, Ísafjarðarbæjar og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands um Fab Lab. Sigríður yfirgaf fundinn kl. 08:40.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samstarfssamninginn.

2.Melrakkasetur - aðalfundur 2014 - 2014080016

Lögð er fram fundargerð aðalfundar Melrakkaseturs Íslands ehf., sem fram fór 4. september sl.
Lögð fram til kynningar.

3.Byggðasafn Vestfjarða 2014 - 2014080064

Lögð er fram fundargerð Byggðasafns Vestfjarða frá 8. september 2014. Í c-lið fundargerðarinnar kemur m.a. eftirfarandi fram: "Stjórnin telur rétt að starfsmenn byggðasafnsins verði 3 í ljósi yfirtöku safnsins á Vélsmiðju Guðmundar Sigurðssonar og mikilla óleystra verkefna við skráningu safnkosts byggðasafnsins."
Bæjarráð styður tillögu stjórnar Byggðasafns Vestfjarða, felur bæjarstjóra að gera drög að viðauka vegna ársins 2014 og vísar kostnaði vegna ársins 2015 til fjárhagsáætlanagerðar.

4.Nefndarmenn 2014 - 2014020030

Lagður er fram tölvupóstur Marzellíusar Sveinbjörnssonar, bæjarfulltrúa, frá 10. september sl. með tilnefningum framsóknarflokksins á áheyrnarfulltrúum og vara áheyrnarfulltrúum í nefndir Ísafjarðarbæjar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að tilnefndir áheyrnarfulltrúar verði staðfestir.

5.Sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs - uppsögn og ráðning 2014 - 2014080070

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðunni. Bæjarráð felur bæjarstjóra að hefja ráðningarferlið.

6.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2014. - 2014020125

Lögð eru fram frumdrög að viðauka við fjárhagsáætlun vegna framkvæmda á skólalóð GÍ.
Edda María Hagalín, fjármálastjóri, mætir til fundarins undir þessum lið kl. 09:19.
Bæjarráð leggur til að viðauki verði lagður fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

7.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2014 - 2014020125

Lögð eru fram frumdrög að viðauka vegna leiðréttingar á afsláttum og styrkjum á móti fasteignaskatti.
Bæjarráð leggur til að viðauki verði lagður fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

8.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2014 - 2014020125

Lögð eru fram frumdrög að viðauka vegna leiðréttingar á vinnufatnaði og fasteignagjöldum á Hlíf.
Bæjarráð leggur til að viðauki verði lagður fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

9.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2014 - 2014020125

Lögð eru fram frumdrög að viðauka vegna kaupa Hafna Ísafjarðarbæjar á skotbómulyftara.
Bæjarráð leggur til að viðauki verði lagður fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

10.Fjárhagsáætlun 2015 - 2014080027

Edda María Hagalín, yfirgefur fundinn eftir umræður undir þessum lið kl. 09:57.

11.Félagsmálanefnd 8/9 - 1409004F

Fundargerð 390. fundar félagsmálanefndar.
Bæjarráð vísar 3. lið til fjárhagsáætlunargerðar.
Lögð fram til kynningar.

12.Nefnd um umhverfis- og framkvæmdamál 11/9 - 1409007F

Fundargerð 2. fundar nefndar um umhverfis- og framkvæmdamál.
Lögð fram til kynningar.

13.Nefnd um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu 12/9 - 1409009F

Fundargerð 2. fundar nefndar um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu.
Lögð fram til kynningar.

14.Fundargerðir barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum - 2014080043

Fundargerð 128. fundar barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum.
Lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:15.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?