Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
92. fundur 22. apríl 2026 kl. 08:00 - 12:00 í fundarherbergi 4. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján S Kristjánsson byggingarfulltrúi
  • Axel Rodriguez Överby sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs
  • Hermann G Hermannsson Slökkvilið Ísafjarðarbæjar
Fundargerð ritaði: Kristján Svan Kristjánsson byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Daltunga 4 - Flokkur 3, - 2024030093

Lögð er fram umsókn Jóhanns Birkis Helgasonar f.h Tangi ehf. um breytingar á áður samþykktum hönnunargögnum. Sótt er um stækkun húsnæðisins á þann veg að bílskúr er tvöfaldaður.
Jafnframt er lagður frá uppfærður aðaluppdráttur frá Verkís ásamt skráningartöflu.
Samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með fyrirvara á því að skráður sé húsasmíðameistari á verkið er takmarkað byggingarleyfi er veitt fyrir öllum verkþáttum er frá er talin vinna tengd rafmagni. Skila skal inn séruppdráttum áður en sú vinna hefst.

2.Hafnarstræti 19 - Umfangsflokkur 2 - 2026030170

Erindið var tekið fyrir á afgreiðslufundi nr. 91 þar sem erindinu var frestað. Kallað var eftir undirrituðu samþykki meðeigenda í húsinu.
Til viðbótar við áður framlögð gögn er nú lagt fram undirritað samþykki meðeigenda hússins vegna framkvæmdanna.
Samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.

3.Vallargata 5 - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif) - 2026040105

Lögð er fram umsókn frá Pálmey Dögg Gylfadóttir vegna niðurrifs á 12,6 m2 byggingu á lóð sem skráð er sem skúr. Jafnframt er lögð fram ljósmynd af mannvirkinu.
Erindi frestað með vísan í athugasemdir byggingarfulltrúa.

4.Suðurtangi 2 L138766; umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2 - 2026030234

Lögð er fram umsókn um byggingarleyfi frá Einari Birki Sveinbjörnssyni f.h Vestfirskra sölufélagsins ehf. vegna breyttrar notkunar húsnæðis. Ekki kemur fram í umsókn hvers eðlis breytingin er.
Jafnframt er lögð fram grunnmynd rýmisins frá Eflu.
Erindi frestað með vísan í athugasemdir byggingarfulltrúa.

5.Fagraholt 11 - Umfangsflokkur 2 - 2026040068

Lögð er fram umsókn frá Helga Indriðasyni f.h Sigurðar Freys Kristinssonar vegna stækkunar á húsnæði og eins breytinga á innra rými bílskúrs.
Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir frá ASK arkitektum.
Byggingaráform eru samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Byggingarheimild verður gefin út er skilyrði gr. 2.3.8 byggingarreglugerðar verða uppfyllt.

6.Skeið 5 - Umfangsflokkur 1 - 2026040067

Lögð er fram umsókn Hans Olav Andersen f.h Orkubús Vestfjarða ohf. vegna breytinga á mannvirki.
Um er að ræða endurnýjun á núverandi húsi varmadæluhús Orkubús Vestfjarða, breytingar á gluggasetningu, innra skipulagi og ný klæðning.
Jafnframt er lagður fram aðaluppdráttur frá teiknistofunni Tröð.
Erindi frestað með vísan í athugasemdir byggingarfulltúa.

7.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Aðalgata 21 - Flokkur 2, - 2023050088

Lögð er fram umsókn Hugrúnar Þorsteinsdóttur f.h Prentmiðlun ehf. um breytingar á áður samþykktum hönnunargögnum fyrir lóðina. Sótt er um að fá stækka geymsluhúsnæði er snýr að lóðarmörkum Aðalgötu 19.
Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir frá M11 arkitektum ásamt skriflegu samþykki aðliggjandi lóðarhafa fyrir framkvæmdunum.

Breytingatillaga samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Fundi slitið - kl. 12:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?