Vika 71: Dagbók bæjarstjóra
Dagbók bæjarstjóra dagana 11.-17. maí 2026, í 71 viku í starfi.
Þessi vika var helguð tiltekt, ég var að ganga frá ýmsum málum, taka innanhúsfundi, skrifa minnispunkta til að vista undir málum sem eru í vinnslu, hreinsaði til á skrifborðinu o.s.frv Aðeins einn fundur var í vikunni, það var Aðalfundur Byggðasafns Vestfjarða, þar var ársreikningur lagður fram ásamt skýrslu forstöðumanns.


Starfsfólk bæjarskrifstofu Ísafjarðarbæjar.
Á þriðjudaginn var skjaladagur á bæjarskrifstofunum, þá fór fram rafræn tiltekt á öllum sviðum. Í lok dags bauð ég samstarfsfólki á skrifstofunni heim á Suðureyri í göngutúr og kvöldmat. Það var afskaplega skemmtilegt og gott að fá að kveðja samstarfsfólkið með þessum hætti.

Frá vortónleikum Kvennakórs Ísafjarðar.

Vegurinn um Vatnsfjarðarnes.

Hlaupaleiðin á uppstigningadag.

Horft af pallinum í bústaðnum, út Mjóafjörðinn í kvöldhúminu.
Vortónleikar kvennakórsins fóru fram í vikunni, við fórum þangað, er enn með samviskubit yfir að komast ekki á karlakórstónleikana um daginn en það verður bara að hafa það. Við Dúi skruppum í bústaðinn okkar í Mjóafirði á uppstigningardag að tengja vatnið fyrir sumarið. Tókum góðan hlaupatúr kringum Vatnsfjarðarnes. Hlakka til að verja tíma í bústaðnum í sumar.
Við Dúi hlupum hringinn á Vatnsfjarðarnesi á uppstigningadag.
Kvenfélagskonur í Ársól á Suðureyri skruppu út að borða í Bolungarvík, það var mjög gaman. Kosningadagurinn var samkvæmt venju, við þræddum kosningakaffi framboðanna og horfðum á kosningasjónvarpið í friði og ró hér heima.

Ársólarkonur (kvenfélags) á tröppum Einarshúss í Bolungarvík.

Okkar allra besti Sófus skutlaði kvenfélagskonum út að borða í Bolungarvík.
Staðan í dag: Ég á fjóra daga eftir af ráðningarsamningi mínum, á bókaða nokkra fundi, m.a. í Reykjavík. Stimpla mig svo út og fer í frí. Þetta er því síðasta dagbókin mín í þessu starfi, starfi sem hefur verið lærdómsríkt og ég þakklát fyrir að fá þann heiður að sinna.
Ég óska nýkjörnum bæjarfulltrúum innilega til hamingju með kjörið og þá þakka ég fráfarandi bæjarfulltrúum innilega fyrir gott og gefandi samstarf.
Kæru lesendur, nær og fjær, takk fyrir samfylgd, samstarf og lesturinn. Takk fyrir mig.