Vorverkin: Garðúrgangur, salt og hraðahindranir

Upplýsingar um gáma fyrir garðúrgang, salt til að eyða illgresi og uppsetningu hraðahindrana.

Garðúrgangur

Gámar fyrir garðúrgang hafa verið settir upp í öllum kjörnum Ísafjarðarbæjar, fyrir utan Funa, en gámurinn fer út þar síðar í dag, föstudag. Mikilvægt er eingöngu sé settur garðaúrgangur í gámana.

Flateyri:
Á hafnarsvæði.
Hnífsdalur:
Við félagsheimilið.
Ísafjörður:

Gámur er staðsettur inni á gámasvæði Funa en einnig er gámur fyrir utan girðingu sem hægt er að nota þegar afgreiðsla er lokuð.
Suðureyri:
Við Klofning.
Þingeyri:
Við höfnina, þar sem gámabíllinn stoppar venjulega.

Salt fyrir illgresi

Bæjarbúum er boðið að fá salt til að setja á illgresi og hefst vinna við að koma saltpokum út á mánudaginn. Fara þarf varlega með notkun salts í kringum gróður, sérstaklega trjáplöntur, og best er að takmarka notkun þess við gangstéttir. Lítið dugar að nota salt á kerfil, hann er seigur og lifir yfirleitt af saltaustur.

Flateyri:
Við kirkjugarðinn
Hnífsdalur:
Við barnaskólann
Ísafjörður:
Við áhaldahús á Stakkanesi og milli efra og neðra hverfis í Holtahverfi
Suðureyri:
Á höfninni, nálægt vigtarskúr
Þingeyri:
Við íþróttahúsið

Hraðahindranir

Hraðahindranir verða settar upp á sína hefðbundnu sumarstaði á mánudaginn.