Vilt þú móta nærsamfélagið og hafa áhrif á daglegt líf í þínu sveitarfélagi?
Sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí 2026 eru tækifæri til að hafa bein áhrif á nærumhverfið og þjónustuna sem skiptir okkur mestu máli í daglegu lífi.
Samband íslenskra sveitarfélaga og innviðaráðuneytið hafa sett af stað átak til að auka þátttöku almennings í sveitarstjórnarkosningunum 2026 og styrkja lýðræðislega þátttöku á sveitarstjórnarstiginu.
Markmiðið er tvíþætt:
- Hvetja nýtt fólk til þátttöku í stjórnmálum á sveitarstjórnarstigi, með áherslu á að virkja einstaklinga sem hingað til hafa ekki tekið virkan þátt.
- Stuðla að framhaldi þátttöku núverandi kjörinna fulltrúa, þannig að þekking og reynsla haldist innan sveitarstjórna.
Jafnframt verður unnið markvisst að því að auka umræðu og vitund almennings um sveitarstjórnarstigið, hlutverk sveitarstjórnarfulltrúa og mikilvægi þess að hafa virka og fjölbreytta þátttakendur í lýðræðislegum ákvörðunum. Áhersla verður lögð á að ná til þeirra hópa sem hafa minnst tekið þátt í sveitarstjórnarmálum hingað til.
Íbúar eru hvattir til að kynna sér kosningavef Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Nánar um átakið: