Viðgerðum í Sundhöll Ísafjarðar miðar vel

Viðgerðarvinna sem staðið hefur yfir í Sundhöll Ísafjarðar síðan í lok nýliðins árs gengur vel. Stútar í laugarkari og potti hafa verið endurnýjaðir og unnið er við dælubúnað innanhúss í kjallara. Vinna við loftræstingu klárast nú í vikunni. Ef allt gengur að óskum verður hægt að opna sundhöllina aftur seinni hlutann í mars. 

Fjórir verktakar eru að störfum í sundhöllinni:
AV pípulagnir vinna að endurnýjun búnaðar sem snýr að laugarkerfi (sandsíur, klórkerfi, bakskolun, dælur og stútar).
Stuð ehf. sér um uppsetningu nýs stýrikerfis fyrir laug og loftræstingu ásamt endurnýjun lagna vegna loftræstingar.
GSF verktaki annast steinsögun og múrfrágang.
Guðmundur Níelsson tekur við með málun þegar múrfrágangi lýkur.