Vatnstruflanir vegna viðgerða

Vegna viðgerða á vatnslögn má búast við minnkun á vatnsþrýstingi og jafnvel vatnsleysi frá miðnætti í kvöld, fimmtudaginn 18. júní, í um þrjár klukkustundir.

Truflunin nær til svæðisins frá Edinborgarhúsinu og niður að Hampiðju.

Íbúar og rekstraraðilar á svæðinu eru hvattir til að gera viðeigandi ráðstafanir og hafa í huga að tímabundið getur skort vatn á meðan á framkvæmdunum stendur.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir sýndan skilning.