Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Kristjánsgata 23 - Umsókn um byggingarleyfi - 2026060104
Lögð er fram umsókn frá Gauta Geirssyni um byggingarheimild vegna byggingar á gufubaðshúsi úr krosslímdu timbri.
Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir frá Verkhof ehf ásamt skráningartöflu. Einnig liggur fyrir samþykki hafnarstjóra á notkun á bílastæðum og þjónustuhúsi sem hýsir salernis- og sturtuaðstöðu.
Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir frá Verkhof ehf ásamt skráningartöflu. Einnig liggur fyrir samþykki hafnarstjóra á notkun á bílastæðum og þjónustuhúsi sem hýsir salernis- og sturtuaðstöðu.
Samþykkt, byggingarheimild veitt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Séruppdráttum skal hafa verið skilað áður en lokaúttekt fer fram.
2.Þjónustuhús við skútuhöfn á Ísafirði - 2025010225
Lögð er fram umsókn Ísafjarðarhafnar um byggingarheimild vegna byggingar þjónustuhúss á lóðinni byggt úr timbri. Fyrir liggur samningur Ísafjarðarhafnar og rekstraraðila gufubaðshúss um notkun á baðaðstöðu.
Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir og séruppdrættir burðarþols frá Eflu.
Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir og séruppdrættir burðarþols frá Eflu.
Byggingaráform samþykkt með fyrirvara á að hönnuður lagfæri aðaluppdrætti m.v. í skoðunarskýrslu. Að öðru leiti samræmist umsóknin lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Byggingarheimild verður gefin út er skilyrði gr. 2.3.8 byggingarreglugerðar verða uppfyllt.
3.Hrafna - Umfangsflokkur 2 - 2026060195
Lögð er fram umsókn Jóns Grétars Magnússonar um byggingarleyfi f.h. Ísafjarðarhafnar vegna byggingar á móttöku- og þjónustuhúss fyrir ferðamenn skemmtiferðaskipa. Jafnframt er lagður fram aðaluppdráttur frá M11 arkitektum ásamt séruppdráttum raf-, loftræsis- og hitalagna frá verkfræðistofunni Ferli.
Byggingaráform samþykkt með fyrirvara á að hönnuður lagfæri teikningar m.v. í skoðunarskýrslu. Að öðru leiti samræmist umsóknin lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út er skilyrði gr. 2.4.4 byggingarreglugerðar verða uppfyllt.
4.Núpsvegur - Umfangsflokkur 2 - 2026070007
Lögð er fram umsókn Emils Þórs Guðmundssonar um byggingarleyfi f.h. R700 ehf. Sótt er um að breyta notkun byggingarinnar, frá því að vera skráð sem skólahúsnæði í að verða skráð sem gistiheimili. Jafnframt er sótt um að fá heimild til að skipta húsinu í tvær séreignir með sitthvort fasteignanúmerið.
Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir hússins frá 1979 ásamt grunnmyndum og útlitsteikningum er sýna þær breytingar sem munu eiga sér stað í mannvirkinu.
Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir hússins frá 1979 ásamt grunnmyndum og útlitsteikningum er sýna þær breytingar sem munu eiga sér stað í mannvirkinu.
Byggingaráform samþykkt með fyrirvara á að hönnuður lagfæri teikningar m.v. í skoðunarskýrslu. Að öðru leiti samræmist umsóknin lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út er skilyrði gr. 2.4.4 byggingarreglugerðar verða uppfyllt.
5.Skeið 5 - Umfangsflokkur 1 - 2026040067
Erindið var tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 92. Óskað var eftir frekari gögnum er snúa að verkinu og var erindinu frestað.
Þá var lögð fram umsókn Hans Olav Andersen f.h. Orkubús Vestfjarða ohf. vegna breytinga á mannvirki.
Um er að ræða endurnýjun á núverandi húsi varmadæluhús Orkubús Vestfjarða, breytingar á gluggasetningu, innra skipulagi og ný klæðning.
Jafnframt er lagður fram aðaluppdráttur frá teiknistofunni Tröð.
Til viðbótar við áður framlögð gögn eru nú lagðar fram teikningar er sýna mannvirki fyrir áætlaðar breytingar.

Erindi samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.
6.Hafnarbakki 5 - Umfangsflokkur 1 - 2026050155
Lögð er fram umsókn Einars Ólafssonar um byggingarleyfi f.h. Fisk Club ehf. vegna breyttrar notkunar á húsnæðinu sem og breytinga á ytra byrði hússins. Eins er óskað þess að rýminu verði skipt upp í fjóra matshluta.
Jafnframt er lagður fram aðaluppdráttur frá Arkiteo ásamt skráningartöflum.
Jafnframt er lagður fram aðaluppdráttur frá Arkiteo ásamt skráningartöflum.
Erindi frestað með vísan í athugasemdir byggingarfulltrúa.
7.ránargata - Umfangsflokkur 2 - 2026070009
Lögð er fram umsókn Jóns Grétars Magnússonar f.h. Eyþórs Fannars Valgeirssonar um byggingarheimild v. útlitsbreytinga á núverandi íbúðarhúsi. Allir gluggar verða endurnýjaðir og gluggaop stækkuð á þeim stöðum sem sýndir eru á uppdráttum. Eins verður þak endurbyggt.
Jafnframt eru lagðir fram uppdrættir frá M11 arkitektum.
Jafnframt eru lagðir fram uppdrættir frá M11 arkitektum.
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Byggingarheimild verður gefin út er skilyrði gr. 2.3.8 byggingarreglugerðar verða uppfyllt.
8.Garðahúsið - Umfangsflokkur 1 - 2026060102
Lögð er fram umsókn Rebekku Pétursdóttur um byggingarleyfi vegna endurbyggingar á Garðahúsinu í Aðalvík. Sótt eru um leyfi til niðurrifs á þaki og göflum á núverandi húsi ásamt vatnsklæðningu á jarðhæðinni. Eins er sótt um leyfi til þess að byggja nýja hæð ofan á gamla grunninn ásamt því að endurnýja alla glugga efri hæðar og klæða húsið að utan með bárujárni.
Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir frá Eflu, aðalfundargerð húsfélgas Garðahússins og afnotasamning fyrir húsnæðið.
Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir frá Eflu, aðalfundargerð húsfélgas Garðahússins og afnotasamning fyrir húsnæðið.
Erindi vegna niðurrifs samþykkt með fyrirvara á að starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti sé veitt ásamt áætlun um förgun niðurrifsúrgangs með vísan í gr. 15.2.2 byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
Að öðru leiti er erindinu hafnað. Óskað er verulegra úrbóta á hönnunargögnum áður en málið verður tekið fyrir að nýju.
Að öðru leiti er erindinu hafnað. Óskað er verulegra úrbóta á hönnunargögnum áður en málið verður tekið fyrir að nýju.
9.Hafnarstræti 5 - Umfangsflokkur 1 - 2026060038
Lögð er fram umsókn Ólafs Hjördísarsonar Jónssonar um byggingarleyfi f.h. Fjólubláu húfunnar vegna breytinga á húsnæðinu. Sótt er um heimild fyrir útlitsbreytingu og stækkun á húsnæði. Sótt er um leyfi fyrir svölum og geymslu við bakhlið, hækka þak og auka þakhalla í 45 gráður, bæta við þakgluggum og skipta um klæðningu. Einnig er sótt um leyfi til að breyta notkun efri hæðar hússins í gistirými er nú skráð sem geymsla.
Jafnframt er lagður fram aðaluppdráttur frá KOA arkitektum ásamt minnisblaði brunahönnuðar.
Jafnframt er lagður fram aðaluppdráttur frá KOA arkitektum ásamt minnisblaði brunahönnuðar.
Erindi frestað með vísan í athugasemdir byggingarfulltrúa.
10.Sjálfsalagámur - Umsókn um stöðuleyfi - 2026060101
Lögð er fram umsókn GH véla ehf. um stöðuleyfi á gám fyrir vörur í sjálfsafgreiðslu. Jafnframt er lögð fram ljósmynd af gámnum ásamt fyrirhugaðri staðsetningu á hafnarsvæði. Samþykki hafnarstjóra liggur fyrir.
Samþykkt. Stöðuleyfi veitt til 7 mánaða.
11.Umsókn um stöðuleyfi - 2026050163
Lögð er fram umsókn Isotopia ehf. um stöðuleyfi vegna torgsöluhúss á hafnarsvæði.
Jafnframt eru lagðar fram upplýsingar um útlit og staðsetningu húss. Eins liggur fyrir samþykki hafnarstjóra.
Jafnframt eru lagðar fram upplýsingar um útlit og staðsetningu húss. Eins liggur fyrir samþykki hafnarstjóra.
Samþykkt. Stöðuleyfi veitt til loka október.
12.Hraðhleðslugámur - Umsókn um stöðuleyfi - 2026060100
Lögð er fram umsókn Ingu Hrund Arnardóttur f.h. Orkunar Is um stöðuleyfi á gám sem hýsir hraðhleðslustöðvar á lóð Skeið 1. Sótt er um leyfi til að hafa stöðvarnar á svæðinu frá 01.09.2026-31.08.2027 Jafnframt eru lagðar fram upplýsingar um staðsetningu hraðhleðslustöðva ásamt samþykki Eramus eignarhaldsfélags ehf.
Um er að ræða lóð í eigu Ísafjarðarbæjar og er því erindinu vísað til skipulags- og mannvirkjanefndar til umföllunar.
13.Sólborg - Umsókn um stöðuleyfi - 2026060054
Lögð er fram umsókn Ísafjarðarbæjar um stöðuleyfi vegna færanlegrar kennslustofu á lóðinni. Jafnframt eru lagðar fram upplýsingar um útlit og staðsetningu á gámaeiningunni.
Samþykkt. Stöðuleyfi er veitt til 12 mánaða. Umsækjanda er bent á að leita varanlegra lausna þar sem hámarkstími stöðuleyfis eru 12 mánuðir.
14.Eyrarskjól - Umsókn um stöðuleyfi - 2026060051
Lögð er fram umsókn Ísafjarðarbæjar um stöðuleyfi vegna færanlegrar kennslustofu á lóðinni. Jafnframt eru lagðar fram upplýsingar um útlit og staðsetningu á gámaeiningunni.
Samþykkt. Stöðuleyfi er veitt til 12 mánaða. Umsækjanda er bent á að leita varanlegra lausna þar sem hámarkstími stöðuleyfis eru 12 mánuðir.
15.Salernisgámur Hafnarstræti 17 - Umsókn um stöðuleyfi - 2026050077
Lögð er fram umsókn Ísafjarðarhafnar um stöðuleyfi vegna salernisgáms á lóðinni. Jafnframt eru lögð fram gögn er sýna útlit og staðsetningu gáms.
Samþykkt. Stöðuleyfi veitt til 12 mánaða.
Fundi slitið - kl. 16:00.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?