Vinnslutillaga deiliskipulagsbreytinga á Torfnesi – Menntastofnanir og dæluhús

Ísafjarðarbær birtir til kynningar vinnslutillögu breytinga á deiliskipulagi Torfness, Ísafirði, í samræmi við III. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Markmið skipulagsbreytingarinnar er að auka svigrúm fyrir stækkun Menntaskólans á Ísafirði og leikskólans Sólborgar, ásamt byggingu nýrrar dælustöðvar hitaveitu. Að auki hefur verið óskað eftir að lóð Hlífar verði minnkuð.

Deiliskipulagsbreytingin felst í því að lóðamörkum og byggingarreitum, lóða D og E er breytt og tvær nýjar lóðir eru skilgreindar. Einnig er lóðarmörkum lóðar C breytt lítillega vegna fyrirkomulags bílastæða Hlífar og Sólborgar.

Umsagnir og athugasemdir í skipulagsferlinu eru aðgengilegar í gegnum Skipulagsgáttina, mál nr. 226/2026. Aðeins er tekið við ábendingum rafrænt um Skipulagsgáttina, frá og með 24. febrúar til og með 17. mars 2026. Skipulagsfulltrúi Ísafjarðarbæjar, skipulag@isafjordur.is, veitir nánari upplýsingar og leiðbeiningar við rafrænar ábendingar.

Vinnslutillagan er einnig aðgengileg á uppdrætti ásamt greinargerð með forsendum breytinga, hér fyrir neðan.

Vinnslutillaga og greinargerð

Opið hús verður haldið í sal bæjarstjórnar, 2. hæð Stjórnsýsluhússins að Hafnarstræti 1 á Ísafirði, miðvikudaginn 4. mars 2026, milli klukkan 15 og 17.

Vakin er athygli á því að aðeins er um að ræða vinnslutillögu breytinga á deiliskipulagi en ekki formlega auglýsingu.

Skipulagsfulltrúi Ísafjarðarbæjar