Varúð til ökumanna á Ísafirði

Ökumenn athugið. Glussi (vökvakerfisolía) lak á götu á Ísafirði á sunnudag kl. 19.30.

Akbraut Pollgötu, frá Pollgötublokk (gatnamót Pollgata/Skipagata) og Suðurgötu, að kyndistöð Orkubús Vestfjarða (gatnamót Suðurgata/Mjósund) er mjög hál.

Unnið er að hreinsun og söndun götunnar af áhaldahúsi og slökkviliði.  

Vinsamlegast akið með gát.