Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Suðurtangi 1 - Umfangsflokkur 2 - 2026010384
Lögð er fram umsókn Þorleifs Björnssonar um byggingarleyfi f.h Ísafjarðarbæjar. Sótt eru um leyfi til að byggja nýja slökkvistöð. Stöðin verður tvískipt þ.e stjórnstöð sem verður steinsteypt og svo tækjasalur sem er með burðarvirki úr timbri.
Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir frá Glóru teiknistofu.
Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir frá Glóru teiknistofu.
Erindi frestað m.v í athugasemdir byggingarfulltrúa
2.Strandgata 7 - Umfangsflokkur 1 - 2025080079
Málið var tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 86 þar sem málinu var vísað til skipulags- og mannvirkjanefndar sökum þess að ekki var deiliskipulag til staðar. Á fundi þeirrar nefndar var talið að framkvæmdin sé óveruleg og kalli ekki á grenndarkynningu.
Samhliða áður innlögðum gögnum er nú lagt fram samþykki Minjastofnunar fyrir framkvæmdunum.
Samhliða áður innlögðum gögnum er nú lagt fram samþykki Minjastofnunar fyrir framkvæmdunum.
Samþykkt. Byggingarheimild útgefin. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Séruppdráttum skal skilað fyrir lokaúttekt.
3.Seljaland 23, Ísafirði. Umsókn um byggingarleyfi - 2023090074
Erindið var tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 69 og voru byggingaráform samþykkt.
Til viðbótar við áður framlögð gögn hafa nú verið lagðir fram séruppdrættir burðarþols og lagna frá verkfræðistofunni Eflu ásamt séruppdráttum raflagna frá Rafskaut ehf.
Til viðbótar við áður framlögð gögn hafa nú verið lagðir fram séruppdrættir burðarþols og lagna frá verkfræðistofunni Eflu ásamt séruppdráttum raflagna frá Rafskaut ehf.
Samþykkt. Byggingarleyfi útgefið. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.
4.Suðurgata, Ísafirði. Lóðarumsókn fyrir smáhýsi með frískáp - 2025120007
Lögð er fram umsókn um stöðuleyfi, samhliða lóðarumsókn fyrir smáhýsi er hýsa á frískáp.
Stöðuleyfisumsóknin snýr að því Menntaskólinn á Ísafirði er að reisa 15 m2 smáhýsi sem stendur á lóð skólans á meðan smíðum stendur.
Jafnframt er lagður fram aðaluppdráttur frá Markstofu ehf.
Stöðuleyfisumsóknin snýr að því Menntaskólinn á Ísafirði er að reisa 15 m2 smáhýsi sem stendur á lóð skólans á meðan smíðum stendur.
Jafnframt er lagður fram aðaluppdráttur frá Markstofu ehf.
Samþykkt. Stöðuleyfi veitt til 12 mánaða.
5.Umsókn um stöðuleyfi - 2026010418
Lögð er fram umsókn Ásdísar Kristjánsdóttur um stöðuleyfi vegna ferðagufu. Óskað er eftir því að ferðagufan, eða Vestfjarðargusan eins og hús er kölluð verði staðsett í Skeljavík.
Samhliða umsókn eru lögð fram gögn er sýna staðsetningu og útlit gufunnar.
Samhliða umsókn eru lögð fram gögn er sýna staðsetningu og útlit gufunnar.
Samþykkt. Stöðuleyfi veitt til 12 mánaða.
Fundi slitið.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?